Morgunblaðið - 29.05.2018, Blaðsíða 19
19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 2018
Eggert
Hafnarfjarðarhöfn Þar sem er bryggja þar er bátur og þar sem er bátur þar er sjómaður.
Hrærekur konungur í Kálf-
skinni á Árskógsströnd frá Heið-
mörk í Noregi er eini konung-
urinn sem hvílir í íslenskri jörð. Á
dögunum gekk ég að haugi eða
gröf Hræreks með Sveini bónda,
eða „kóngi“, í Kálfskinni og við
kyrjuðum ljóð Davíðs Stef-
ánssonar yfir gröf konungsins
sem dó í moldarkofa. Ólafur
digri, konungur Noregs, hafði
stungið úr Hræreki augun og
ætlaði svo að láta Þórarin Nefj-
ólfsson flytja hann blindan til
Grænlands í eilífa útlegð. En Þórarinn fékk á
sig hafvillur og kom á Reyðarfjörð og þaðan
var farið með kónginn að Möðruvöllum í Eyja-
firði til Guðmundar ríka. Síðar komu þeir hon-
um fyrir í Kálfskinni, kónginum sem Davíð orti
um og í orðastað:
Ég átti gull og græna skóga,
gleði nóga,
akra, þræla, uxa og plóga,
bjó við rausn í björtum höllum,
blótaði að goðastöllum,
elskaður af öllum.
Og enn heyra menn orð skáldsins í meitl-
uðum orðum Hræreks:
Man ég, man ég tíma tvenna.
Tár úr blindum augum renna.
Íslendingar einskis meta
alla, – sem þeir geta.
Sveinn Jónsson bóndi og kon-
ungur hugsjónanna, sem hefur
verið athafnaskáld í héraði sínu,
hefur barist fyrir því að kóngi
verði sýnd sú virðing á ferða-
mannatímum að bæði Norðmenn
og Íslendingar svo og aðrir ferða-
menn komist klakklaust að gröf
Hræreks konungs. En til þess
vantar útskot og bílaplan við
þjóðveginn, stíg og tröppur yfir
girðingar svo pils og buxur ferðamanna rifni
ekki í íslenskum gaddavír.
Flugvélarflak Justins Biebers? Þetta leysti
t.d. Vegagerðin snilldarlega með Mýrdæl-
ingum þegar Justin Bieber „fann flugvél-
arflakið“ í fjörunni. Það kostaði að vísu því
miður eitt mannslíf áður en málið var leyst
með snilld og hvenær sem ég ek um Mýrdalinn
eru þar tugir bíla og hundruð ferðamanna að
upplifa undrið um flugvélarflak og minningu
um menn sem fórust. Nákvæmlega þetta þurfa
Vegagerðin og samgöngu- og ferðamálaráð-
herrarnir að gera Hræreki konungi til heiðurs.
Að auki munu örugglega Dalvíkurbyggð,
Sveinn sjálfur svo og bændur á Heiðmörk í
Noregi láta fé af hendi rakna, jafnvel hið vel
stæða norska ríki. Gert ekki síst til að bæta
fyrir níðingsverk Ólafs digra sem bar eftir
andlát sitt sæmdarheitið Ólafur konungur
helgi.
Árlega setja Norðmenn á svið á Stikl-
arstöðum leikverkið um fall Ólafs digra og
byggja á sagnagerð Snorra Sturlusonar. Ekk-
ert vissu þeir um sögu sína ef Íslendinga hefði
ekki notið við. Á Stiklarstöðum fellur Íslend-
ingurinn Þormóður Kolbrúnarskáld í orust-
unni á hverju sumri.
En látum Hrærek konung eiga síðustu orðin
í þessari litlu bón:
Kvölin er minn konungsauður.
Í kvöld verð ég dauður.
Hafið þakkir, þræll og meyja,
Þór og Freyja.
