Morgunblaðið - 04.04.2018, Blaðsíða 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 2018
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Alþjóðleg barnakvikmyndahátíð í
Reykjavík hefst á morgun í Bíó
Paradís og er hún nú haldin í fimmta
sinn. Hátíðin stendur yfir í 11 daga
og að vanda verður fjöldi kvik-
mynda á dagskrá, bæði leikinna og
teiknimynda fyrir börn og unglinga
og þar af fjórar
talsettar á ís-
lensku. Ein
þeirra, Doktor
Proktor og tíma-
baðkarið, byggð
á samnefndri
barnabók Jos
Nesbø, er opn-
unarmynd hátíð-
arinnar og verð-
ur hún sýnd á
morgun kl. 17.30.
Frítt er inn á þá sýningu og allir vel-
komnir á opnun hátíðarinnar sem
hefst kl. 17 með því að Vísinda-Villi
tekur á móti börnum og sýnir listir
sínar.
Spratt út frá fræðslu
„Þessi hátíð sprettur út frá kvik-
myndafræðslu fyrir öll skólastig,“
segir Ása Baldursdóttir, dagskrár-
stjóri í Bíó Paradís. „Frá upphafi
þegar fagfélög í kvikmyndagerð
stofnuðu Bíó Paradís höfum við boð-
ið upp á kvikmyndafræðslu fyrir öll
skólastig með viðurkenndum kvik-
myndafræðingi sem hefur réttindi
og leyfi til að kenna öllum skólastig-
um,“ segir hún en sá fræðingur er
Oddný Sen. Ása segir fræðsluna
hafa verið í formi kvikyndalæsis og
þematengdra verkefna. „En það er
eitt að vera með fræðslu, horfa á
kvikmynd og gera verkefni og ann-
að að halda hátíð. Kvikmyndahátíð
er fyrirbæri sem við erum mjög
ánægð með að geta kynnt börnum
og unglingum,“ segir Ása og að há-
tíðin sé fyrsta og eina alþjóðlega
barnakvikmyndahátíðin á Íslandi.
Ása segir að á hátíðinni í ár verði í
fyrsta sinn frumsýnd ný íslensk
kvikmynd í fullri lengd, Adam eftir
leikstjórann og handritshöfundinn
Maríu Sólrúnu. Adam verður loka-
mynd hátíðarinnar, sýnd 14. apríl kl.
19. Sögusvið hennar er listamanna-
hverfið Neukölln í Berlín, þar býr
hinn tvítugi Adam sem er heyrnar-
laus og stendur frammi fyrir erfið-
ustu ákvörðun lífs síns þegar móðir
hans, sem þjáist af elliglöpum, biður
hann um að hjálpa sér að deyja. Hún
kýs heldur dauðann en að vera lögð
inn á stofnun. María Sólrún leik-
stýrði myndinni, skrifaði handrit
hennar og framleiddi einnig með
Jim Stark og syni sínum Magnúsi
Maríusyni sem jafnframt leikur
Adam í myndinni.
Ása segir að María og Magnús
verði viðstödd sýninguna en Magnús
kemur hingað til lands frá Finnlandi
þar sem hann þjónar í hernum.
Myndin fer svo í almennar sýningar í
Bíó Paradís í kjölfarið.
Engir innlendir sjóðir
Blaðamanni þykir áhugavert
hversu margar kvikmynda hátíð-
arinnar hafa verið talsettar á ís-
lensku, fjórar talsins, og segir Ása
þær aldrei hafa verið svo margar áð-
ur. „Ég hef sérstaklega bent á að á
Íslandi eru engir innlendir sjóðir að
sækja í þegar kemur að talsetningu
barnakvikmynda. Við höfum þess
vegna ekki getað talsett eins mikið af
efni en við erum að vinna með nor-
ræna kvikmynda- og sjónvarps-
sjóðnum, Nordisk Film & TV Fond,
og þar af leiðandi fáum við smá-
styrki, auðvitað ekki fullnægjandi
styrki en þeir eru smástuðningur við
norsku myndirnar í ár,“ segir Ása og
á þar við Doktor Proktor og tíma-
baðkarið og Doktor Proktor og
prumpuduftið. Hinar tvær mynd-
irnar sem hafa verið talsettar eru
þýskar teiknimyndir ætlaðar yngri
börnum en þær fyrrnefndu, Krummi
klóki og Grænuvellir – sjúklegt
svínarí.
