Morgunblaðið - 29.05.2018, Blaðsíða 26
Í sól og hita í Noregi
Inga Þóra Geirlaugsdóttir, markþjálfi og sérkennari, á 70 ára af-mæli í dag. Hún starfaði við sérkennslu og síðan í átta ár semsérkennsluráðgjafi við Þjónustumiðstöð Breiðholts. Þegar Inga
hætti þar fór hún að læra markþjálfun og hefur starfað sjálfstætt við
það síðan.
„Ég hef aðallega verið að vinna við einn framhaldsskóla í borginni í
samráði við námsráðgjafa þar. Markþjálfun er allt annars eðlis en
kennsluráðgjöf. Þegar ég var í sérkennslunni þá var ég að gefa ráð en
ég gef engin ráð sem markþjálfi. Í markþjálfun er ákveðinni samtals-
tækni beitt þar sem virk hlustun, kröftugar spurningar og markmiðs-
setning eru í aðalhlutverki. Síðan á sá sem kemur í markþjálfun að
uppgötva sjálfur hvaða leið er best fyrir hann að fara að því markmiði
sem hann vill ná. Í lokin gerir hann aðgerðaáætlun um hvað þarf að
gera til að ná markmiðinu.“
Inga hélt upp á afmælið sitt á sunnudaginn í Noregi, en hún er,
ásamt eiginmanni sínum, búin að vera þar í hálfan mánuð og hefur
dvalið í bænum Jessheim, sem er rétt hjá flugvellinum Gardermoen
fyrir norðan Ósló. „Dóttir okkar býr þar núna og við höfum verið að
passa barnabörnin meðan foreldrarnir fóru í smá frí.
Svo héldum við veislu með börnum okkar og tengdabörnum, sem
komu frá Íslandi, á góðum veitingastað í Ósló á sunnudaginn í dásam-
legu veðri, upp undir 30 stiga hita. Frekari hátíðahöld bíða blíðunnar
á Íslandi í sumar.“ Þau hjónin fljúga heim til Íslands í dag.
Áhugamál Ingu eru tónlist, menntamál, mannrækt, garðrækt og
barnabörnin, en þau eru stærsta áhugamálið nú um stundir. „Svo
finnst mér gott að vera úti í náttúrunni, en við eigum sumarbústað í
Stafholtstungum í Borgarfirði og það er algjör sælureitur.“
Eiginmaður Ingu er Jón Dalbú Hróbjartsson, fyrrverandi prófast-
ur. Börn þeirra eru Árni Geir, Ingibjartur, Heiðrún og Margrét.
Barnabörnin eru þrettán og langömmubörnin eru orðin þrjú.
Í Ósló Inga og Jón ásamt börnum sínum síðastliðinn sunnudag.
Inga Þóra Geirlaugsdóttir er sjötug í dag
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 2018
S
igríður Ingibjörg Inga-
dóttir fæddist í Reykja-
vík 29.5. 1968 en ólst upp
á Seltjarnarnesi frá sjö
ára aldri: „Það sem ein-
kenndi Nesið á þeim árum var miklu
minni íbúðabyggð, alveg óbyggð
Valhúsahæðin, nokkrir sveitabæir
sem enn voru við lýði, alvöru fiski-
hjallar og gamlar varir og fjöldinn
allur af húsum sem voru í byggingu.
Við krakkarnir stálumst til að leika
okkur í grunnum og uppslætti fyrir
ný hús og þvældumst um fjöruna.“
Sigríður var í Ísaksskóla, Landa-
kotsskóla,Valhúsaskóla og Mýrar-
húsaskóla, lauk stúdentsprófi frá
MR 1987, BA-prófi í sagnfræði frá
HÍ 1992 og MA-prófi í viðskipta- og
hagfræði frá Uppsalaháskóla 2002.
Að námi loknu starfaði Sigríður
Ingibjörg á þjóðhagsreikningasviði
Hagstofu Íslands, var hagfræðingur
hjá ASÍ og í félags- og trygginga-
málaráðuneytinu. Hún var kjörin á
Alþingi fyrir Samfylkinguna og var
þingkona Reykjavíkurkjördæmis
suður í tvö kjörtímabil frá 2009 til
2016.
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, fyrrverandi alþingismaður – 50 ára
Með vinkonum og kvennalistavalkyrjum Talið frá vinstri: Nína Helgadóttir, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Drífa
Hrönn Kristjánsdóttir, afmælisbarnið, Ragnheiður Sigurjónsdóttir og loks Þórunn Sveinbjarnardóttir.
Pólitísk vitund vaknaði
í sagnfræðináminu
Börnin Efri röð: Jakob og Natan, og síðan Davíð og Hanna Sigþrúður.
Sigríður Geirs-
dóttir, fyrrverandi
kvikmynda- og
sjónvarpskona og
framhaldsskóla-
kennari, er áttræð
í dag. Hún er bú-
sett í Hveragerði.
Árnað heilla
80 ára
Garðabær Óskar Gabríel Hjörvarsson fæddist 2. júní 2017 kl. 7.42. Hann vó
3.162 g og var 52 cm langur. Foreldrar hans eru Lisseth Acevedo Méndez og
Hjörvar Steinn Grétarsson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frámerkum
viðburðum í lífi fólks, svo sem
stórafmælum,hjónavígslum,barns-
fæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu
mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að
Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta
af slóðinnimbl.is/islendingar eða á
islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón