Morgunblaðið - 29.05.2018, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 2018
Unnið er af fullum krafti við gerð
aðreinar fyrir strætó á austur-
akbraut Miklubrautar við Rauða-
gerði í Reykjavík. Einnig verður
gerður hjóla- og göngustígur á
svæðinu og hljóðmön með gróðri
verður sett milli götu og stíga.
Byrjað er að setja upp svokall-
aða grjótkörfuveggi eins og þá
sem settir voru upp á Miklubraut
við Klambratún í fyrra. Veggj-
unum er ætlað að bæta hljóðvist
og auka umhverfisgæði íbúa í
grenndinni. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Reykjavíkurborg eru
verklok áætluð í júlí næstkomandi
en endanlegur frágangur gróð-
ursvæðis bíður þar til í haust.
Framkvæmdir hafa gengið fremur
hægt síðustu vikurnar, annars
vegar vegna vöntunar á styrk-
ingum í grjótkörfurnar og hins
vegar vegna mikilla tafa við lagn-
ingu háspennustrengs, sem verk-
taki á vegum Veitna annast.
Vonir standa til að Veitur klári
lagningu strengsins um miðjan
júní. Þá munu styrkingar í járn-
grindurnar vera rétt ókomnar til
landsins.
Verktakinn er Urð og grjót ehf.
og tilboðsupphæð fyrirtækisins
var 156.220.050 krónur. Heild-
arkostnaður við framkvæmdina er
áætlaður 213 milljónir og þar af er
hlutur Reykjavíkurborgar 100
milljónir. Um er að ræða sam-
starfsverkefni borgarinnar og
Vegagerðarinnar. sisi@mbl.is
Grjótkörfuveggir að
rísa við Rauðagerði
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Miklabraut Starfsmenn hjá Urði og grjóti ehf. eru byrjaðir að hlaða grjótkörfuveggina og leggja strætóaðreinina.
Tafir hafa orðið á verkinu Verklok eru áætluð í júlí
Laxveiðitímabilið hófst á sunnu-
daginn var og heldur fyrr en vant
er. Annað sumarið í röð er veitt á
stöng við Urriðafoss í Þjórsá og var
byrjað að veiða á þrjár stangir þá
um morguninn, og maðki rennt í
mórauðan flauminn en áin var
mjög bólgin og dökk eftir rigning-
arnar undanfarið og ekki hægt að
koma við flugu. Tíu löxum var
landað, mest hrygnum en þó voru
hængar innanum, sem er óvenju-
legt svo snemma að sögn bænda við
fossinn og þykir boða góðar göng-
ur.
Að sögn Hörpu Hlínar Þórð-
ardóttur hjá Iceland Outfitters sem
leigir svæðið voru þetta allt stór-
laxar, frá 75 cm og sá lengsti hæng-
ur, 91 cm langur. Eiginmaður
hennar, Stefán Sigurðsson, landaði
þeim fyrsta og líka þeim stærsta.
„Það er veitt á þrjár stangir í maí
á vesturbakkanum og þeim fjölgar í
fjórar í júní,“ segir Harpa Hlín. Og
ólíkt í fyrra þar sem var um hálf-
gildings tilraun að ræða í stangveiði
á svæðinu, þá heldur veiðin áfram í
allt sumar. „Það sem við ætluðum
að gera á fimm árum gerðist í raun í
fyrra; við ætluðum að þróa þetta ró-
lega að það fór svo að við erum búin
að kaupa upp netin og þetta fyr-
irkomulag er komið til að vera.“
Harpa Hlín segir næsta verkefni
hjá þeim að þróa veiðina á aust-
urbakkanum, fyrir landi Þjórs-
ártúns. Þar á einnig að veiða á fjór-
ar stangir og byrjuðu menn þar líka
veiðar á sunnudag. efi@mbl.is
Byrjað! Stefán Sigurðsson með fyrsta lax sumarsins, við Urriðafoss.
Veiðin hófst af krafti
við Urriðafoss
Laxveiðitímabilið hefst nú í maí
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Um sjötíu konur hafa farið í fyrir-
byggjandi brjóstnám hér á landi á
síðustu árum. Frá 2010 til 2017 létu
58 konur fjarlægja brjóst sín á Land-
spítalanum, flestar á síðustu þremur
árum, og 12 konur hafa farið í fyrir-
byggjandi brjóstnámsaðgerð á Klín-
íkinni síðan vorið 2016. Um er að
ræða fyrirbyggjandi brjóstnám
kvenna sem eru ekki með krabba-
meinsgreiningu en með BRCA1- og
BRCA2-stökkbreytingar í genum
sem auka hættuna á að fá krabba-
mein. 935 brjóstnámsaðgerðir vegna
krabbameins voru gerðar á Land-
spítalanum 2010 til 2017 og 871
minni skurðaðgerð á brjósti vegna
krabbameins, t.d. fleygskurður.
