Morgunblaðið - 29.05.2018, Blaðsíða 4
KANNANIR
Skapti Hallgrímsson
skapti@mbl.is
Skoðanakannanir í aðdraganda
sveitarstjórnarkosninganna á laug-
ardaginn voru nokkuð mismunandi
varðandi útkomuna í höfuðborginni.
Könnun Gallup sem birt var daginn
fyrir kjördag var rétt um fylgi
stærstu flokkanna, Sjálfstæðis-
flokks og Samfylkingar, en gerði
ekki ráð fyrir að Sósíalistaflokkur-
inn næði inn manni. Könnun Fé-
lagsvísindastofnunar fyrir Morgun-
blaðið, sem birtist á miðvikudegi,
gerði ráð fyrir að Samfylkingin
fengi átta borgarfulltrúa en Sjálf-
stæðisflokkurinn sjö. Útkoman var
á hinn veginn. Niðurstöður Fé-
lagsvísindastofnunar sýndu hins
vegar að Sósíalistaflokkurinn fengi
borgarfulltrúa, sem varð raunin.
Ýmsar mögulegar ástæður
Könnun Félagsvísindastofnunar
var gerð 17. til 21. maí en Gallup
gerði könnun 22. til 25. maí. Því má
jafnvel spyrja hvort fólki hafi hrein-
lega snúist hugur varðandi stóru
flokkana tvo á lokasprettinum.
„Skekkjan var stór í okkar könn-
un varðandi stærstu flokkana. Ég á
eftir að skoða hvers vegna það var
en eins og venjulega gæti það verið
blanda af ýmsum ástæðum. Við
leggjumst yfir það en það kemur í
raun ekki í ljós fyrr en við gerum
aðra könnun hvort fólki hafi snúist
hugur á síðustu stundu eða hvað,“
sagði Hafsteinn Einarsson, verk-
efnastjóri hjá Félagsvísindastofnun,
við Morgunblaðið í gær.
Hafsteinn segist nú þegar hafa
nokkrar tilgátur um ástæður þess
að munur var á könnunum og kosn-
ingaúrslitum.
„Kjörsókn getur haft áhrif því
mjög mikill munur var á fylgi eftir
borgarhlutum. Hafi kjörsókn til
dæmis verið meiri í úthverfum og á
meðal eldri kjósenda gæti það skýrt
útkomuna að hluta, svo ég nefni
dæmi.“
Könnun Félagsvísindastofnunar
var gerð hvítasunnuhelgina; frá
fimmtudegi 17. til mánudags 21.
maí. „Eftir á að hyggja var það ef
til vil ekki mjög heppilegur tími.
Þeir sem eru sítengdir, með tölvu-
póstinn í símanum, hafa átt auð-
veldara með að taka þátt en aðrir
og við þurfum að skoða hvort við
hefðum þurft að taka sérstakt tillit
til þess.“
Hafsteinn bendir á að þátttöku-
hlutfallið hafi verið óvenju slakt.
Hann bendir á góða könnun Gallup
daginn fyrir kosningar, hvað varðar
stærstu flokkana, sem bendi til þess
að gott sé að blanda saman net- og
símakönnunum. „Það er spurning
hvort við þurfum að hugsa um það.
Undanfarið hafa netkannanir bent
til aðeins meira fylgis á vinstri
vængnum en raunin varð, en könn-
un Gallup var nær því sem Sjálf-
stæðisflokkurinn og Samfylkingin
fengu en spáði Pírötum meira fylgi
en raun bar vitni. Fréttablaðið gerði
hins vegar símakönnun sem var
svipuð okkar könnun hvað fylgi
varðar og gerð á sama tíma og
könnun Gallup, svo þetta er ekki
einhlít skýring,“ segir Hafsteinn.
„Við gerðum ráð fyrir að hlutirnir
myndu breytast alveg á lokametr-
unum en þó var sveiflan meiri en
hægt var að segja til um.“
Hafsteinn segir hugsanlegt að
góð frammistaða á lokasprettinum,
t.d. í umræðuþætti, hafi þau áhrif
að fólk sé líklegra til að kjósa flokk
og líklegra til að mæta á kjörstað.
Að sama skapi þurfi að standa sig
vel á lokasprettinum til að fólk leiti
ekki annað. „Við vitum að allt að
fjórðungur fólks ákveður sig á kjör-
dag í alþingiskosningum, þannig að
það er vel hugsanlegt að einhverjir
hafi skipt um skoðun á síðustu dög-
um,“ segir Hafsteinn Einarsson.
