Morgunblaðið - 04.04.2018, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 2018
Raðauglýsingar
Fundir/Mannfagnaðir
Fulltrúaráð
sjálfstæðisfélaganna
í Hafnarfirði
Fundarboð
Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Hafnarfirði
boðar til fundar miðvikudaginn 11. apríl 2018
kl. 19:30 í Sjálfstæðishúsinu, Norðurbakka 1,
Hafnarfirði.
Dagskrá:
1. Tillaga um skipan á lista Sjálfstæðis-
flokksins í Hafnarfirði fyrir sveitarstórnar-
kosningar 26. maí næstkomandi verður
kynnt og borin upp til afgreiðslu.
2.Önnur mál.
Fulltrúar í fulltrúaráði Sjálfstæðisfélaganna
eru hvattir til að mæta.
Stjórnin
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 opin vinnustofa kl 9 og foreldramorgnar eru kl 10.30.
Prjónahópur hittist kl 13 í sófunum hjá okkur og söngstund við
píanóið er kl 13.45. Hrafn Jökulsson kemur svo aftur í hús með bóka-
spjallið góða kl 15. Hlökkum til að sjá ykkur!
Árbæjarkirkja Kyrrðarstund í kirkjunni kl.12, leikskólabörn syngja
undir lok stundar. Léttur hádegisverður á eftir gegn vægu gjaldi.
Opið hús í safnaðarheimili kirkjunnar kl.13 til 16. Leikfimi með Öldu
Maríu kl. 13.30. Jón Unnar flytur ljóð eftir ýmsa höfunda kl. 14.30.
Kaffi og með því á eftir í boði kirkjunnar. Allir velkomnir.
Árskógar Handavinna með leiðb. kl. 9-16.Smíðastofan er lokuð.
Stóladans með Þórey kl. 10. Söngstund með Helgu. Opið hús, t.d.vist
og bridge kl. 13-16. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45.
Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni, Allir velkomnir. s: 535-2700.
Boðinn Miðvikudagur: Handavinnustofa opin frá kl. 9.00 - 15.00.
Harmonikku/gítarspil og söngur kl. 13.30. Vatnsleikfimi kl. 14.30.
Leshópur Boðans kl. 15.00.
Bústaðakirkja Almenn samverustund, spil, handavinna og fram-
haldssaga. Sóknarprestur verður með hugleiðingu og bæn, kaffið
góða á sínum stað, stundin er í umsjá Hólmfríðar djákna.
Allir hjartanlega velkomnir
Garðabær Jónshúsi/ félags - og íþróttastarf: 512-1501.Opið í
Jónshúsi og heitt á könnunni alla virka daga frá 09.30-16.00. Vatns-
leikfimi Sjál. Kl. 7.40/15.15. Kvennaleikfimi í Sjál kl. 9.30. Kvennaleik-
fimi í Ásg. kl. 10.40. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10.00. Bridge í
Jónshúsi kl. 13.00. Leir í Kirkjuhvoli kl. 13.00. Zumba í Kirkjuhvoli
kl. 16.15.
Gjábakki kl. 9.00 Handavinna, kl. 9.10 Byrjenda-Boccia, kl. 9.30
Glerlist, kl. 13.00 Félagsvist, kl. 13.00 Postulínsmálun.
Grensáskirkja Samverstund eldri borgara í Grensáskirkju kl. 14-
15.30. Helgistund, fræðsla, skemmtiefni ofl kaffi í lokin.
Guðríðarkirkja Félagsstarf eldriborgara miðvikudaginn 4.apríl kl.
12.00. Byrjum í kirkjunni með fyrirbænir og söng. Hægt er að hafa
samband við Guðríðarkirkju með fyrirbænaefni í síma 577-7770.
Davíð Ólafsson söngvari kemur og skemmtir okkur eftir matinn.
Boðið verður upp á steiktan fisk á kr. 1000.- Hlökkum til að sjá ykkur.
sr. Leifur Ragnar, Anna Sigga, Hrönn og Lovísa.
Gullsmári FEBK Dansleikur í Gullsmára föstudaginn 6. apríl kl. 20.00
- 23.00 Hilmar og Kristján leika fyrir dansi. Miðaverð kr. 1500,-
Gullsmári Miðvikudagur Myndlist kl 9.00 Ganga kl 10.00 Post-
ulínsmálun /Kvennabridge /Silfursmiði kl 13:00
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Boccia kl.10 – 11. Útskurður með leiðbeinanda, kl. 9-12, 500kr skiptið,
allir velkomnir. Opin handavinna kl. 9 – 14. Hádegismatur kl. 11.30.
