Morgunblaðið - 04.04.2018, Page 36
Þýski píanóleikarinn Maria Baptist
og saxófónleikarinn Sigurður Flosa-
son sameina krafta sína og leika eig-
in tónlist hjá Múlanum á Björtu-
loftum Hörpu í kvöld kl. 21. Baptist er
alþjóðlega þekkt sem höfundur stór-
sveitatónlistar, stjórnandi og píanó-
leikari, en sem slík hefur hún meðal
annars stjórnað Stórsveit
Reykjavíkur. Hún er pró-
fessor við Hans Eisler-
háskólann í Berlín. Með
þeim Sigurði leika Þor-
grímur Jónsson á bassa
og Erik Qvick á trommur.
Kvartett Baptist og
Sigurðar á Múlanum
MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 94. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. 80 spor saumuð í andlit barnsins
2. Það eina ábyrga að lóga hundinum
3. Áverkar á líki mannsins
4. Hross með úr sér vaxna hófa
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Æskuvinir leiklesnir
Leikhúslistakonur 50+ standa nú
um stundir fyrir leiklestrum á verkum
Svövu Jakobs í Hannesarholti. Í kvöld
kl. 20 er komið að Æskuvinum sem
leiklesnir verða undir stjórn Maríu
Kristjánsdóttur. Lesturinn verður
endurtekinn sunnudaginn 8. apríl kl.
16. Um lesturinn sjá Arnar Jónsson,
Guðrún S. Gísladóttir, Jakob S. Jóns-
son, Sigurður Skúlason og Jörundur
Ragnarsson. Leikritið var frumflutt
hjá Leikfélagi Reykjavíkur 1976 í leik-
stjórn Bríetar Héðinsdóttur. Svava
sagðist í viðtali vera að reyna að lýsa
stöðu konunnar í hinu volduga karla-
samfélagi.
Geðfræðslu-
félagið Hugrún
stendur fyrir
styrktartónleikum
á Kex hosteli ann-
að kvöld kl. 20.30.
Þar koma fram
Friðrik Dór, Árný,
Soffía Björg og
Atli Jasonarson auk þess sem DJ
Dóra Júlía þeytir skífum, en Karen
Björg er kynnir. Miðar eru seldir á
midi.is og við innganginn og rennur
allur ágóðinn til starfsemi Hugrúnar.
Til styrktar Hugrúnu
Á fimmtudag Minnkandi norðaustlæg átt og dálítil él fyrir norðan
í fyrstu, annars víða þurrt og jafnvel bjart. Líkur á snjókomu syðst
um kvöldið. Hiti um og undir frostmarki, en upp í 6 stig með suður-
og suðvesturströndinni að deginum.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðlæg átt, 8-18 m/s og él, hvassast suð-
austan- og austantil í kvöld, en léttskýjað syðra. Hlýnar lítillega.
VEÐUR
Íslandsmeistarar Fram
unnu nokkuð öruggan sigur
á ÍBV í fyrsta leik liðanna í
undanúrslitum Olís-deildar
kvenna í handbolta í Safa-
mýri í gær. Fram var 17:13
yfir eftir fyrri hálfleik og
ÍBV minnkaði muninn tví-
vegis niður í tvö mörk í
þeim seinni, en komst ekki
nær. Ragnheiður Júlíus-
dóttir skoraði sjö mörk
fyrir Fram, öll í fyrri hálf-
leik. »3
Meistararnir byrja
einvígið betur
„Úrslitakeppnin fer aftur af stað
núna í kvöld eftir páskafrí. Þetta
hraðmót sem úrslitakeppnin er er
einn flottasti og stærsti íþrótta-
viðburður sem fer fram hér á landi,“
skrifar Benedikt Guðmundsson, sér-
fræðingur Morgunblaðsins, í
yfirlitsgrein sinni um úr-
slitakeppnina. »4
Einn flottasti og stærsti
íþróttaviðburðurinn
Cristiano Ronaldo heillaði knatt-
spyrnuáhugamenn um allan heim
með frammistöðu sinni gegn Juven-
tus í Meistaradeild Evrópu í gær þar
sem hann skoraði meðal annars úr
frábærri hjólhestaspyrnu framhjá Gi-
anluigi Buffon. Ronaldo gerði tvö
mörk í 3:0-útisigri Real Madrid sem
virðist svo gott sem hafa gert út um
einvígið. »4
Óstöðvandi Ronaldo
gerði út um einvígið
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Eftir að hafa snúið þyrilsnældum í gríð og
erg og búið til slím í tonnavís eru börnin
okkar farin að dansa heldur óvenjulegan
dans sem mörgum þykir erfitt að leika eftir.
