Morgunblaðið - 03.04.2018, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 2018
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is
Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt land
Áratuga
reynsla
Startar bíllinn ekki?
Við hjá Rafstillingu leysum málið
Nýlöguð
humarsúpa
Opið virka daga 10.00 - 18.15 | laugardaga 11.00 - 15.00
Gnoðarvogi 44 | 104 Reykjavík | sími: 588 8686
Glæný lúða
Gómsætir og girnilegir réttir í fiskborði
fyrir þig til að taka með heim
Ný línuýsa
Klaustur-
bleikja
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Sex flugvélar Icelandair þurftu að
lenda á Egilsstaða- og Akureyrar-
flugvelli í gærmorgun sökum mikillar
snjókomu á Keflavíkurflugvelli. Fjór-
ar vélanna lentu á Egilsstöðum og
tvær á Akureyri. Að sögn Guðjóns
Arngrímssonar, upplýsingafulltrúa
Icelandair, héldu vélarnar fljótlega til
Keflavíkur. Tvær vélar hafi þó þurft
að bíða fram yfir hádegi á Egilsstöð-
um sökum þess að áhafnir þeirra voru
komnar fram yfir leyfilegan hámarks-
vinnutíma.
Guðjón Helgason, upplýsinga-
fulltrúi Isavia, segir að talsverðar
raskanir hafi orðið á flugi sökum snjó-
komunnar. Auk fyrrgreindra Ice-
landair-véla þurfti flugvél frá banda-
ríska flugfélaginu Delta, sem lenda
átti í Keflavík, að lenda í Skotlandi. Þá
hafi flugumferð til og frá Keflavíkur-
flugvelli legið niðri meðan á ofankom-
unni stóð.
„Það varð talsverð seinkun á flugi
frá Keflavík meðan á ofankomunni
stóð. Ég á þó ekki von á því að það
taki langan tíma að vinda ofan af
þessu,“ segir Guðjón og bætir við að
þegar upp koma slæmar veðurað-
stæður séu upplýsingar um það send-
ar til flugstjóra viðkomandi véla. Þeir
taki í kjölfarið ákvörðun um hvort
lenda eigi á umræddum flugvelli.
„Bremsuaðstæður á flugvellinum eru
mældar með reglulegu millibili. Þær
eru síðan sendar flugstjórum véla
sem eru væntanlegar inn til lending-
ar. Það er í þeirra verkahring að taka
ákvörðun um hvort lenda eigi vélinni
á vellinum eða ekki,“ segir Guðjón
sem telur að ekki hafi verið hægt að
tryggja bremsuskilyrði fyrir vélar í
lendingu.
„Það kyngdi niður miklu af þung-
um og blautum snjó sem erfiðlega
gekk að moka í burtu. Þetta olli
tvennskonar vandamálum. Annars-
vegar gekk illa að afísa vélar sem
voru að fara í loftið og hins vegar gát-
um við ekki tryggt bremsuskilyrði
fyrir flugvélar sem voru að koma inn í
lendingu,“ segir Guðjón.
Hann segir að þrátt fyrir að ofan-
komunni hafi verið spáð í nokkra
daga sé erfitt að bregðast við aðstæð-
unum sem upp komu í gær. „Það er
alltaf erfitt að búa sig undir eins
þungan og blautan snjó og var í gær.
Það hefði ekki skipt máli hvort það
voru 100 manns eða 20 manns á vakt.
Þetta er bara mjög erfitt viðureign-
ar,“ segir Guðjón sem telur að vel hafi
verið unnið úr stöðunni. „Það gekk
greiðlega að koma vélum aftur af stað
og það er ekki útlit fyrir að það taki
langan tíma koma flugáætlunum í
rétt horf á nýjan leik,“ segir Guðjón.
Ljósmynd/Stephan Fischer
Egilsstaðaflugvöllur Fjórar þotur Icelandair þurftu að lenda á Egilsstöðum vegna mikillar ofankomu.
Flug raskaðist vegna ofankomu
Sex vélar Icelandair lentu á Akureyrar- og Egilsstaðaflugvelli í gær Bremsuskilyrði í Keflavík ekki
talin fullnægjandi Illa gekk að afísa farþegaþotur og ryðja flugbrautir á Keflavíkurflugvelli
Guðrún Erlinsdóttir
ge@mbl.is
„Ég er að fylgja síðustu tónlistar-
mönnunum upp í flugvél. Hér er
glampandi sól, heiðskírt og smá
andvari,“ sagði Kristján Freyr Hall-
dórsson, rokkstjóri á hátíðinni Aldr-
ei fór ég suður, í gærdag.
„Það er mjög erfitt að vera í fýlu
hér fyrir vestan. Það er búið að vera
svo gaman og blíðskaparveður alla
páskana, sem hefur hjálpað mikið
til. Við eigum alltaf von á smá
páskahreti en hér var einmuna blíða
allan tímann,“ segir Kristján Freyr.
„Ég verð að segja að hátíðin í ár
er sú allra besta og stærsta hingað
til. Miðað við fólksfjöldann erum við
að slá metið frá því í fyrra,“ segir
Kristján Freyr og tekur fram að erf-
itt sé að meta fjölda hátíðargesta
með vissu.
„Við notum tölur Vegagerðar-
innar um umferð bíla um Ísafjörð og
tölur um flugfarþega til Ísafjarðar.
Í fyrra áætluðum við að á milli 4.000
og 5.000 manns hefðu mætt á hátíð-
ina. Það kæmi ekki á óvart að talan
væri yfir 5.000 í ár,“ segir Kristján
Freyr. Hann segir að hátíðarhald-
arar séu komnir með þau verkfæri
sem þurfi til þess að halda ókeypis
tónlistarhátíð þar sem allir eru vel-
komnir.
„Þetta gekk eins og í lygasögu og
við sem komum að hátíðinni erum
orðin eins og vel smurð vél auk
þeirra fjölmörgu sjálboðaliða sem
koma til okkar ár eftir ár. Þeir taka
þátt í gæslu, búa um rúm fyrir tón-
listarmennina og finna til morgun-
mat,“ segir Kristján Freyr. „Þessir
gestir sem koma á hátíðina ár eftir
ár eru orðnir hluti af tannhjóli vél-
arinnar sem kemur að hátíðinni.“
Þá segir hann að aðstandendur
hátíðarinnar afli fjár til þess að
standa straum af hátíðinni með
styrkjum frá einstaklingum og fyr-
irtækjum og með sölu á veitingum
og ýmsum varningi á hátíðinni
sjálfri. Það er alveg magnað að okk-
ur hafi tekist þetta í 15 skipti,“ segir
Kristján Freyr sem bendir á að tón-
listarhátíðin sé ekki haldin í hagn-
aðarskyni heldur til þess að hafa
gaman af og búa til skemmtilegan
viðburð.
„Tónlistarmenn Aldrei fór ég suð-
ur skemmtu gestum á pökkuðu
skíðasvæði Ísfirðinga. Það er ekki
til betri blanda af páskum að mínu
mati en skíði og tónlistarhátíð.“
Ljósmynd/ Ágúst Atlason
Tónlistarhátíð 200.000 naglbítar skemmta gestum á tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður á Ísafirði um páskana.
Tónlistarhátíð og
skíði góð blanda
Rúmlega 5.000 á Aldrei fór ég suður