Spurning um aðgengi
Ása segir talsetningu kvikmynda
fyrir börn afar mikilvægt málefni
þar sem íslenskan sé á undanhaldi en
kostnaðurinn við talsetningar sé hár.
„Það kostar háar fjárhæðir að tal-
setja heila kvikmynd og þess vegna
skorum við á yfirvöld í þessu landi að
fara yfir þessi mál,“ segir hún.
– Það hefur sárlega vantað tal-
setningu á leiknum kvikmyndum
fyrir börn …
„Já og þetta er ekki bara okkar
einkamál heldur aðgengismál fyrir
börn á Íslandi,“ svarar Ása. Hún
segir auðvitað ekki hægt að talsetja
allar kvikmyndir sem sýndar eru á
barnakvikmyndahátíðum en þó
megi alltaf gera betur.
Annað vandamál sé svo aðgengi
að íslenskum kvikmyndum og þá
ekki bara barna- og unglingamynd-
um. „Þær eru oft ekki til á sýningar-
hæfu formi og okkur langar kannski
að sýna Benjamín dúfu eða Pappírs-
Pésa og það er bara ekki hægt þar
sem eintökin eru ekki til. Þetta er
líka stórt mál og ekki bara fyrir okk-
ur heldur alla þjóðina. Þetta er þjóð-
Veglegasta hátíðin hingað til
Alþjóðleg barnakvikmyndahátíð í Reykjavík haldin í fimmta sinn 5. -15. apríl Fjórar kvikmyndir
talsettar á íslensku verða á hátíðardagskránni Lokamynd hátíðarinnar verður hin íslenska Adam
Ása
Baldursdóttir
Tímaflakk Úr Doktor Proktor og Tímabaðkarinu, opnunarmynd Alþjóðlegrar barnakvikmyndahátíðar í Reykjavík sem sett verður í Bíó Paradís á morgun.
Flautuleikarinn Averil Williams lést
á 89. aldursári í London 25. mars eft-
ir stutt veikindi. Hún fæddist í sömu
borg 12. nóvember 1939 og nam
flautuleik við Konunglega tónlistar-
háskólann í London, The Royal Coll-
ege of Music, þar sem margir ís-
lenskir tónlistarnemar hafa stundað
nám. Hún var ráðin 1. flautuleikari
við Sinfóníuhljómsveit Íslands að-
eins 22 ára að aldri og starfaði við
hljómsveitina í þrjú ár.
Williams lék einleikskonserta með
hljómsveitinni, kenndi í Tónlistar-
skólanum í Reykjavík og tók virkan
þátt í tónlistarlífi borgarinnar. M.a.
beitti hún sér mjög fyrir flutningi
samtímatónlistar á vegum Musica
Nova þar sem ný kynslóð tónskálda
og flytjenda, þ.á m. Þorkell Sigur-
björnsson, Atli Heimir Sveinsson og
Gunnar Egilsson, voru í framvarða-
sveit ásamt mörgum öðrum. Reynsla
hennar á Íslandi kom sér vel þegar
hún sneri til baka til London og hún
gekk til liðs við samtímatónlistar-
hópa á borð við The London Sinfon-
ietta og The Nash Ensemble og
starfaði einnig um þrjátíu ára skeið
við BBC-sinfóníuhljómsveitina.
Williams tók þátt í fyrstu upp-
færslunni á Jesus Christ Superstar í
London og var leiðandi flautuleikari
hjá Ballet Rambert og London Festi-
val Ballet. Hún var einnig ráðin pró-
fessor við tónlistardeildina í The
Guildhall School of Music and
Drama á þessum tíma og starfaði
þar um áratugi allt fram að síðasta
ári. Nemendur hennar starfa um all-
an heim, þar á meðal á Íslandi.
Árið 1980 byrjaði Williams að
vinna við músíkþerapíu og menntaði
sig einnig í sálfræði og sálgreiningu
og sameinaði þessar greinar tónlist-
inni sem gerði hana að eftirsóttum
fyrirlesara og kennara. Tengsl
hennar við Ísland voru ætíð mikil og
minnist samferðafólk hennar með
virðingu fyrir þátt hennar í upp-
byggingu tónlistarlífs landsins.
Uppbygging Averil Williams starf-
aði sem 1. flautuleikari við Sinfóníu-
hljómsveit Íslands í um þrjú ár.
Flautuleikarinn Averil
Williams er fallin frá