Svokallaður floss-dans á uppruna sinn hjá
bandarískum unglingi sem setti þessa dans-
hreyfingu inn á samfélagsmiðil og síðan hef-
ur hún náð heimsyfirráðum.
Dansinn er ýmist kallaður floss- eða
backpack kid-dansinn og snýst um að
standa kyrr með grafalvarlegan svip og
sveifla höndunum stífum í kringum sig á
meðan mjöðmunum er hnykkt hratt til og
frá. Virðist auðvelt en er það ekki ef vel á að
vera og gera.
Geta ekki verið kyrr
Birna Björnsdóttir hjá Dansskóla Birnu
Björns hefur ekki farið varhluta af þessu
dansæði, bæði í dansskólanum og heima.
„Öll börn í dansskólanum gera þetta í
öðru hverju spori þegar þau ganga inn í
skólann. Þó að þau standi og tali við mann
gera þau þetta allan tímann og ég er farin
að gera þetta sjálf á meðan ég tala við þau.
Þetta er ferlega skemmtilegt. Sonur minn,
sem er ekki í dansi heldur fótboltastrákur,
getur ekki verið kyrr heldur gerir þetta all-
an tímann líka. Það þarf ekki að vera tónlist
undir heldur gera þau þetta ósjálfrátt.“
Birna segir foreldra stundum biðja sig
um að kenna sér dansinn en að þeir séu
miklu lengur að ná honum en börnin. „Þetta
virðist vera einfalt en getur verið mjög flók-
ið líka. Þetta er rosalega skemmtileg hreyf-
ing og gaman að sjá krakkana keppa um
hversu hratt þau geta dansað án þess að
ruglast. Dansinn er fínn fyrir mjaðmirnar
og bakið og góð samhæfing.“
Spurð hvort hún muni eftir einhverju
svipuðu segir Birna þetta ekki ólíkt því
þegar hipphoppið var að koma og allir voru
að reyna að gera The Running Man eða
ákveðnar hreyfingar eins og orminn
þegar breikið var sem vinsælast.
Einnig megi líkja þessu við moon-
walk sem Micheal Jackson kom á
kortið.
Börnin dansa floss ósjálfrátt
Vinsæll dans
Ekki svo ólíkt
moonwalk-æðinu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Floss-dans Dansararnir standa kyrrir með grafalvarlegan svip og sveifla höndunum stífum í kringum sig á
meðan mjöðmunum er hnykkt hratt til og frá, eins og þessir dansarar í Dansskóla Birnu Björns gera.
Bakpokabarnið (Backpack Kid) Russell Horning er
fæddur 19. desember 2001 í Lawrenceville í
Georgíu-ríki í Bandaríkjunum. Hann vakti
fyrst athygli á samfélagsmiðlum í janúar
2016 þegar hann birti myndband af sér
á Instragram að dansa floss-dansinn í
herberginu sínu. Horning er slánalegur
og grafalvarlegur á svipinn á meðan
hann sveiflar stífum handleggjunum
hratt um mjaðmirnar. Þetta myndband
varð til þess að tónlistarkonan
Katy Perry fékk hann til að
dansa með sér þegar hún flutti
lagið „Swish Swish“ í sjón-
varpsþættinum Saturday
Night Live á liðnu vori.
Horning stal sviðsljósinu og Perry fékk hann til að
dansa í myndbandi sem var gert við lagið.
Horning er bæði á Instagram og Youtube sem
The Backpack Kid en hann fékk það viðurnefni
eftir að hann tók upp á því að dansa alltaf með
bakpoka. Hann hefur sett inn myndbönd á Insta-
gram frá árinu 2014 og er nú kominn með 1,6
milljónir fylgjenda.
Dansinn vakti heimsathygli síðasta haust þegar
nokkrir leikmenn ameríska fótboltans í NFL-
deildinni gerðu floss-danshreyfinguna eftir að
hafa skorað mark. Um svipað leyti fór dansinn
fyrst að sjást hér á landi. Horning hefur hlotið
frægð og frama og er nú í fullri vinnu við að
mæta á allskonar samkomur til að dansa og sýna
sig.
Grafalvarlegur dansandi sláni
BAKPOKABARNIÐ HLAUT SKJÓTA FRÆGÐ FYRIR DANSINN
Russell
Horning