Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.03.2018, Qupperneq 37

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.03.2018, Qupperneq 37
Hinn þýski plötusnúður frá Köln, Lena Willikens, spilar skemmtilega blöndu af teknó, diskó og hústónlist og kann að koma fólki á óvart á dans- gólfinu. Hún hefur m.a. komið fram á klúbbum á borð við Golden Pudel í Hamborg, Corsica Studios í London og Panoramabar í Berlín til viðbótar við að spila á hátíðum um allan heim. Mynd/Sara Mautone Nýjasta plata TOKi- MONSTA, Lune Rouge, hefur hlotið góðar við- tökur en þetta er þriðja plata TOKiMONSTA, sem er listamannsnafn Jennifer Lee frá Kali- forníu. Hún þykir hafa al- gjörlega sinn eigin stíl sem er góð blanda af poppi, hipphoppi og elektró. Þeir eru ábyggilega nokkrir sem fara bara á Sónar til að hlýða á Danny Brown en hann þykir vera einhver djarfasti og frumlegasti rapp- arinn sem siglir um á öldum hipphoppsins um þessar mundir. Þessi rappari frá Detroit er litríkur persónu- leiki sem segir persónulegar sögur í textum sínum. Mynd/Timothy Saccenti Nýjasta plata hins ítalska Lorenzos Senni ber nafnið Persona og kom út hjá hinni virtu útgáfu Warp. Hann er þekktur fyrir trans-tónlist og að vera einstaklega líflegur á sviði með takta sem þykja minna á næturklúbbana á Rimini á tíunda áratugnum. Mynd/Sónar 11.3. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37 POPP Tónlistarbransinn er ennþá karlaklúbbur þar sem konur fá ekki nægilega mörg tækifæri til að láta ljós sitt skína. Þetta fullyrðir breski lagahöfundurinn Carla Marie Williams, sem meðal annars hefur samið fyrir Beyoncé, Britney Spears, Craig David og Girls Aloud, í samtali við The Guardian. Brekkurnar eru sumsé víðar en í kvikmyndalistinni. Í samtalinu hvetur Williams útgáfufyrirtæki til að styðja sérstaklega við bakið á ungum kvenkyns lagahöfundum sem hafa burði til að gera góða hluti. Sjálf lætur Williams ekki sitt eftir liggja en á næstunni ætlar hún að bjóða hundrað konum í tónlist til fundar á vegum samtaka sem hún starfrækir og kallar Girls I Rate. „Ég lít á það sem skyldu mína að fræða ungar stúlkur um tónlistarbransann.“ Poppið er karlaklúbbur! Carla Marie Williams lagahöfundur. ROKK Söngvarinn Myles Kennedy, sem tróð upp með Slash í Laugardalshöllinni um árið, sendi í gær frá sér sína fyrstu sólóskífu, Year Of The Tiger. Um er að ræða konseptplötu sem byggð er á ævi Kennedys sjálfs. „Þetta er saga frá upphafi til enda sem fjallar um það þegar faðir minn féll frá meðan ég var strákur og hvaða áhrif það hafði á mig, bróð- ur minn og móður mína,“ sagði söngvarinn í samtali við Metal Wani. Í samtalinu kemur einnig fram að Kennedy sé undir miklum blúsáhrifum á plötunni og frá órafmagnaðri tónlist en auk þess að syngja leikur hann þar á fjölmörg hljóðfæri. Kennedy gerir upp barnæskuna Kennedy með Slash í Laugardalshöll árið 2014. Morgunblaðið/Eggert Leikarinn David Oyelowo er hæstánægður með það að þeldökkir leikarar séu farnir að fá tæki- færi yngri að árum en þekkst hefur í Hollywood. Nefnir hann í því sambandi John Boyega (Star Wars), Daniel Kaluuya (Get Out) og Michael B. Jordan (Black Panther) „Ég er virkilega stoltur af þeim vegna þess að þeir eru að gera það sem minni kyn- slóð stóð ekki til boða,“ segir Oyelowo, sem er fæddur árið 1976, í samtali við The Guardian. „Þið vitið, Leonardo Di- Caprioarnir og Ryan Goslingarnir fengu tækifærið á undan okkur. Við þeldökku leikararnir þurfum yfirleitt að juða og puða lengur til þess að hljóta frægð og frama og helst að fara með hlutverk sögulegrar persónu, sem hvítir leik- arar geta ekki leikið. John og Daniel eru á þrítugsaldri sem þýðir að þeir hafa mun lengri tíma til að byggja upp markverðan feril en við Idris [Elba] og Chiwetel [Ejiofor]. Þetta gerðist seinna hjá okkur.“ Oyelowo talar af reynslu en hann sló einmitt í gegn í hlutverki dr. Martins Luthers Kings í kvikmyndinni Selmu árið 2014. Oyelowo viðurkennir að hann hafi ekki áhuga á því að leika í ofurhetjumynd sjálfur, af ótta við að festast í ákveðnum karakter, en fagn- ar eigi að síður ákaft vel- gengni The Black Panther; ekki síst vegna svörtu kvennanna í myndinni. „Ég þekki þessar vígakonur; þær eru frænkur mínar, eldri og yngri, og móðir mín; við sjáum þær bara alla jafna ekki á hvíta tjaldinu. Það er nóg komið af mæðrum og ambátt- um. Við höfum séð þær og vitum að þær eru partur af arfleifð okk- ar. En það eru vígakonurnar líka.“ Oyelowo lofar Black Panther; m.a. vegna vígakvennanna sem séu partur af sögu svartra í Bandaríkjunum. AFP OYELOWO UM HOLLYWOOD Goslingarnir ganga fyrir David Oye- lowo er litríkur persónuleiki. Marvel Studios Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 n Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 n Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 n alnabaer.is Stýrðu birtunni heima hjá þér MYRKVA GLUGGATJÖLD Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu Íslensk framleiðsla eftir máli Hringdu núna og bókaðu tíma í máltöku OPIÐ: VIRKA DAGA FRÁ 10-18 alnabaer.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.