Morgunblaðið - 04.04.2018, Page 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það eru alltaf tveir möguleikar í
stöðunni. Vertu opin/n fyrir fjölbreytileika
lífsins. Gakktu ákveðin/n fram í að fá hlut-
ina á hreint.
20. apríl - 20. maí
Naut Leggðu áherslu á að umgangast að-
eins jákvætt fólk. Lífið er of stutt fyrir leið-
indi. Þú færð tilboð fljótlega sem setur
markmið þín í uppnám.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Velgengni þín stendur og fellur
með því hvernig þér tekst að nýta drauma
þína til að leysa vandamál. Ræktaðu þinn
innri mann.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Hæfileikar þínir til að rannsaka og
vinna erfiða nákvæmnisvinnu eru í há-
marki í dag. Leggðu allt kapp á að sýna
þínum nánustu þolinmæði, þeir eiga það
skilið.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú þarft að horfast í augu við vanda-
mál liðins tíma. Þú átt að vera í fyrsta
sæti í þínu lífi en hver hefur verið við stýr-
ið síðustu ár?
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þér er ráðlagt að þekkjast þau boð
sem þér berast í dag. Dagurinn hentar
mjög vel til skapandi breytinga í tengslum
við miðlun eða skemmtanabransann.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú getur haft þau áhrif sem þú vilt,
og ættir að notfæra þér það. Besta ráðið
er að gera lista yfir það sem helst má
missa sín og fara eftir honum.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Gerðu það upp við þig hvaða
markmiðum þú vilt ná og hvernig þú ætlar
að fara að því. Reyndu að sjá hlutina með
augum barnsins.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Í störfum þínum ert þú yngra
fólkinu fyrirmynd og getur miðlað mörgu
af reynslu þinni. Vertu skilningsrík/ur og
hlustaðu vandlega á sjónarmið annarra.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Finndu út hvar þú best getur
komið skoðunum þínum á framfæri því þú
vilt að hlustað sé á þig. Mótlæti er til þess
að sigrast á.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Láttu ekki endalaust undan
þeim kröfum sem aðrir gera til þín því þú
átt þinn rétt eins og aðrir. Kurteisi kostar
ekki neitt.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Gerðu þér ekki of miklar vonir því
þá verða vonbrigðin ekki eins mikil ef hlut-
irnir ganga ekki upp. Þú tryggir ekki eftir
á, athugaðu það í tíma.
Á skyggni hótelsins WaldorfAstoria á Manhattan stendur
styttan Afrekshugur eftir Nínu
Sæmundsson. Árið 1926 var haldin
listaverkasamkeppni og var Nína
hlutskörpust um 400 listamanna,
sem sendu inn tillögur. Þegar hótelið
var opnað árið 1931 stóð listaverkið á
skyggninu og stendur þar enn.
x x x
Þegar Víkverji fór fyrst með for-eldrum sínum til New York var
sérstaklega farið að hótelinu til að
skoða styttuna eftir Nínu, svo
merkilegt þótti að verk listakon-
unnar úr Fljótshlíðinni skyldi standa
á hóteli, sem þótti í fremstu röð í
heimsborginni, ef ekki í heiminum.
Nokkrum áratugum síðar fór Vík-
verji þangað með sín börn að sýna
þeim verkið.
x x x
Þetta rifjaðist upp fyrir Víkverjaþegar hann horfði á kvikmynd-
ina Scent of a Woman með Al Pacino
í sjónvarpinu ekki alls fyrir löngu.
Pacino leikur þar geðstirðan, blind-
an herforingja, sem dregur ungan
mann, sem á að gæta hans, til New
York. Þegar þeir nema staðar fyrir
utan Waldorf Astoria blasir skyggn-
ið og verkið Afrekshugur við og her-
foringinn segir: „Hér blasir við þér
miðpunktur alls þess sem telst sið-
menning.“
x x x
Hótelið hefur komið fyrir í fjöldakvikmynda og þar hefur margt
þekkt fólk dvalið, allt frá Marilyn
Monroe, sem bjó þar í nokkra mán-
uði, til Franks Sinatra, sem greiddi
milljón dollara á ári fyrir að hafa
svítu á leigu frá 1979 til 1988. Her-
bert Hoover bjó þar í rúm 30 ár frá
því hann lét af embætti forseta
Bandaríkjanna til dauðadags 1964.
x x x
Styttan Afrekshugur er af konu,sem stendur á tám, horfir hnar-
reist til himins og er við það að taka
til flugs með vængjuðum höndum. Í
fyrra var greint frá því að yfirvöld á
Hvolsvelli hygðust fá að taka mót af
styttunni og reisa eftirmynd hennar
í miðjum bænum í minningu lista-
mannsins. vikverji@mbl.is
Víkverji
Ég er dyrnar. Sá sem kemur inn um
mig mun frelsast og hann mun ganga
inn og út og finna haga.
(Jóh: 10.9)
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
MOVIE STAR
hvíldarstóll
Verð frá 398.000,-
Guðmundur Arnfinnsson orti ápáskadag:
Páskasól á himni hlær.
Hátíð lífs nú fagna ber.
Frjó að vori foldin grær,
fagur jarðarblóminn er.
Sonur Guðs leið kvöl og kross,
kröm og dauða yfirvann.
Hann er sól og sigurhnoss,
sorgarmyrkri eyða kann.
Daginn áður orti hann:
Ljómar sól um borg og bí,
blóm á hóli skarta,
bláa kjólinn klæðist í
kæra fjólan bjarta.
Og í framhaldi af því rifjaði
Magnús Halldórsson upp að einu
sinni hefði þessi fyrripartur verið
lagður fyrir hagyrðinga
Sólin hlý um borg og bí,
brosir skýin gegnum.
Guðmundur var vel með á nót-
unum:
„Falleg pía engu í
er á kvíaveggnum.
Eða eins og Guðmundur Sigurðs-
son botnaði:
Við sína píu Syngman Rí
söng á Kvíaveggnum.
Man eftir þáttunum hans Sveins
Ásgeirssonar, sem voru gersemi.
Takk, Magnús, fyrir að minna á
þetta.
Hallmundur Guðmundsson birti á
Boðnarmiði fallega vetrarmynd
tekna á annan í páskum þar sem
trjágreinarnar svignuðu undan ný-
föllnum snjónum:
Þunn og hrein er þekjan hvíta,
þekur slétta velli stráa.
Í vetrarlok er vænt að nýta
vendilega greinar trjáa.
Og þann hinn sama dag yrkir
Sigmundur Benediktsson um
„Páskahret“:
Enn er vetur, vissa sú
vanans metur kynni.
Páskahretið hefur nú
hampað getu sinni.
Sér til dundurs færir föl
frost með stundar kalda,
korn á grundu, klökknar möl,
kramt mun undan halda.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Páskasól, vetrarmynd
og vitur kisa
„HANN TALAÐI BARA UM ÍÞRÓTTIR OG
MILLIRÍKJADEILUR. ÉG GAT LIFAÐ MEÐ
ÍÞRÓTTUNUM EN EKKI DEILUNUM.“
„GÆTIRÐU HAFT MEIRA HLJÓÐ!“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að halda mörgum
boltum á lofti á sama
tíma.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
„KÆRA SPYRJUM HUNDINN: EF
ÞÚ GÆTIR VERIÐ DÝR, HVAÐA
DÝR MYNDIRÐU VERA?“
HÉRNA ER VÍSBENDING…
ÞÚ ERT ÞEGAR EITT
ÞEIRRA
ÉG HEFÐI GETAÐ GIFST
ALLA AUÐKÝFINGI!
EN ÉG
GIFTIST ÞÉR Í
STAÐINN!
EKKI ÁLASA SJÁLFRI ÞÉR! VIÐ LENDUM
ÖLL Í ÞVÍ AÐ HAFA NÆSTUM ÞVÍ GERT
MISTÖK!