Morgunblaðið - 29.05.2018, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 29.05.2018, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 2018 Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Í fyrsta sinn birtir Hagstofa Íslands samantekt á upplýsingum sem snerta sérstaklega stöðu barna. Upplýsingarnar eru frá tímabilinu 1998 til 2018. Þar kemur meðal annars fram að fjórðungur barna á Íslandi var á vinnumarkaði árið 2017 eða tæp tuttugu og fimm prósent. Börnum í launaðri vinnu hefur fjölgað um rúm þrjú prósent frá 2015 en vert er þó að nefna að heildarfjöldi starf- andi barna hefur dregist saman um 5,2% síðan 2007 þegar hlutfallið var 30%. Samantektin leiðir einnig í ljós að þeim börnum sem slasast í umferð- inni hefur fækkað umtalsvert eða um 35% frá árinu 2000. Á þessu 17 ára tímabili slösuðust flest börn árið 2002 þegar 381 barn slasaðist í um- ferðinni en fæst árið 2014 þegar 198 börn slösuðust í umferðarslysum. Aukin afskipti barnaverndar Vistun barna utan heimilis hefur aukist frá 2007. Árið 2005 voru 349 börn vistuð utan heimilis en 2016 voru þau 401. Fleiri drengir hafa verið vistaðir utan heimilis en stúlk- ur á þessum árum. Afskipti barnaverndar af börnum hafa einnig aukist. Árið 2007 hafði barnaverndarnefnd afskipti af 4,2% barna, eða 3.852 börnum, en árið 2016 hafði hlutfallið hækkað í 6,2% barna, eða sem nam 5.620 börnum. Samkvæmt upplýsingum frá Barnaverndarstofu er aukningin áþreifanleg. Tilkynningum til barnaverndarnefnda hefur fjölgað mikið og skýrast frekari afskipti barnaverndar af því að fleiri til- kynningar berast nú en áður. 271 barn sótti um hæli Fjöldi barna sem sóttu um alþjóð- lega vernd á Íslandi náði sögulegu hámarki árið 2016 en þá sótti 271 barn um hæli hérlendis. Árið á und- an, 2015, sóttu einungis 77 börn um alþjóðlega vernd á Íslandi og var það þá mesti fjöldi sem hafði nokkru sinni sótt um alþjóðlega vernd hérlendis. Árið 2017 voru þessi börn 176 en flest þeirra komu frá Georgíu, 36. 2.453 börn innflytjendur Aukning innflytjenda á barns- aldri er stöðug en 2.453 börn á Ís- landi voru innflytjendur árið 2017. Þeim fjölgaði um tíu prósent frá 2016 til 2017. 12,6% leikskólabarna höfðu erlent tungumál sem móðurmál árið 2016 en það er töluverð aukning frá 1998 þegar tæp fjögur prósent leikskóla- barna höfðu erlent móðurmál. Flest leikskólabarnanna sem höfðu erlent móðurmál árið 2016 höfðu pólsku sem móðurmál. Hlutfall grunn- skólabarna sem höfðu erlent tungu- mál sem móðurmál árið 2016 var ör- lítið lægra en hlutfall leikskólabarna eða rúm níu prósent. Hvað varðar kyn barna þá voru stúlkur ívið færri en drengir í grunnskólum landsins árið 2017. Það er þó ekki nýtt af nálinni enda sýna tölur Hagstofunnar að drengir hafi verið fleiri en stúlkur í grunn- skólum frá 1997. Árið 2017 voru 22.032 stúlkur í grunnskólum lands- ins en 23.163 drengir. Mestur var munurinn á kynjunum árið 2002 þegar stúlkur voru 21.602 en dreng- ir 23.093. Fjórðungur barna vinnur fyrir sér  Drengir fleiri en stúlkur  Fjölgun hælisumsókna Fjöldi barna Heimild: Hagstofan 25% barna á Íslandi var á vinnumarkaði árið 2017 176 börn sóttu um alþjóð- lega vernd hérlendis árið 2017 36 þeirra voru frá Georgíu 2007 2016 3.852 5.620 Afskipti barnaverndar af börnum Slysum á börnum í umferðinni hefur fækkað um 35% frá árinu 2000 -35% „Veturinn var tiltölulega stöðugur, heilt yfir. Það kom aldrei nein asa- hláka eða suðaustanáttir í lengri tíma. Fólk komst yfirleitt á skíði,“ segir Guðmundur Karl Jónsson, for- maður Samtaka skíðasvæða á Ís- landi. Veturinn einkenndist af veðurstillum og góðum snjóalögum um allt land. Á nýliðnum vetri komu 201.500 