Morgunblaðið - 04.04.2018, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 04.04.2018, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 4. A P R Í L 2 0 1 8 Stofnað 1913  78. tölublað  106. árgangur  VIGNIR AFTUR VALINN Í LANDSLIÐIÐ MYNDIR FYRIR BÖRN OG UNGLINGA DAGLEG ÚTIVIST, REGLUSEMI OG LANGLÍFI ALÞJÓÐLEG KVIKMYNDAHÁTÍÐ 30 ÁGÚSTA GÍSLADÓTTIR 100 ÁRA 2HANDBOLTI ÍÞRÓTTIR Hópur fólks kom saman við hús ríkis- sáttasemjara í gær, þegar samninganefndir Ljósmæðrafélags Íslands og ríkisins voru á sáttafundi. Tilgangurinn var að sýna ljós- mæðrum stuðning í kjarabaráttu þeirra. Einnig komu foreldrar saman fyrir framan hús Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja í sama tilgangi. „Þetta er ótrúlega dýrmætur stuðn- ingur,“ segir Katrín Sif Sigurgeirsdóttir, for- maður kjaramálaráðs Ljósmæðrafélagsins. Hún segir mikilvægt að fá svona góðan skiln- ing á málefninu. Minni skilningur var innan dyra því sáttafundurinn var árangurslaus, að sögn Katrínar. Samninganefnd ríkisins hafi ekki verið tilbúin til að koma til móts við kröfur ljósmæðra. »2 Morgunblaðið/Eggert Mæður og feður styðja ljósmæður Baldur Arnarson baldura@mbl.is Ef áætlanir WOW air ganga eftir munu um 2.000 starfsmenn vinna hjá félaginu yfir háannatímann 2019. Til samanburðar störfuðu mest um 1.100 manns hjá félaginu í fyrra. Jónína Guðmundsdóttir, fram- kvæmdastjóri mannauðssviðs WOW air, segir félagið hafa flutt um 100 þúsund farþega fyrsta starfsárið, sem var árið 2012. Á þessu ári sé áætlað að farþegarnir verði 3,7 millj- ónir. Gangi það eftir hefur farþega- fjöldinn 37-faldast frá árinu 2012. Á fáeinum árum er félagið að verða eitt það stærsta á landinu hvað fjölda starfsmanna snertir. Næstum 30.000 umsóknir Jónína segir um 2.000 manns hafa sótt um störf flugliða hjá WOW air í vor. Samtals hafi félaginu borist um 30.000 starfsumsóknir síðan 2015. Kunna einhverjir að hafa sótt um starf oftar en einu sinni. Jónína segir að um 1.300 manns starfi nú hjá félaginu og að mest muni um 1.550 starfa hjá því í sumar. Tilkoma fjögurra nýrra breiðþotna í flotann á síðustu mánuðum ársins muni kalla á frekari fjölgun starfs- manna. Fyrir vikið sé áætlað að þeir verði orðnir um 2.000 á næsta ári. Með nýju breiðþotunum verða þot- urnar orðnar 24. Icelandair verður með 33 þotur og samtals verða félög- in því með 57 farþegaþotur í ár. Á þriðja þúsund hjá Icelandair Til samanburðar var alls 981 stöðugildi hjá Icelandair árið 2010 en 2.143 í fyrra. Tölur fyrir þetta ár liggja ekki fyrir. Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri samskiptasviðs Icelandair Group, segir gert ráð fyr- ir frekari vexti félagsins í ár. Því megi ætla að fjöldi starfsmanna og farþega muni slái met. Benda þessar tölur til að vel á fimmta þúsund manns muni starfa hjá WOW air og Icelandair á næsta ári. Það er metfjöldi. WOW air stefnir á 2.000 starfsmenn á næsta ári  Nærri tvöföldun frá 2017  Líka metfjöldi hjá Icelandair MFlugfélögin margfalda … »6 Ljósmynd/WOW air Á uppleið Vöxtur félagsins hefur verið ör frá fyrsta starfsárinu 2012. Nýtt fimm stjörnu hótel, The Re- treat, við Bláa lónið var opnað á páskadag og fengu fyrstu gestir hót- elsins páskaegg af því tilefni. Már Másson, markaðs- og mann- auðsstjóri Bláa lónsins, segir fjölda bókana standa undir væntingum. Ein nótt á hótelinu kostar frá 144 þúsund krónum, en gestirnir njóta þjónustu einkaþjóna og hafa aðgang að sérbaðlóni. Vel gekk að manna 165 stöður sem auglýstar voru vegna starfsem- innar þrátt fyrir lítið framboð á starfsfólki í ferðaþjónustu. »6 Lúxus við Bláa lónið Huggulegt Á hótelinu eru tveir veit- ingastaðir og glæsileg heilsulind. Eftirprenti af verki listamannsins Tolla, sem nefnist Morgunstemning á Mýrunum, var stolið af gjörgæslu- deild Landspítalans í Fossvogi fyrir síðastliðna helgi. „Verk merkt Tolla hefur einfald- lega verið of freistandi fyrir ein- hvern,“ segir Anna Sigrún Baldurs- dóttir, aðstoðarmaður forstjóra Landspítala, við Morgunblaðið, en verið er að fara yfir upptökur úr öryggismyndavélum á spítalanum til að sjá hvort þjófurinn finnist. »4 Listhneigður þjófur á Landspítalanum SA lýsir yfir andstöðu við frumvarp um styttingu vinnuvikunnar og ASÍ telur að breytingar á lögum um 40 stunda vinnuviku feli í sér „ótíma- bært inngrip“ í heildarendur- skoðun aðila vinnumarkaðarins um skipulag vinnutíma. FA segir að vinnutími verði ekki styttur með valdboði frá Alþingi. Ýmsar opinberar stofnanir og fé- lög styðja hins vegar styttingu vinnuvikunnar með ýmsum rökum, eins og sjá má í umsögnum. »18 Skiptar skoðanir um styttingu vinnutíma

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.