Heyrið þið, hvað Hrærekur
frá Heiðmörk er að segja?
Í Kálfskinnsbæ
er konungur að deyja.
Sýnum í verki að við einskismetum ekki
minningu konungsins og heyrum hvað hann er
að segja. Hann kallar eftir virðingu og sátt,
enda þúsund ár liðin frá andláti hans árið 2022.
Þetta væri lítið verk en göfugt, taki þeir
höndum saman sem nefndir eru hér til sög-
unnar. Hrærekur konungur á virðingu skilið
og margir myndu ganga að gröf hans verði
þessi bón uppfyllt.
Eftir Guðna Ágústsson » Sýnum í verki að við
einskismetum ekki minn-
ingu konungsins og heyrum
hvað hann er að segja.
Guðni
Ágústsson
Höfundur er fv. alþingismaður og ráðherra.
Hrærekur konungur í Kálfskinni „þarfnast athygli“
Sveinn Jónsson í Kálfsskinni.
Frjálsi lífeyrissjóðurinn á langa
og farsæla sögu en sjóðurinn fagnar
40 ára starfsafmæli í ár. Frjálsi er
sjálfstæður lífeyrissjóður á forræði
sjóðfélaga sjálfra og stjórnar sjóðs-
ins. Stjórn, sem er skipuð sjóð-
félögum, fer með málefni hans á
milli ársfunda og tekur t.a.m. allar
stærri fjárfestingarákvarðanir.
Jafnframt mótar hún tillögu um
rekstrarfyrirkomulag sjóðsins.
Frá upphafi hefur Frjálsi lífeyr-
issjóðurinn falið fjármálafyrirtæki
að fara með daglegan rekstur og
hefur sjóðurinn aldrei haft starfsfólk né átt eigið
húsnæði.
Samstarf í 10 ár
Arion banki hefur annast daglegan rekstur
Frjálsa lífeyrissjóðsins í nærri áratug. Í sam-
starfinu felst meðal annars framkvæmdastjórn,
áhættustýring, eignastýring, iðgjaldaskráning,
bókhald, innri endurskoðun, gengisútreikningur
og stafrænar lausnir, ásamt beinni þjónustu við
sjóðfélaga. Arion banki hefur einnig lagt til hús-
næði þegar sjóðurinn heldur fræðslufundi og
sjóðfélagafundi og hafa sjóðfélagar einnig nýtt
sér að Arion banki er með starfsemi víða um land.
Það rekstrarfyrirkomulag sem stjórn Frjálsa
og sjóðfélagar hafa valið allt frá upphafi er einnig
við lýði hjá fimm öðrum lífeyrissjóðum hér á
landi.
Aðhald frá sjóðfélögum
Eins og nafn sjóðsins ber með sér hafa sjóð-
félagar frelsi til að ákveða að greiða iðgjald sitt í
annan lífeyrissjóð og geta því hvenær sem er flutt
séreign sína, telji þeir hagsmunum sínum betur
borgið með þeim hætti. Þetta frelsi sjóðsfélaga
veitir sjóðnum og rekstraraðila hans mikið að-
hald. Í þessu ljósi hefur okkur sem störfum hjá
Arion banka þótt afar ánægjulegt að sjá hve sjóð-
félögum hefur fjölgað mikið á undanförnum ár-
um. Æ fleiri einstaklingar hafa ákveðið að greiða
iðgjöld sín til Frjálsa lífeyrissjóðsins og þannig
sýnt honum traust í verki til að gæta lífeyr-
issparnaðar síns.