„Okkur tókst vel til með að kanna
fylgi flokkanna og hittum naglann á
höfuðið að meirihlutinn í borginni
félli. Meðalfrávik Gallup var mjög
lítið eða aðeins um 1,4% meðal
þeirra flokka sem komust í borg-
arstjórn og telst mjög gott miðað
við kannanir almennt í kringum
kosningar,“ segir Ólafur Elínarson,
sviðsstjóri markaðsrannsókna hjá
Gallup, í samtali við Morgunblaðið.
Samkvæmt könnun Gallup, sem
var gerð 22.-25. maí og birt daginn
fyrir kosningar, var fylgi Samfylk-
ingar 25,98% atkvæða í Reykjavík
en raunin var sú að aðeins munaði
0,1 prósenti; flokkurinn fékk
25,88%.
Ánægjulegt
Aðrir kannanir mældu fylgi Sam-
fylkingar um 32% atkvæða, um sex
prósentustigum meira en flokkurinn
fékk. Könnun Gallup sýndi að Sjálf-
stæðisflokkurinn fengi 28,31% en
hann hlaut 30,77%. „Það er innan
vikmarka,“ segir Ólafur. Gallup
spáði því að Viðreisn fengi 8,74% en
raunin varð sú að flokkurinn fékk
8,16%. „Það er ánægjulegt, þar sem
við vorum með könnun talsvert
ólíka þeim sem höfðu birst dagana á
undan, að hafa náð að kanna hug
kjósenda rétt og komið skoðunum
þeirra á framfæri,“ segir Ólafur.
Gallup mældi hins vegar að Sósí-
alistaflokkurinn næði ekki inn borg-
arfulltrúa þrátt fyrir að vera meðal
átta efstu flokkanna. Ólafur bendir
á að við alþingiskosningarnar 2016
hafi 30% ákveðið sig á kjördag. „Við
reynum að áætla, kanna og leggja
mat á skoðanir fólks, en það er erf-
itt þegar þriðjungur ákveður sig í
kjörklefanum.“ Könnun Gallup stóð
yfir frá 22. til 25. ágúst.
„Kannanir sýna að mikið sé horft
á lokaþátt með oddvitum framboð-
anna í sjónvarpi kvöldið fyrir kjör-
dag. Leiða má líkum að því að
frammistaða oddvita Sósíalista-
flokksins þar hafi haft jákvæð áhrif
á lokatölur,“ segir Ólafur.
Snerist fólki hugur síðustu dagana?
Könnun Gallup var mjög nálægt gengi stærstu flokkanna í höfuðborginni Skekkja var í könnun
Félagsvísindastofnunar varðandi stóru flokkana en hún var hin vegar rétt varðandi Sósíalistaflokkinn
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Kjördagur Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti Viðreisnar í Reykjavík kýs.
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 2018
TANGARHÖFÐA 13
VÉLAVERKSTÆÐIÐ
kistufell.com
Það er um 80% ódýrara að
skipta um tímareim miðað við
þann kostnað og óþægindi
sem verða ef hún slitnar
Hver er staðan á tíma-
reiminni í bílnum þínum?
Hringdu og pantaðu
tíma í síma
577 1313
Borgarfulltrúum var fjölgað í þessum kosningum úr 15 í 23. Hefðu þeir ver-
ið jafnmargir áfram væri enn flóknara að mynda meirihluta en raunin er.
Sjálfstæðisflokkurinn hefði fengið sex borgarfulltrúa, Samfylkingin fimm
og Píratar, Miðflokkurinn, Viðreisn og Sósíalistaflokkurinn einn hver. Hvorki
VG né Flokkur fólksins hefðu hins vegar komið að manni.
„Þótt Viðreisn hefði farið með núverandi meirihluta hefði það ekki verið
nóg miðað við 15 borgarfulltrúa. Eins og staðan er núna dugir það hins veg-
ar,“ sagði Hafsteinn Einarsson hjá Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands.
Hefði verið flóknara
að mynda meirihluta
HVAÐ EF BORGARFULLTRÚUM HEFÐI EKKI VERIÐ FJÖLGAÐ?
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
Sjálfstæðiflokkinn í Vestmannaeyj-
um vantaði fimm atkvæði til þess
að halda meirihluta. Erfiðlega gekk
að koma utankjörfundaratkvæðum
til Eyja á kjördag þar sem ekki var
flogið þangað og Herjólfur sigldi
frá Þorlákshöfn. Fjögur atkvæði
voru send landleiðina til Þorláks-
hafnar og sótt þangað á báti. At-
kvæðin komu á kjörstað 20 sek-
úndum eftir lokun. Ekki var tekið
við atkvæðunum og þau hefðu ekki
breytt úrslitum kosninganna.