Í takt við meiri vakningu
Kristján Skúli Ásgeirsson,
brjóstaskurðlæknir á Brjóstamið-
stöð Klíníkurinnar, segir að á þessu
ári hafi aukist mjög eftirspurn eftir
viðtölum við sig um ráðgjöf og upp-
lýsingar um fyrirbyggjandi brjóst-
námsaðgerðir hjá konum með stökk-
breytingar í BRCA-genum eða
annars í mikilli æviáhættu á að fá
brjóstakrabbamein.
Eins og áður segir hafa 12 konur
farið í fyrirbyggjandi brjóstnáms-
aðgerð á Klíníkinni, því til viðbótar
eru fjórar núna byrjaðar í ferli fyrir
brjóstnámsaðgerð og aðrar fjórar
bíða eftir að hefja aðgerðarferlið.
Kristján segir að frá því að ákveðið
er að hefja aðgerðarferlið sé eins til
þriggja mánaða bið fram að aðgerð.
Samkvæmt upplýsingum frá
Landspítalanum hefur fyrirspurnum
frá konum vegna fyrirbyggjandi
brjóstnáms fjölgað að undanförnu í
takt við meiri vakningu og umræðu
um BRCA í þjóðfélaginu.
Konur leita sér upplýsinga
Annabella Jósefsdóttir, gjaldkeri
Brakkasamtakanna – BRCA Ice-
land, segir að eftir að umræðan fór af
stað um BRCA-genin nýverið hafi
fjölgað verulega í þeim hópi sem leit-
ar til þeirra og inn á lokaða facebook-
síðu samtakanna sem er eingöngu
ætluð BRCA1- og BRCA2-arfberum
á Íslandi, þar eru nú 215 meðlimir.
„Konur eru að velta fyrir sér kost-
um og göllum fyrirbyggjandi brjóst-
námsaðgerðar og hvort þær eigi að
fara á Landspítalann eða Klíníkina í
Ármúla. Þær leita til okkar með fyr-
irspurnir eins og hversu fljótt þær
eiga að fara í aðgerð eftir að þær eru
búnar að eiga börnin og þær sem eru
ekki byrjaðar á barneignum velta
fyrir sér hvenær þær eigi að fara í
aðgerð. Það eru margar konur sem
vilja komast inn í þessa lokuðu
hópa.“
Um miðjan maí opnaði Íslensk
erfðagreining vefsíðuna Arfgerð.is
þar sem Íslendingar geta nálgast
upplýsingar um hvort þeir hafa
BRCA2-stökkbreytingu. Annabella
segir almenna ánægju með þessa
upplýsingagjöf innan Brakkasam-
takanna. Hún býst við að í kjölfar
aukins aðgengis að upplýsingum
muni áfram fjölga í hópi kvenna sem
kjósa að fara í fyrirbyggjandi brjóst-
nám.
Fleiri velja orðið fyrir-
byggjandi brjóstnám
Um 70 konur látið taka af sér brjóstin Aukin eftirspurn
Fjöldi brjóstnámsaðgerða á Landspítalanum
2010-2017
2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017
Fyrirbyggjandi brjóstnám
(ekki með krabbameins-
greiningu)
1 1 3 3 8 10 16 16
Brjóstnám vegna
krabbameins 95 115 118 100 110 133 126 138
Minni skurðaðgerð á
brjósti vegna krabba-
meins, s.s. fleygskurður
134 120 121 112 86 105 101 92
Heimild: Landspítalinn
Alþingi kom saman á ný í gær eftir
stutt hlé vegna sveitarstjórnarkosn-
inga. Að líkindum verður ný persónu-
verndarlöggjöf eitt aðalmála þings-
ins á fyrstu dögunum eftir hlé, en
fjármálaáætlun verður einnig í
brennidepli. Nefndarfundir voru
haldnir í nokkrum nefndum í gær og
á dagskrá þingfundar voru m.a.
óundirbúnar fyrirspurnir.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
og Þorsteinn Víglundsson, þingmenn
stjórnarandstöðu, þjörmuðu að
Bjarna Benediktssyni fjármálaráð-
herra og Katrínu Jakobsdóttur for-
sætisráðherra og beiddust svara um
stuðning ríkisstjórnarinnar við borg-
arlínu samkvæmt samstarfssáttmála
hennar, í ljósi mismunandi afstöðu
ríkisstjórnarflokkanna í Reykjavík.
Í svörum þeirra kom fram að þró-
un borgarlínu væri á upphafsstigi og
að fjármögnun hennar væri algjör-
lega óráðin. Undir þessum lið voru
einnig bornar upp fyrirspurnir um
úttekt nefndar á barnaverndarmál-
um, aðgerðir vegna stöðu sauðfjár-
bænda og stjórnsýslu ferðamála.
Undir liðnum óundirbúnar fyrir-
spurnir voru sein svör ráðuneyta við
fyrirspurnum stjórnarandstöðunni
hugleikin. Forsætisráðherra og fjár-
málaráðherra báru því við að líklega
hefðu aldrei borist jafn margar og ít-
arlegar fyrirspurnir til stjórnarráðs-
ins og hafði fjármálaráðherra á orði
að fjöldinn væri „kominn út í tóma
þvælu“.
Spurðu um afstöðu
til borgarlínunnar
Alþingi kom saman í gær eftir hlé