Hvassaleiti 56 - 58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8 - 16, morgunkaffi
og spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, zumbadans
kl. 9 hjá Carynu, morgunleikfimi kl. 9.45, jóga kl. 10 hjá Carynu.
Samverustund kl. 10.30, lestur og spjall, hádegismatur kl. 11.30.
Handavinnuhópur kl. 13, línudans kl. 13.30, eftirmiðdagskaffi kl. 14.30
Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnar kl. 8.50, við hringborðið
kl.8.50, upplestrarhópur Soffíu kl. 9.45, ganga kl.10, línudans með
Ingu kl.10, Zumba dans leikfimi kl. 13, tálgun í ferskan við með Valdór
kl.14.30, síðdegiskaffi kl.14:30, allir velkomnir óháð aldri upplýsingar
í síma 411-2790.
Korpúlfar Stjórnar og nefndarfundur Korpúlfa kl. 10.00 í dag, í
Borgum, gönguhópar frá Borgum og inni í Egilshöll kl. 10:00 Keila
í Egislhöll kl. 10 í dag og Gaman saman í Borgum kl. 13 í dag og
Qigong með þóru Halldórsdóttir kl. 16.30 í dag í Borgum. Sala á
aðgöngumiðum á afmælishátíð Korpúlfa í fullum gangi 7.800.- (muna
pening ekki með posa). Allir velkomnir.
Selið, Sléttuvegi 11-13 Selið er opið frá kl. 10-16 og upp úr kl. 10 er
boðið upp á kaffi þar sem fólk kemur saman í spjall og kíkir í blöðin.
Hádegisverður er kl. 11.30-12.15 og handavinnuhópurinn kemur
saman kl. 13. Kaffi og meðlæti er selt á vægu verði kl. 14.30–15.30.
Allir eru hjartanlega velkomnir í Selið. Nánari upplýsingar hjá Maríu
Helenu í síma 568-2586.
Seltjarnarnes Gler og glerbræðsla kl. 9.00 og 13.00. Leir Skólabraut
kl. 9.00. Botsía Gróttusal kl. 10.00. Kaffispjall í króknum kl. 10.30.
Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12.00. Timburmenn Valhúsaskóla kl. 13.00.
Handavinna Skólabraut kl. 13.00. Vatnsleikfimi í sundlauginni
kl. 18.30. Á morgun fimmtudag verður félagsvist í salnum á
Skólabraut kl. 13.30. Allir velkomnir.
Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Göngu-hrólfar ganga frá Ásgarði
Stangarhyl 4, kl. 10.00 . Söngfélag FEB kóræfing kl. 16.30 stjórnandi
Gylfi Gunnarsson
Félagslíf
Samkoma kl. 20 í Kristni-
boðssalnum. Ræðumaður
Beyene Galassie. Allir velkomnir
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl 20.00.
HELGAFELL 6018011019 VI
Smáauglýsingar
Ferðalög
Fasteignir í Portúgal
http://
www.abbaleiga.net/439232483
Bæði einbýlishús og íbúðir í
jölbýlum.
abbaleiga@gmail.com
Húsnæði óskast
Húsnæði óskast til leigu,
Hjúkrunarfræðingur óskar eftir lítilli
búð eða stúdíóíbúð á
höfuðborgarsvæði. Skilvísum
greiðslum heitið og reglusemi.
Sæmundur sími: 786-0441
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
Lok á heita potta og hitaveitu-
skeljar
Stærðir í cm: 200x200, 210x210,
220x220, 235x235, 235x217,
217x174, 8 hyrnd lok. Lokin þola 1000
kg jafnarðarþunga af snjó. Vel ein-
angruð og koma með 10 cm svuntu.
Sterkustu lokin á markaðnum. Litir:
Brúnt eða grátt. Opnarar til þess að
auðvelda opnun á loki.
www.heitirpottar.is
Sími 777 2000 Haffi
og 777 2001 Grétar
Ýmislegt
-Þ
Ú
SE
ND
IR
OKK
UR MYND EÐA
TEXTA-
-V
IÐ
PRENTUM Á TATT
O-
PA
PP
ÍR
-
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Stofnað 1986 • Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Húsviðhald
Hreinsa
þakrennur, laga
ryð á þökum
og tek að mér ýmis
smærri verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
ÚTSALA Á HERRASKÓM!
Við erum að hætta með útiskó!
JOMOS þýskir gæða leður skór!
Stærðir 39-47
Kr. 8.990,- ALLT Á AÐ SELJAST
Laugavegi 178, sími 551 2070.
