Morgunblaðið - 29.05.2018, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 29.05.2018, Qupperneq 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 2018 VÖNDUÐ JEPPADEKK Á FRÁBÆRU VERÐI STÆRÐ 315/70R17 49.600,- kr. STÆRÐ 285/70R17 46.900,- kr. ARCTIC TRUCKS | KLETTHÁLSI 3 | 110 REYKJAVÍK | 540 4900 WWW.ARCTICTRUCKS.IS ÞÚ FÆRÐ JEPPADEKKIN HJÁ OKKUR! ICQC 2018-20 Matreiðslumeistarinn Victoría Elí- asdóttir og bróðir hennar, myndlist- armaðurinn Ólafur Elíasson, munu frá 11. ágúst í sumar starfrækja veitingastað í Marshall-húsinu við Grandagarð, í húsnæði veitinga- staðar hússins, Marshall Restaur- ant + Bar. Munu systkinin starf- rækja staðinn í nær þrjá mánuði og bjóða upp á hádegis- og kvöldverð sem byggist á anda eldhúss Studio Olafur Eliasson í Berlín. Eldhúsið í hinni umfangsmiklu vinnustofu Ólafs í Berlín er rómað og hafa verið gefnar út um það bækur. Í tilkynningu segir að í verkefni systkinanna í Marshall- húsinu verði leitast við að endur- skapa andrúmsloft þess, skapa rými fyrir mat og hugleiðingar, tilraunir í matargerð og óvænt stefnumót. Andrúmsloftið verður undirbyggt með verkum eftir Ólaf sem verður komið fyrir á verkstæðinu en hann er bæði með sýningarrými og vinnustofu í byggingunni. Victoría mun bjóða gestum til sætis við langborð þar sem boðið verður upp á hollan mat og skapandi samræð- ur, rétt eins í hádeginu í vinnustofu Ólafs í Berlín þar sem um hundrað manns borða alla jafna. Victoría starfaði um hríð sem kokkur í vinnustofu bróður síns en undanfarið á rómuðum veitingastað, Dóttir, í Berlín. Sum kvöld verður gestum staðar- ins boðið að sitja áfram og taka þátt í ýmsum viðburðum sem Studio Olafur Eliasson skipuleggur, í sam- vinnu við i8 gallerí, Mengi og fleiri menningarstofnanir í Reykjavík – í tilkynningu segir að um allt frá ör- tónleikum að ljóðalestri og djass- tónleikum geti verið að ræða. Þá verða þar gjörningar og samtöl við myndlistarmenn, tónskáld, heim- spekinga sem matreiðslumeistara, og boðið upp á dagskrá fyrir börn. Systkinin Ólafur og Victoría Elías- börn taka höndum saman. Victoría og Ólafur með veitingasölu Það enduðu allir uppi á fjalli.Tilveran er fjall,“ segirHaraldur Markús Ólafs-son, sögumaður Passa- mynda, nýjustu skáldsögu Einars Más Gumundssonar, spekingslega og lýsir í senn viðkomustaðnum sumarið sem bókin fjallar um – við skurðgröft á fjalli í Noregi – og lífs- göngunni sem hann lítur til baka yf- ir, þegar sumarið er komið langt aft- ur í fortíð, og hann líkir við fjall. Eftir velgengni skáldsögunnar Hundadaga (2015), sem fjallaði um Jör- und hundadaga- konung og tryggði Einari Má íslensku bók- mennta- verðlaunin, snýr hann sér hér aftur að sjálfsævisögu- legum rótum og því að fjalla um per- sónur og söguefni sem hann þekkir af eigin raun og hefur áður unnið með í Englum alheimsins og svoköll- uðum ættarþríleik: Fótspor á himn- um, Draumar á jörðu og Nafnlausir vegir. Passamyndir er vel lukkuð, forvitnileg og góð saga sem flaug full lágt og hljóðlega eftir að hún kom út í haust sem leið. En hún er nú farin að birtast í erlendum þýðingum og vekja verðskuldaða athygli utan landsteinanna. Sagan gerist á einu ári, frá vori og inn í haust árið 1978. Og sögutíminn er njörvaður niður og rækilega skil- greindur með allrahanda og oft bráðskemmtilegum vísunum í listir og menningu þessa tíma sem Har- aldur er þá að upplifa, rétt rúmlega tvítugur; „Fá ein ljóð eftir Sigfús Daðason var nýkomin út“ (41) og hann hlustar á Ziggy Stardust með David Bowie og plötur með Bob Dyl- an og Rolling Stones og les af mikl- um móð Liverpool-skáldin, sem Ein- ar Már var einmitt hálfgerður sendiherra fyrir um það leyti er hann ruddist af rómuðum krafti fram á ritvöllinn með sínar fyrstu ljóðabækur. Og frásögnin er margt í senn, þetta er ferðasaga og ástar- saga en ekki síst þroskasaga skálds; hér er unnið markvisst og meðvitað með þá gamalgrónu hefð þar sem segir af ferð Haraldar ásamt vin- inum Jonna til Noregs að vinna og afla tekna fyrir draumaferðina suð- ur í Evrópu, sem segir frá í loka- hluta bókarinnar, og fetað er í fót- spor Halldórs Laxness í Taormínu á Sikiley sem „var frekar ómerkilegt þorp þegar til kastanna kom, aðal- lega túrismi og mjög erfitt að ímynda sér að árið 1925 hafi setið þarna rúmlega tvítugur unglingur og skemmt sér við að bylta íslensk- um bókmenntum“. (202) Og þannig kannar sögumaðurinn heiminn ungur, með opinn huga og ætíð leitandi á fallegan hátt enda eru þeir félagar sagðir hafa trúað á spurningarmerkið því þar bjó frjó- semin og hálfgerð stefnuskrá þeirra: „að vera raunsær og framkvæma hið ómögulega. Að taka mynd af veru- leikanum en framkalla drauma. Að kafa djúpt og fljúga hátt. Þetta átti við um allt, samfélagið, bókmennt- irnar og listina.