Gætt að hagsmunaárekstrum
Arion banki er vissulega stórt fyrirtæki sem
veitir fjölbreytta fjármálaþjónustu og þjónustar
einstaklinga, fyrirtæki og fjárfesta á borð við líf-
eyrissjóði. Ljóst er að í jafn víðtækri starfsemi er
fyrir hendi hætta á hagsmunaárekstrum og tekur
lagaumhverfi fjármálafyrirtækja gagngert til
þess. Ófrávíkjanleg áhersla okkar hjá Arion
banka, sem og lagaleg skylda, er að gera ráðstaf-
anir til að koma í veg fyrir að hagsmunaárekstrar
í starfsemi bankans geti skaðað hagsmuni við-
skiptavina okkar. Viðskiptavinir, og þar með tald-
ir sjóðfélagar Frjálsa lífeyrissjóðsins, geta treyst
því að við leggjum afar ríka áherslu á þessi ör-
yggisatriði í allri okkar starfsemi
og sætum þar að auki eftirliti bæði
innri og ytri eftirlitsaðila.
Fjárfesting í kísil-
verksmiðju í Helguvík
Nýverið hefur Frjálsi, ásamt
öðrum lífeyrissjóðum sem fjárfestu
í uppbyggingu kísilverksmiðju í
Helguvík, ítrekað sætt gagnrýni í
fjölmiðlum. Sú gagnrýni hefur
einnig beinst að Arion banka og er
að mörgu leyti skiljanleg enda
gekk mikið á og fá fordæmi eru
fyrir viðlíka sviksemi og grunur er
um.
Stjórn Frjálsa lífeyrissjóðsins tók ákvörðun
um þátttöku í verkefninu að vel athuguðu máli.
Þrátt fyrir ítarlega greiningarvinnu í aðdraganda
fjárfestingarinnar, sem m.a. var unnin af starfs-
fólki Arion banka, brustu forsendur og margir
voru blekktir, svo sem hluthafar, lánveitendur,
opinberir aðilar og eftirlitsstofnanir.
Arion banki, stjórn United Silicon og lífeyr-
issjóðirnir, sem fjárfestu í verkefninu, hafa allir
kært meinta sviksemi til embættis héraðs-
saksóknara. Starfsfólk Arion banka sem kemur
að starfsemi Frjálsa lífeyrissjóðsins þykir afar
miður hvernig fjárfesting í United Silicon fór.
Áhættudreifing mikilvæg
Í fjárfestingum Frjálsa er lögð áhersla á gott
jafnvægi milli mismunandi fjárfestinga þar sem
vegnar eru saman áhættulitlar fjárfestingar og
áhættumeiri. Sjóðfélagar Frjálsa lífeyrissjóðsins
geta valið fjárfestingarleiðir eftir þeirri áhættu
sem þeir eru tilbúnir að taka. Meðalraunávöxtun
séreignarleiða sjóðsins á ársgrundvelli sl. 15 ár,
hefur verið á bilinu 4%-4,5% sem teljast verður
vel ásættanlegt og stenst allan samanburð.
Frjálsi lífeyrissjóðurinn skilaði einnig góðri
ávöxtun á árinu 2017 þrátt fyrir fjárfestingu í
United Silicon, en sú fjárfestingin nam um 0,5%
af heildareignum sjóðsins. Raunávöxtun séreign-
arleiða sjóðsins á árinu 2017 var frá 4%-5%.
Næstkomandi miðvikudag, 30. maí, fer fram
ársfundur Frjálsa lífeyrissjóðsins þar sem m.a.
verður farið yfir starfsemi sjóðsins á árinu. Ég vil
hvetja sjóðfélaga Frjálsa lífeyrissjóðsins til að
mæta á árfund sjóðsins og kynna sér málefni
hans og starfsemi.
Eftir Margréti Sveinsdóttur
Margrét
Sveinsdóttir
» Viðskiptavinir, og þar
með taldir sjóðfélagar
Frjálsa lífeyrissjóðsins, geta
treyst því að við leggjum afar
ríka áherslu á þessi öryggis-
atriði í allri okkar starfsemi.
Höfundur er framkvæmdastjóri
eignastýringar Arion banka.
Samstarf Frjálsa lífeyris-
sjóðsins og Arion banka