Opið mán. - fös. kl. 10–18,
Laugardaga kl. 10 - 14
fasteignir
✝ Magnús Sigurðs-son fæddist 5.
nóvember 1928. Hann
andaðist á Heilbrigð-
isstofnun Austurlands
Neskaupstað 24. mars
2018. Magnús var son-
ur Sigurðar Björns-
sonar bónda í Sauð-
haga á Völlum, f. 17.9.
1885, d. 2.12. 1939, og
Magneu Herborgar
Jónsdóttur, f. 26.1.
1892, d. 17.3. 1967, en þau bjuggu
lengst af í Sauðhaga.
Systkini Magnúsar voru Anna
Björg bóndi á Gunnlaugsstöðum,
f. 1920, d. 2013, Ingibjörg á Hall-
ormsstað, f. 1924, d. 2014, Páll
bóndi á Sauðhaga I, f. 1926, d.
2015, Björn bóndi í Sauðhaga II, f.
1927, d. 2007, Jón Benedikt bóndi
í Lundi, f. 1931, d. 2013.
Magnús kvæntist 19. apríl 1951
eftirlifandi eiginkonu sinni Sig-
ríði Magneu Ólafsdóttur frá
Siglufirði. Þau hjón hófu búskap í
Vallanesi 1951 og
bjuggu þar í níu ár.
Árið 1960 kaupa
þau jörðina Úlfs-
staði á Völlum og
bjuggu þar með
sauðfé og hesta.
Magnús var ann-
álaður fyrir góðan
árangur í fjárrækt
sem og hrossarækt.
Samtímis sáu þau
um Orlofshúsin á
Einarsstöðum frá árinu 1971 til
2002 og félagsheimilið Iðavelli
frá 1964 til 1993. Magnús var
oddviti sveitarstjórnar Valla-
hrepps frá árinu 1974 til 1982,
auk þess gegndi hann ýmsum
öðrum trúnaðarstörfum fyrir
hreppinn. Árið 2008 brugðu þau
hjón búi og fluttu í Egilsstaði.
Útförin fer fram frá Egils-
staðakirkju í dag, 4. apríl 2018,
kl. 14.
Jarðsett verður í Valla-
neskirkjugarði.
Kynni okkar Magnúsar, bónda á
Úlfsstöðum, hófust haustið 1967
þegar undirbúningur var hafinn að
byggingu Orlofshúsa Alþýðusam-
bands Austurlands en stjórn sam-
bandsins hafði verið bent á ákjós-
anlegt land á Einarsstöðum í Valla-
hreppi fyrir slíka starfsemi. Ég var,
sem starfsmaður sambandsins,
ásamt stjórn þess og fulltrúum eig-
enda landsins, Skógræktarfélagi
Austurlands, að kanna aðstæður í
fögru skógivöxnu landi Einars-
staða. Land Einarsstaða liggur að
landi Úlfsstaða og var Magnús með
í för sem leiðsögumaður. Vegslóði
að Einarsstöðum lá um land hans.
Því þurfti að semja við Magnús um
varanlega legu vegarins að vænt-
anlegri orlofshúsabyggð. Reyndist
það auðsótt og afskaplega sann-
gjarn samningur gagnvart sam-
bandinu var gerður. Þetta var upp-
haf að löngu og farsælu samstarfi
Alþýðusambands Austurlands og
þeirra hjóna Magnúsar og Sigríðar,
sem tóku að sér umsjón með orlofs-
húsunum strax í byrjun samhliða
búrekstri sínum og þau störf ræktu
þau af einstakri lipurð og sam-
viskusemi.
Magnús var einstakt ljúfmenni
og var lipurð hans og hjálpsemi í
samskiptum við þá mörgu sem í or-
lofshúsunum dvöldu rómuð. Það að
fá Magnús til að hafa umsjón með
Einarsstöðum var mikils virði og
var lykillinn að því hve vel tókst til
með reksturinn í byrjun. Á þessum
árum tókst með fjölskyldu minni og
þeim hjónum einlæg vinátta sem
við og börn okkar nutum í ríkum
mæli. Heimsóknir í Úlfsstaði voru
margar og börnin sóttust eftir að
fara um helgar að Úlfsstöðum til
Magga og Siggu. Þar kynntust þau
sveitalífinu, sauðfé, hestum og hey-
skap. Meira að segja sauðburði og
árlegum réttum á Fagradal.
Kær vinur er nú kvaddur með
söknuði og þökk fyrir vináttu hans
og þær mörgu ánægjustundir sem
við áttum með honum í rúm 50 ár.
Við samhryggjumst Sigríði, ætt-
ingjum hans og öllum sem sakna
hans.