Í lögum um kosningar til sveitar-
stjórna segir að kjörstaði skuli að
öllu jöfnu opna kl. 10 og þeir eigi að
vera opnir í a.m.k. 8 klst. og það sé
í höndum yfirkjörstjórna að auglýsa
hvenær þeir séu opnir.
Ræddi slæma veðurspá
Jóhann Pétursson, formaður yfir-
kjörstjórnar Vestmannaeyjabæjar,
segir að hann hafi farið yfir það
með fulltrúum allra framboða í Eyj-
um að veðurspá benti til þess að
erfitt gæti reynst að koma utan-
kjörfundaratkvæðum til Eyja í
tæka tíð og að kjörstöðum yrði lok-
að kl. 22.00.
„Það gerði enginn athugasemd
við það. Kjörstaður var opnaður kl.
09.00 Ég fór út samkvæmt hefð og
tilkynnti það og lokaði kl. 22.00 eft-
ir að hafa kallað fyrst að kjörfundi
væri að ljúka og síðar að honum
væri lokið,“ segir Jóhann og bætir
við að við opnun og lokun hafi sím-
ar verið samræmdir til þess að
gæta þess að opna og loka á hár-
réttum tíma.
Er klukkan 22 til kl. 22.01?
„Sumir vilja halda því fram að
klukkan sé enn 22 þar til 22.01, en í
mínum huga er kjörstað lokað þeg-
ar klukkan slær 22.00. Utankjör-
fundaratkvæði þurfa að hafa borist
í kjördeild fyrir lokun og kjósendur
á kjörstað þurfa að vera mættir á
staðinn fyrir lokun og geta greitt
atkvæði nokkrum sekúndum eða
mínútum síðar,“ segir Jóhann sem
segir að huga mætti að breytingum
á lögum sem heimili að hafa kjör-
staði opna lengur þegar veður
hamli samgöngum á kjörstað.
Í Reykjavík eru símar starfs-
manna sem sjá um opnun og lokun
samræmdir þannig að klukkur í
þeim séu nákvæmlega á sama tíma.
Það sama á við um Akureyri og
Hafnarfjörð.
Fyrstu tölur úr Hafnarfirði
Hafnarfjörður var fyrstur að
birta tölur á kosninganótt aðeins 30
mínútum eftir að kjörstað var lok-
að.
,,Við flokkum og undirbúum vel
fyrir talningu og setjum saman í
teygju 50 atkvæði hvers framboðs
Það sést að sjálfsögðu ekki hvaða
framboð á hvern bunka, en þetta
flýtir fyrir birtingu fyrstu talna,“
segir Þórdís Bjarnadóttir, formaður
yfirkjörstjórnar í Hafnarfirði.
Sekúndur skipta máli
Kjörstöðum lokað á mínútunni 22.00 4 atkvæði komu 20
sekúndum of seint Hafnarfjörður skilaði fyrstur tölum
Morgunblaðið/Eggert
Kjörstaður Það er öruggara að kjósa tímanlega í utankjörfundaratkvæða-
greiðslu ef veðurspáin er ekki góð. Það sýndi sig best á laugardaginn.
Bæjarfulltrúar Framsóknarflokks-
ins og Sjálfstæðisflokksins hafa
ákveðið að endurnýja samstarfs-
samning um stjórnun Sveitarfé-
lagsins Skagafjarðar næstu fjögur
árin. Jafnframt hefur Ásta Pálma-
dóttir, sveitarstjóri síðustu átta árin,
lýst því yfir að hún gefi ekki kost á
sér til áframhaldandi starfa. Verður
því auglýst eftir nýjum sveitar-
stjóra.
Framsóknarflokkurinn fékk
hreinan meirihluta í bæjarstjórn í
kosningunum fyrir fjórum árum en
eigi að síður var ákveðið að semja
við Sjálfstæðis-
flokkinn um sam-
starf. Báðir flokk-
arnir töpuðu fylgi
í kosningunum nú
og Framsókn
tapaði tveimur
bæjarfulltrúum.
Flokkarnir hafa
enn meirihluta en
buðu Byggðalist-
anum, nýju fram-
boði sem fékk tvo fulltrúa kjörna, að
taka þátt í samstarfinu en því boði
var hafnað. helgi@mbl.is
Samstarf í Skagafirði
Ásta hættir sem sveitarstjóri
Ásta
Pálmadóttir
ÚRSLIT SVEITARSTJÓRNARKOSNINGA 2018