gestir á skíðasvæðin, að því er fram kom á vorfundi Samtaka skíðasvæða sem haldinn var á Egilsstöðum. Var veturinn sá fjórði besti frá upphafi mælinga. Bláfjöll mest sótt Veturinn áður fóru 151 þúsund gestir á skíði á skíðasvæðunum. Stærsti veturinn var árið 2008-2009 þegar tæplega 250 þúsund gestir sóttu svæðin heim og veturinn 2012- 13 komu 222 þúsund gestir. Mest sóttu skíðasvæðin voru Blá- fjöll með 68.500 gesti og Hlíðarfjall með 63.500 gesti. Engin met voru sett, að sögn Guðmundar Karls. Mesta aðsókn að einu skíðasvæði var veturinn 2009-2010 þegar um 102 þúsund gestir komu í Hlíðarfjall við Akureyri. Þann vetur var ástandið dapurt í Bláfjöllum, aðeins opið í fá- eina daga og gestir um 10 þúsund. Það varð til þess að óvenjumargir fóru norður á skíði þann veturinn. Þegar litið er yfir landið allt var að meðaltali opið í 88 daga á skíðasvæð- unum. Eins og undanfarin ár voru vetrarfríin í skólum og páskar vin- sælustu tímabilin. Stærsti dagurinn var laugardagurinn fyrir páska en þá voru tæplega 12 þúsund manns að renna sér á skíðum á öllum skíða- svæðum landsins. Mikil uppbygging Mikil uppbygging er framundan á nokkrum af stærstu skíðasvæð- unum. Sveitarfélögin á höfuðborgar- svæðinu hafa ákveðið að setja upp þrjár nýjar stólalyftur í Bláfjöllum og endurnýja stólalyftuna í Skála- feli. Þá verður settur upp búnaður til snjóframleiðslu í Bláfjöllum. Jafn- framt verður unnið að áframhald- andi uppbyggingu á skíða- göngusvæði og aðstaða fyrir skíðagöngufólk bætt. Ný stólalyfta verður sett upp í Hlíðarfjalli í sumar. Hún mun auka flutningsgetuna og flytja fólk hærra upp í fjallið. Þá verður sett upp ný toglyfta á skíðasvæði Skagfirðinga í Tindastóli. helgi@mbl.is Morgunblaðið/Ómar Bláfjöll Margir góðir dagar voru á skíðasvæðum landsins í vetur. Flestir gestir komu í Bláfjöll í vetur, eins og veturinn á undan. 12 þúsund á skíðum á besta deginum Velta svæðanna » Heildarvelta á 10 stærstu skíðasvæðum landsins var tæplega 500 milljónir kr. Tölur um kostnað á öllum skíða- svæðunum hafa ekki verið teknar saman. Sigurður Ægisson ritstjorn@mbl.is Spánarsnigill fannst um helgina á Siglufirði. Íbúar við Hverfisgötu 5a urðu hans varir handan götunnar, mynduðu hann og fönguðu síðan. Spánarsnigillinn telst vera ágeng framandi tegund á Íslandi og gæti valdið miklum skaða í ræktun, líkt og gerst hefur í mörgum löndum Evrópu, ef hann nær fótfestu hér. Á heimasíðu Umhverfisstofnunar er almenningur því hvattur til að fylgj- ast vel með í garðinum hjá sér og uppræta snigilinn um leið og hans verður vart. Spánarsnigillinn er auðþekktur af stærð sinni og rauðbrúnum lit, en hann getur orðið allt að 15 cm að lengd. Hann er mikið átvagl, étur flest sem hann kemst í, svo sem plöntur, plöntuleifar, ýmsan lífræn- an úrgang, til dæmis hundaskít, og líka dauða og lifandi snigla. Efst á óskalistanum eru þó lyktsterkar plöntur. Spánarsnigillinn er upprunninn á Íberíuskaga og barst þaðan til ann- arra svæða í Mið- og Vestur-Evr- ópu upp úr 1960, líklega af manna- völdum. Hans varð vart í Suður-Svíþjóð árið 1975, fannst í Noregi 1988, í Danmörku 1991, í Færeyjum 1996 og á Íslandi árið 2003; það var í Kópavogi og Reykja- vík. Hefur snigillinn, einkum egg eða ungviði, átt greiða leið hingað til lands með innfluttum plöntum og jarðvegi í blómapottum, eins og annars staðar. Síðan þá hefur tegundin fundist hér árlega, nánast um allt land. Nú hefur Siglufjörður bæst við. Spánarsnigill á Siglufirði  Getur valdið miklum skaða Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Ágengur Spánarsnigillinn var um 9 cm langur og 2,5 cm í þvermál.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.