Árni Þormóðsson,
Guðrún Jónsdóttir.
Að leiðarlokum er mér einkar
ljúft að minnast góðs vinar, Magn-
úsar Sigurðssonar, fv. bónda á
Úlfsstöðum á Völlum. Lífshlaup
hans er að mörgu leyti einstakt og
áhugavert. Magnús var á 11. ári
þegar faðir hans lést frá eiginkonu
og sex ungum börnum. Má nærri
geta að einhvern tíma hafi hurð
skollið nærri hælum í afkomu fjöl-
skyldunnar. Þau börðust til bjarg-
álna, tvær dætur og fjórir drengir,
allt dugnaðarfólk. Með Magnúsi
eru nú öll Sauðhagasystkinin látin.
Fjölskyldan var þekkt af dugnði og
elju, sem sést á lífshlaupi hennar og
urðu bræðurnir góðir fjárbændur
svo eftir var tekið.
Þrátt fyrir föðurmissinn og erf-
iðleika áttaði Magnús sig á að
menntun skapaði mátt og ákvað að
ganga þann veg í leit að betri lífs-
afkomu. Hann nam við Bændskól-
ann á Hvanneyri og lauk búfræði-
prófi vorið 1949. Minntist hann
námsára með þakklæti. Þar eign-
aðist hann góða vini fyrir lífstíð.
Magnús vann um hríð hjá Hrafni á
Hallormsstað.
1950 kynntist hann yndislegri
siglfirskri blómarós, Sigríði Ólafs-
dóttur frá Siglufirði, sem nam við
Hallormsstaðaskóla. Þau giftu sig
19. apríl 1951. Búskap hófu þau
sem leiguliðar hjá séra Pétri í
Vallanesi og voru þar í níu ár. 1960
keyptu þau Úlfsstaði og hófu bú-
skap, fyrst með sauðfé og kýr og
síðar skógrækt og ferðaþjónustu.
Nú tóku við erilsöm ár. Magnús
varð fljótt virtur sauðfjárræktandi.
Úlfsstaðafé var afurðagott og hafa
yngri frændur hans af Sauðhaga-
ætt haldið merkinu uppi.
Magnús var að upplagi félags-
málamaður og því hlóðust á hann
trúnaðarstörf. Auk setu í sveitar-
stjórn var hann oddviti 1974-1982.
Á sumrin, 1960-70, sóttu þau Sigga
bæði vinnu í síld á Seyðisfjörð og
Reyðarfjörð og störf í sláturhúsum
KHB um langt árabil, og hann síð-
ustu árin sem kjötmatsmaður.
Unnið var að jarðarbótum og þegar
yfir lauk var ræktað land 28 ha.
Fjárstofn var á annað hundrað og
hross á annan tug þegar flest var.
Auk stækkunar íbúðarhúss 1960
byggðu þau fjárhús, hlöðu, véla-
geymslu, móttöku og þjónustuhús
auk sumarhúss á Úlfsstöðum. Já,
þar var mikið að gera í sveitinni. Að
þeim hjónum löðuðust mörg börn á
ýmsum aldri, sem dvöldu hjá þeim
við leik og störf á hverju sumri. Nú
tók við uppbygging og umsjá
sumarhúsahverfis í landi Eyjólfs-
staða og Úlfsstaðaskógi. Þau hættu
búskap 1989 og fluttu til Egils-
staða. Þar hafa þau notið ævi-
kvöldsins.
Magnús hafði góða nánd, sann-
gjarn, orðheldinn og trygglyndur,
en fastur fyrir, ef réttu máli var
hallað. Hann lét sig þjóðmál skipta
og hafði oft að vel athuguðu máli
skýrar skoðanir, var samvinnu- og
félagsmálamaður. Magnús var
myndarlegur maður og vörpulegur
að vallarsýn, samsvaraði sér vel,
gekk ákveðinn til verka og hraust-
ur vel á yngri árum. Hann var í
senn maður alvöru þegar þess
þurfti, en líka góðglettinn á gleði-
stundum.
Þau Sigga höfðu ánægju af að
ferðast innan lands sem utan, enda
áttu þau víða góða að. Nú er komið
að kveðjustund. Þeim sem þessar
línur ritar er kunnugt um að ýmsir
eiga Magnúsi mikið að þakka að
leiðarlokum.
Kæri vinur. Hugheilar þakkir
fyrir allt og hvíl í Guðs friði.
Jónas Hallgrímsson,
Úlfsstöðum.
Magnús Sigurðsson
Fleiri minningargreinar
um Magnús Sigurðsson bíða
birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.
Minningar