Morgunblaðið - 29.05.2018, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 29.05.2018, Blaðsíða 27
Sigríður Ingibjörg var formaður fjárlaganefndar 2011-2012 og lengst af formaður velferðarnefndar. Hún var síðar hagfræðingur hjá ASÍ. Nú er hún búsett, ásamt fjölskyldu sinni, í Kaliforníu þar sem hún legg- ur stund á meistaranám í stjórnun og stefnumótun við Berkeley- háskóla. Sigríður Ingibjörg var formaður Félags sagnfræðinema í HÍ, starfaði í Kvennalistanum frá 1991 og sinnti trúnaðarstörfum fyrir flokkinn, m.a. í stjórn Innkaupastofnunar Reykja- víkurborgar, hefur verið í Samfylk- ingunni frá upphafi og hefur auk þingmennskunnar setið í Seðlabankaráði fyrir hönd flokksins 2007-2008, var varaformaður stjórn- ar Samfylkingarfélagsins í Reykja- vík 2007-2009, formaður kjör- stjórnar flokksvals Samfylkingarinnar í Reykjavík og landsfundarnefndar Samfylking- arinnar, árið 2018. Hefurðu verið pólitísk alla tíð? „Nei. Það var einkum sagnfræðin sem vakti pólitískan áhuga minn og kvenréttindabaráttan. Í Kvennalist- anum kynntist ég ung frábærum konum sem var mjög lærdómsríkt og gott að vinna með. Þær lögðu ekki síst grunninn að pólitískum áhuga mínum sem hefur haldist æ síðan. Pólitíska baráttan og setan á þingi voru auðvitað mjög spennandi tímar en það er einnig gott að breyta til og byrja á nýjum kafla. Nú er ég í há- skólanámi hér á vesturströnd Bandaríkjanna. Hér búum við, fjöl- skyldan, og við munum hafa mjög gott af þessum breytingum, því þetta er spennandi og uppbyggileg reynsla fyrir okkur öll. Ég hef alltaf verið óbangin við að breyta til og takast á við ný verkefni enda eykur það víðsýni okkar og aðlögunar- hæfni. Ég er því hæstánægð.“ Fjölskylda Eiginmaður Sigríðar Ingibjargar er Birgir Hermannsson, f. 18.8. 1963, dr. í stjórnmálafræði. Sonur Sigríðar Ingibjargar og Arnars Gunnars Hjálmtýssonar er Natan Sigríðarson, f. 10.12. 1991. Börn Sigríðar Ingibjargar og Birgis eru Jakob, f. 12.8. 1998; Hanna Sig- þrúður, f. 23.3. 2004; Davíð, f. 21.1. 2006. Bræður Sigríðar Ingibjargar eru Björn Ingi, f. 19.3. 1959, d. 4.1. 1968, og Árni, f. 12.3.1961, matvælafræð- ingur í Kópavogi. Foreldrar Sigríðar Ingibjargar voru Sigþrúður Steffensen, f. 14.2. 1930, d. 2017, húsfreyja og fyrrv. bankastarfsmaður, og Ingi R. Jó- hannsson, f. 5.12. 1936, d. 2010, lög- giltur endurskoðandi og einn helsti skákmeistari þjóðarinnar um skeið. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir Helga Ófeigsdóttir húsfreyja í Rvík Árni R. Zakaríasson verkstjóri í Rvík Sigríður Árnadóttir húsfreyja í Rvík Sigþrúður Stefánsson húsfreyja og bankastarfsmaður í Rvík Björn S. Steffensen endurskoðandi í Rvík Theódóra K. Sveinsdóttir veitingakona í Rvík og Hvítárskála í Borgarfirði Hendrik Valdimar Fischer Steffensen læknir áAkureyriJón Steffensen prófessor í læknisfræði Helga Steffensen brúðuleikhúskona Ragnhildur Ólafsdóttir húsfreyja í Mjóafirði Páll Eggert Ólason sagnfræðiprófessor við HÍ Óli Kristján Þorvarðsson steinsmiður í Rvík Ólafía Ingibjörg Óladóttir verkakona í Eyjum Jóhann P. Pálmason sjóm. og múrari í Vestmannaeyjum Guðbjörg Sighvatsdóttir húsfreyja í Stíghúsi í Eyjum Pálmi Guðmundsson kennari í Landeyjum og sjómaður í Eyjum Úr frændgarði Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur Ingi R. Jóhannsson skákmeistari og löggiltur endurskoðandi Hjónin Sigríður Ingibjörg og Birgir á kvöldgöngu í Berkley í Kaliforníu. ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 2018 Sogavegi við Réttarholtsveg og Miklubraut Opið kl. 9-18 virka daga | Sími 568 0990 | gardsapotek.is | appotek.is Lágt lyfjaverð - góð þjónusta Einkarekið apótek Nú einnig netapótek: Appotek.is Steingrímur Pálsson fæddist íGarðarbyggð í Pembina íNorður-Dakota 29.5. 1918. Foreldrar hans voru Páll Sigurðs- son, prestur í Pembina í Norður- Dakota, síðar prestur og kennari í Bolungarvík, og Þorbjörg Stein- grímsdóttir húsfreyja. Páll var sonur Sigurðar Ísleiks- sonar, sjómanns í Vatnagarði í Gerðahreppi, og k.h., Kristínar Nikulásdóttur húsfreyju þar, en Þorbjörg var dóttir Steingríms Guð- mundssonar frá Brúsastöðum í Vatnsdal í Húnavatnssýslu, sjó- manns í Sandgerði er flutti til Vest- urheims 1887, og Guðrúnar Svein- bjarnardóttur húsfreyju, síðar í Kothúsum í Garði og í Keflavík. Bróðir Steingríms var Jens Páls- son, loftskeytamaður, póst- og sím- stöðvarstjóri á Reyðarfirði og í Kópavogi og síðar í Garðabæ. Eiginkona Steingríms var Lára Helgadóttir sem lést 1979, símritari og loftskeytamaður. Foreldrar hennar voru Helgi Ketilsson og k.h., Lára Tómasdóttir. Börn Steingríms og Láru: Helgi, Þórir og Hólmfríður. Steingrímur lauk gagnfræðaprófi í Reykjavík 1938 og lauk loftskeyta- og símritunarpróf 1941 við Símrit- unarskólann í Reykjavík. Steingrímur var 12 ára er hann hóf störf hjá Landssíma Íslands í Reykjavík, fyrst sem sendisveinn, síðan yfirmaður skeytasendinga þar 1933, var síðan símritari 1941-52, lengst af í Reykjavík. Hann var jafn- framt starfsmaður á skrifstofu Bandalags starfsmanna ríkis og bæja 1945-46 og kennari við Símrit- unarskólann í Reykjavík 1947-48. Hann varð umdæmisstjóri Pósts og síma á Brú í Hrútafirði 1952 og gegndi því embætti til 1974. Hann var síðan skrifstofustjóri ritsímans í Reykjavík á árunum 1974-77. Steingrímur var varaþingmaður Vestfirðinga 1964, 1965 og 1967 og alþingismaður fyrir Alþýðu- bandalagið á Vestfjörðum í eitt kjör- tímabil, 1967-71. Hann var formaður Félags íslenskra símamanna 1946, 1947-49 og 1950. Steingrímur lést 10.3. 