“ (100) Tónn sögumannsins er þægilega afslappaður og vel lukkaður, þar sem hann horfir aftur í tímann og nýtur þess að rifja upp atburðina og velta þeim fyrir sér. Og stundum liggur honum á og hleypur út undan sér, og nær þá að vísa í eitthvað sem mun gerast og byggja upp spennu, áður en hann snýr til baka og klárar sögur eða lýsingar sem hann var byrjaður á. Persónulýsingar eru hnitmiðaðar, persónugalleríið fjölbreytilegt, og karakterar lifna iðulega á síðunum á spaugilegan hátt, eins og maðurinn sem vinirnir koma að hitta í atvinnu- leit: „Höfuð mannsins líktist refs- höfði en var alveg laust við alla grimmd. Hann var einsog brosandi refur. Hann hét Sverre Sørensen. Það stóð á hurðinni. Kannski vorum við staddir í barnaleikriti eftir Tor- bjørn Egner þar sem dýrin voru menn og mennirnir voru dýr og maðurinn við skrifborðið einsog Mikki refur eftir að hann lærði að borða grænmeti.“ (122) Ýmis íslensk skáld og listamenn koma við sögu, í Reykjavík, Noregi, á Ítalíu og Frakklandi. Sumum hef- ur brugðið fyrir í fyrri bókum Ein- ars Más um Harald og margir bæt- ast hér við og getur verið forvitni- legur samkvæmisleikur fyrir þá sem kunnugir eru listasenu þessa tíma að geta sér til um hverjir leynist bak við nöfnin sem höfundur gefur þeim. Þá er ónefndur lykilþáttur í frá- sögninni en það er gegnumgangandi umræða um ritverk Knuts Hamsuns sem hefst strax í byrjun sögunnar, þegar efni hennar er reifað: „Síðustu daga hefur fjallið leitað á mig eða öllu heldur sumarið á fjallinu. Norska sumarið hef ég leyft mér að kalla það. Ég fer strax að hugsa um skáldsöguna Pan eftir Knut Hamsun þegar ég minnist á fjallið og sum- arið, og þá fer ég líka að hugsa um ástina. Ef þú hefur lesið Pan þá veistu hvað ég meina.“ (7) Tónn sögumanns og áherslur kall- ast iðulega á við skáldsögur eftir Hamsun, og hann vísar ítrekað til þeirra eins og þegar vinur hans hverfur á braut: „Nú ætti ég auðvit- að að hafa þetta einsog í Pan hjá Knut Hamsun, seinni hlutanum sem heitir Dauði Glahns, plagg frá 1861, og segja að Jonni sé horfinn …“ (207) Það á einkar vel við þar sem stór hluti Passamynda gerist í heimi Hamsuns í norskri sveit og höfund- urinn vinnur svo vel og markvisst með vísanirnar. Og sögumaðurinn finnur sig líka knúinn til að taka til varna fyrir verk Hamsuns þegar kona sem hann hittir hefur hent bók- um hans út af heimilinu og segir að höfundinum verði aldrei fyrirgefið að hafa stutt nasista í stríðinu. Þá segir Haraldur við hana „að rithöf- undar geta haft rétt fyrir sér og rit- höfundar geta haft rangt fyrir sér, en það breytir ekki bókunum sem þeir skrifa. Þær eru annaðhvort góð- ar eða slæmar, þær lifa eða deyja, og það sem þú segir um Knut Hamsun núna er besta sönnun þess að bækur hans lifa því að hann er löngu dauður sjálfur og gerir engum mein fram- ar“. (195) Passamyndir er afar vel lukkuð saga og fer beint í flokk eftirlætis- sagna þessa lesanda eftir Einar Má. Afslöppuð frásögnin er einkar skemmtilega formuð, þar sem uppá- tektasamur og lífsreyndur sögumað- ur horfir aftur til viðburðaríks mót- unartíma þar sem hann heldur út í heim að leita ævintýra, leggur grunn að rithöfundarferli og kynnist at- hyglisverðu fólki – svo ekki sé minnst á ástina „sem öllu ræður en engu stjórnar nema okkur sem vit- um ekki neitt …“ (276) Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Höfundurinn „Tónn sögumannsins er þægilega afslappaður og vel lukkaður, þar sem hann horfir aftur í tímann og nýtur þess að rifja upp atburðina og velta þeim fyrir sér,“ segir rýnir um Passamyndir Einars Más Guðmundssonar. Skáldsaga Passamyndir bbbbm Eftir Einar Má Guðmundsson. Mál & menning, 2017. Innb., 276 bls. EINAR FALUR INGÓLFSSON BÆKUR Að kafa djúpt og fljúga hátt

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.