Morgunblaðið - 03.04.2018, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 03.04.2018, Qupperneq 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 2018 Sérblað helgað sjávar- útveginum fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 6. apríl SÉRBLAÐ NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFA: Valur Smári Heimisson Sími 569 1277 valursmari@mbl.is og Sigríður Hvönn Karlsdóttir Sími 569 1134 sigridurh@mbl.is PÖNTUN AUGLÝSINGA: Fyrir miðvikudaginn 4. apríl Listamenn að norðan fluttu Matteusarpassíu Listamenn Hörður Áskelsson stjórnaði listafólkinu af kunnri snilld. Athygli Heyra mátti saumnál detta meðan á flutningi stóð. VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Það virðist sem töluverður áhugi sé á íslenskum í bókmenntum í Noregi og bendir Kristján Breiðfjörð á að það sé hluti af skyldunámi norskra unglinga að lesa Snorra Sturluson. „Ekki nóg með það heldur þurfa nemendurnir að geta stafað sig í gegnum hluta af skrifum hans á forn-íslensku. Ég man að þegar ég þreytti sjálfur stúdentspróf í Noregi þurfti ég að þýða textabút eftir hann úr íslensku á norsku.“ Kristján er rithöfundur og þýð- andi og hefur einkum fengist við þýðingar á íslenskum ljóðum á norsku. Hann á íslenskan föður en norska móður og fékk því þá vöggu- gjöf að tilheyra báðum þjóðum. „Hann faðir minn fer til Þránd- heims í Noregi til að mennta sig og fann þar hana móður mína. Ég kem svo í heiminn í Noregi árið 1970, fyrsta barnið í systkinahópnum, en fjölskyldan flytur skömmu síðar til Íslands þar sem ég elst upp til 11 ára aldurs þegar við höldum aftur til Noregs þar sem ég fékk nær alla mína menntun.“ Saknar alltaf hins landsins Kristján býr á Íslandi í dag en hefur skipt árunum nokkuð jafnt á milli landanna. „Ég held það sé erf- itt að komast hjá því, þegar maður er tvítyngdur og hefur svona sterk tengsl við tvo staði, að þegar maður er í öðru landinu þá saknar maður alltaf hins og reynir að fara sem mest á milli, og myndi helst vilja að þessir tveir heimar gætu runnið saman.“ Bókmenntaáhugi Kristjáns er sjálfsprottinn og var æskuheimilið ekki meira eða minna menning- arlegt en önnur íslensk eða norsk heimili. Faðir hans menntaði síg í tæknifræði og rak á sínum tíma smíðaverkstæðið Breiðfjörðsblikks- miðju þar sem Kristján vann öll sumur og í öllum fríum. „Áhuginn á ljóðum kom eins og hálfgerð op- inberun þegar ég fékk í hendurnar ljóðasafn Steins Steinars fyrir lið- lega þremur áratugum. Þar upp- götvaði ég texta sem var allt annað en það sem ég hélt að ljóðagerð væri og í framhaldinu byrjaði ég að gera tilraunir með að yrkja ljóð í sama stíl, og um leið þýða verk Steins. Hugsa ég að í dag hafi ég þýtt nærri því hvert einasta ljóð sem hann hefur skrifað.“ Fleiri leiðir til að koma ljóðum á framfæri Nýlega þýddi Kristján (sem ritar nafnið sitt Kristian Breidfjord þeg- ar hann er Noregsmegin) ljóðabók Sigurðar Pálssonar, Ljóð muna rödd, sem fengið hefur norska tit- ilinn Dikt husker stemmen og er gefin út af Nordsjoforlaget. Þá kemur út á næstunni sýnisbók með áður óbirtum ljóðum eftir fjögur ís- lensk skáld, í tilefni af árlegri ljóðahátíð í Bergen. Eiríkur Örn Norðdahl er ritstjóri bókarinnar og valdi í hana ljóð eftir Fríðu Ísberg, Jón Örn Arnarson, Ástu Fanneyju Ljóð geta passað nánast hvar sem er  Steinn Steinarr kveikti ljóðaáhugann hjá Kristjáni Breið- fjörð og hefur hann þýtt nær öll hans ljóð á norsku  Ný- lega kom ljóðabók Sigurðar Pálssonar út í Noregi, í þýðingu Kristjáns, og von er á bók með ljóðum fjögurra íslenskra skálda sem verða í sviðsljósinu á ljóðahátíð í Bergen Aðlögun „Það má setja ljóð í Twitter-færslu eða inn á Facebook og halda því óbreyttu en það sama er ekki hægt að segja um skáldsögu,“ segir Kristján Breiðfjörð. Starf þýðandans er erfiðara en margur heldur – kannski vegna þess að þegar þýðing ljóðs eða bókar heppnast vel þá virðist text- inn hafa sprottið fram alveg áreynslulaust. Er óhætt að fullyrða að ljóðaþýðingar séu erfiðasta verkefni sem þýðandi getur tekið sér fyrir hendur enda þarf hann að koma til skila, á mjög knöppu formi, sem mestu af merkingu, takti, stíl og lögun ljóðsins. Kristján bendir á að þýðing- arstarfið sé svo krefjandi að það sé flestum um megn að þýða á annað mál en sitt eigið móðurmál, og sjálfur haldi hann sig við að skrifa og þýða á norsku enda málið sem hann vandist að nota á sínum mikilvægustu mótunar- og mennt- unarárum. „Þó margt sé skylt með íslensku og norsku, og menning landanna svipuð, þá eru tungumálin það ólík að yfirleitt verður að umskrifa ljóðið sem á að þýða,“ segir Krist- ján og bætir við að þýðing á ljóði verði helst að fylgja frumtextanum svo náið að línufjöldinn sé sá sami og línurnar álíka langar. Er undir hverjum þýðanda komið hversu langt hann vill ganga við að fylgja frumtextanum, en oft fer mikil vinna í að gera þýðinguna eins knappa og textinn leyfir. Kristján – sem dreymir um að gefa í framtíðinni út veglega sýn- isbók með norskum þýðingum á ís- lenskum ljóðum – hefur það fyrir sið, hvort sem hann á að þýða ljóð til útgáfu eða ekki, að gera orð- rétta þýðingu á textanum. „Það er skrítið hvað það tekur í raun lang- an tíma að lesa ljóð, gaumgæfa það frá öllum hliðum, og vera þess fullviss að maður sé að lesa text- ann rétt og nái hverri einustu merkingu. Við erum alltaf að lesa ljóð vitlaust, það get ég sagt þér,“ segir hann. „Svo nær maður að grípa í ein- hvern spotta í textanum, og út frá honum er hægt að byrja að þýða ljóðið og koma bæði til skila merk- ingu orðanna og tilfinningunni sem textinn býr yfir. Alltaf er eitt- hvað sem hverfur við þýðingu á ljóði, en þýðandinn verður líka að vara sig á að bæta ekki of miklu við. Þetta er púsluspil þar sem stöðugt þarf að huga að því hvað má nema í burtu til að gera þýð- inguna knappa en um leið skýra og rétta.“ „Erum alltaf að lesa ljóð vitlaust“ ÞARF AÐ ÞÝÐA FRUMTEXTANN AF NÁKVÆMNI Morgunblaðið/Styrmir Kári

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.