Morgunblaðið - 03.04.2018, Qupperneq 1
Þ R I Ð J U D A G U R 3. A P R Í L 2 0 1 8
Stofnað 1913 77. tölublað 106. árgangur
ARON Í HLUTA-
STARFI Í BAREIN
OG HAFNARFIRÐI
VERÐLAUNA-
HÁTÍÐ BARNANNA
LJÓÐALESTUR
OG -ÞÝÐINGAR
Á NORSKU
SÖGUR 12 KRISTJÁN BREIÐFJÖRÐ 30HANDBOLTI ÍÞRÓTTIR
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Fjórtán manns slösuðust í tveimur
umferðarslysum í gærdag. Varð
annað þeirra við Blönduós en hitt á
Grindavíkurvegi.
Alls slösuðust sjö í árekstri
tveggja fólksbíla á Norðurlandsvegi
sunnan Blönduóss, skammt frá Laxá
á Ásum. Þar af voru þrír þeirra flutt-
ir alvarlega slasaðir með þyrlu
Landhelgisgæslu Íslands á bráða-
deild Landspítalans í Fossvogi. Ekki
fengust í gærkvöldi nánari upplýs-
ingar um líðan fólksins. Hinir fjórir
voru fluttir til aðhlynningar á Heil-
brigðisstofnun Norðurlands, en sam-
kvæmt upplýsingum þaðan voru
meiðsli þeirra minniháttar. Var fólk-
ið útskrifað að lokinni skoðun.
Ók á röngum vegarhelmingi
Loka þurfti fyrir umferð ökutækja
á Norðurlandsvegi sunnan Blöndu-
óss í um tvær klukkustundir á meðan
viðbragðsaðilar voru á vettvangi.
Vilhjálmur Stefánsson, lögreglu-
maður á Blönduósi, segir ekki vitað
með vissu hvað olli slysinu, en rann-
sóknarnefnd samgönguslysa var í
gær að störfum á slysstað.
„Það er bíll sem fer yfir á öfugan
vegarhelming og bílarnir skella sam-
an. Við vitum samt ekki hvað gerðist
nákvæmlega þarna, en rannsóknar-
nefnd samgönguslysa er að rann-
saka hvað gerðist,“ segir Vilhjálmur
og bætir við að vel hafi gengið að
flytja fólk af vettvangi.
Árekstur á Grindavíkurvegi
Þá slösuðust einnig sjö manns í
þriggja bíla árekstri á Grindavíkur-
vegi, skammt sunnan Seltjarnar, um
svipað leyti. Þrír þeirra voru fluttir á
Landspítalann, en fjórir á Heilbrigð-
isstofnun Suðurnesja. Meiðsl þeirra
voru minniháttar. Ekki fengust upp-
lýsingar um líðan þeirra sem fluttir
voru á Landspítalann.
Stefán Rafn Rafnsson, lögreglu-
fulltrúi á Suðurnesjum, segir tildrög
slyssins vera til rannsóknar. „Það
sem við vitum er að það skella þrír
bílar saman. Hugsanlega hefur einn
þeirra farið yfir á öfugan vegarhelm-
ing. Það verður hins vegar ekkert
gefið út fyrr en að rannsókn lokinni,“
segir Stefán, en samkvæmt upplýs-
ingum frá lögreglunni á Suðurnesj-
um var krap í vegaröxlum þegar
slysið átti sér stað. Ekki er þó vitað
hvort það átti þátt í því að ökutækin
skullu saman.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sjúkraflug Þyrla Landhelgisgæslu Íslands lenti með slasaða við Landspítalann í Fossvogi um klukkan 15, en fremstur t.h. á myndinni er þyrlulæknir.
Fjórtán manns eru slasaðir
eftir alvarleg umferðarslys
Þrír voru fluttir mikið slasaðir með þyrlu Landhelgisgæslunnar eftir árekstur
MVilja breyta veginum »4
Talsmenn skíðasvæða voru ánægð-
ir með veður og aðsókn að skíða-
svæðum um páskana. Um mestallt
land var gott veður. Á Ólafsfirði
setti lítill snjór strik í reikninginn
og í Stafdal hófust páskarnir á
hraglanda og éljagangi.
Á Akureyri renndu yfir 10.000
manns sér á skíðum yfir páskana og
yfir 9.000 í Bláfjöllum. Ísfirðingar
skíðuðu í björtu og góðu veðri og
nutu góðs af hátíðinni Aldrei fór ég
suður. Enginn alvarleg slys urðu á
skíðafólki en nokkur smáslys áttu
sér stað. Í Bláfjöllum var boðið upp
á skíðamessu í 29. sinn og á Akur-
eyri skíðaði Björg Finnbogadóttir
sem verður níræð í næsta mánuði
af hjartans lyst. Hún hefur verið
fastagestur í Hlíðarfjalli á Akur-
eyri í 75 ár. Páskaeggjaleit fór víða
fram í skíðabrekkum og skíðamenn
mættu í furðufötum á Ísafirði.
»14 - 15
Gott skíðaveður
gladdi um páskana
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skíðamessa Pálmi Matthíasson messaði í skíðamessu í Bláfjöllum sem hefur verið árlegur viðburður á páskadag.
Boðið upp á skíðamessu í Bláfjöllum
Þeir tæplega
1.100 einstak-
lingar sem sóttu
um alþjóðlega
vernd hér á landi
á síðasta ári voru
hlutfallslega
mjög margir á
evrópska vísu.
Þeir eru tvisvar
til þrisvar sinn-
um fleiri en
gengur og gerist í ríkjum Evrópu-
sambandsins og fimm til sex sinnum
fleiri en sækja til Danmerkur og
Noregs.
Mikil fjölgun varð á umsóknum
um alþjóðlega vernd hér á árinu
2016, einkum vegna fólks sem kom
frá löndum sem talin eru örugg til að
leita eftir vinnu og betra lífi hér á
landi. Flestum umsóknum af þessu
tagi er synjað og fólkið sent heim
aftur. Fjöldinn var svipaður í fyrra
en nú hefur aftur dregið úr straumn-
um. Í öðrum löndum Evrópu er
meginhluti umsókna hins vegar frá
flóttamönnum frá stríðshrjáðum
ríkjum, eins og Sýrlandi, Írak og
Afganistan. »4
Margir
sækja til
Íslands
Hælisumsóknir
hlutfallslega margar
Flótti Víða er leitað
eftir vernd.
Umhverfisstofnun í Bretlandi
hefur lagt til að netaveiðar á laxi í
sjó verði bannaðar við strendur
Englands og við landamærin að
Skotlandi og að öllum laxi sem
veiddur er á stöng í tíu ám verði
sleppt. Tilgangurinn er að reyna að
draga úr frekari hnignun laxa-
stofnanna sem eru sumir komnir að
hættumörkum. Sjómenn hafa mót-
mælt þessum áformum. Fiskur úr
ánum gengur að ströndum Íslands
en ekki er vitað til þess að lax úr ís-
lenskum ám gangi til Englands og
því hafa aðgerðir Breta væntanlega
engin áhrif hér á landi. »11
Englendingar hyggjast
banna laxveiðar í sjó