1981. Merkir Íslendingar Steingrímur Pálsson 103 ára Þorkell Zakaríasson 95 ára Jónína Bryndís Jónsdóttir 90 ára Bjarnfríður Valdimarsdóttir 85 ára Hjördís Ágústsdóttir Jónína Magnea Helgadóttir Kolbrún Steinþórsdóttir Páll G. Jónsson Unnur Bjarnadóttir Þórgnýr Þórhallsson 80 ára Ari Friðfinnsson Björn Traustason Guðrún Sigríður Geirsdóttir Lára Sigurjónsdóttir Sigurjón Einarsson Sveinn Sigurbjörnsson 75 ára Eggert Jóhannsson Eva Sögaard Johannesen Guðný Guðmundsdóttir Jarþrúður Williams Margrét Skúladóttir Ólafur Huxley Ólafsson 70 ára Alma Brynjólfsdóttir Ágústa Þórdís Ólafsdóttir Halldóra G. Torfadóttir Halldór H. Halldórsson Hersteinn Karlsson Jóhanna Baldursdóttir Jón Halldórsson Kristján Þ. Jónsson Sigurjón Ólafsson 60 ára Ása Lísbet Björgvinsdóttir Bergþóra Eysteinsdóttir Helga Þ. Guðjónsdóttir Jón Georg Ragnarsson Oddur Karl Thorarensen Sigríður Jóhannesdóttir 50 ára Baldur Bragason Björn Ísleifur Björnsson Guðbjörg N. Hansen Gunnhildur Marteinsdóttir Hulda Saga Sigurðardóttir Jóhanna María Einarsdóttir Jóhanna Úlla Káradóttir Kristján Örn Kristjánsson Ólafur Eggert Ólafsson Sigurbjörg Rún Jónsdóttir Svafa Arnardóttir 40 ára Anna Guðmundsdóttir Erla Björg Hilmarsdóttir Erlendur Blöndahl Cassata Eygerður Helgadóttir Guðrún L. Guðmundsdóttir Helena Friðþjófsdóttir Hreggviður Ingason James Alec Bannister Jón Garðar Helgason Lárus Helgi Lárusson Michal Baranowski Sigrún Ásdís Sigurðardóttir Sveinbjörn Óli Ólason 30 ára Alma Ingólfsdóttir Anna Reynisdóttir Benedikt Kjartansson Birkir Örvarsson Guðrún Sif Ólafsdóttir Leó Sveinsson María Birta Bjarnadóttir Orri Freyr Gíslason Pawel Renötuson Sigurður Rúnar Birgisson Tayseer Al Mouallem Tómas Jónsson Til hamingju með daginn 30 ára Örn Ýmir ólst upp í Kópavogi, býr í Reykja- vík, lauk BA-prófi í tón- smíðum við LHÍ og hefur verið bassaleikari og söngvari með ýmsum tónlistarmönnum. Maki: Þórunn Ylfa Brynj- ólfsdóttir, f. 1993, sam- tímadansari og danskenn- ari. Foreldrar: Ari Harðarson, f. 1957, og Hjálmfríður Lilja Nikulásdóttir, f. 1960. Þau búa í Reykjavík. Örn Ýmir Arason 30 ára Sigrún ólst upp í Reykjavík, býr í Kópavogi, lauk prófi sem einkaþjálf- ari og starfar við þjálfun hjá Reebok Fitness. Maki: Arnar Ísaksen, f. 1987, verktaki. Börn: Emelía Ólöf Ísak- sen, f. 2008; Kristín Erla Ísaksen, f. 2014, og Viktor Frosti, f. 2017. Foreldrar: Ólöf Anna Gísladóttir, f. 1966, og Grétar Hallur Þórisson, f. 1966. Sigrún María Grétarsdóttir 30 ára Helga Guðrún ólst upp í Bolungarvík, býr þar, lauk prófi í viðskiptafræði frá HA og starfar hjá End- urskoðun Vestfjarða. Systkini: Halldór Ingi, f. 1977; Ellý, f. 1979; Hjörtur, f. 1981, og Helga Björg, f. 1981, Guðbjörg, f. 1985, og Anna Margrét, f. 1998. Foreldrar: Guðbjörg Hjart- ardóttir, f. 1955, og Magn- ús Halldórsson, f. 1955, d. 1991. Fósturfaðir: Hafþór Gunnarsson, f. 1960. Helga Guðrún Magnúsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.