Morgunblaðið - 29.05.2018, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 2018
Ársfundur Frjálsa lífeyrissjóðsins verður haldinnmiðvikudaginn
30. maí nk. kl. 17.15 í höfuðstöðvumArion banka, Borgartúni 19.
Dagskrá
1. Skýrsla stjórnar
2. Kynning ársreiknings
3. Tryggingafræðileg athugun
4. Fjárfestingarstefna sjóðsins
5. Kosning stjórnar og varamanna
6. Kjör endurskoðanda
7. Tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins
8. Laun stjórnarmanna
9. Önnur mál
Tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins og upplýsingar
um frambjóðendur til stjórnarmá nálgast á frjalsi.is.
Sjóðfélagar þurfa að framvísa skilríkjummeðmynd við skráningu
inn á fundinn.
Stjórn sjóðsins hvetur sjóðfélaga til að mæta á fundinn.
Ársfundur
Frjálsa lífeyrissjóðsins
Það vakti athygli á föstudags-kvöld þegar Einar Þor-
steinsson, frétta-
maður á Ríkis-
útvarpinu, spurði
oddvita Sósíal-
istaflokksins í
Reykjavík út í for-
ingja flokksins,
Gunnar Smára Eg-
ilsson. Innti Einar
oddvitann eftir því
hvort hægt væri að treysta foringj-
anum þegar hann hefði oftar en einu
sinni „skilið launafólk eftir kaup-
laust“.
Oddvitinn slapp vel frá þessu meðþví að svara ekki spurningunni
efnislega en benda á rangar for-
sendur í henni, sérstaklega það að
Gunnar Smári væri ekki formaður
flokksins eins og spyrjandi hafði
sagt.
Spurning af þessu tagi á auðvitaðalveg rétt á sér til frambjóðanda
flokks sem gefur sig sérstaklega út
fyrir að vera málsvari launafólks og
þegar vitað er að sá sem um er spurt
er helsta sprautan í flokknum og
helsti forsprakkinn að stofnun hans.
Þessi orðaskipti vöktu athygli,ekki síst vegna þess að sá sem
um var rætt, Gunnar Smári, virtist
reiðast spurningunni mjög og kallaði
fréttamanninn „drullusokk“ á Fa-
cebook.
Í umræðuþætti á Ríkisútvarpinu ásunnudag gerðist það svo að
Gunnar Smári var spurður út í málið
og þá sagðist hann hafa skynjað að
þarna væri pólitískt dauðafæri og að
þá hefði hann náttúrlega orðið að
gera sér upp það „að verða foxillur
til að magna þetta upp eins mikið og
hægt var“.
Sem sagt bara blekkingaleikur tilað spila með kjósendur.
Gunnar Smári
Egilsson
STAKSTEINAR
Er eitthvað að
marka annað?
Veður víða um heim 28.5., kl. 18.00
Reykjavík 8 alskýjað
Bolungarvík 6 skýjað
Akureyri 10 skýjað
Nuuk 0 léttskýjað
Þórshöfn 10 skýjað
Ósló 22 léttskýjað
Kaupmannahöfn 23 léttskýjað
Stokkhólmur 19 heiðskírt
Helsinki 15 heiðskírt
Lúxemborg 26 léttskýjað
Brussel 28 léttskýjað
Dublin 14 heiðskírt
Glasgow 22 heiðskírt
London 24 heiðskírt
París 24 rigning
Amsterdam 27 heiðskírt
Hamborg 24 rigning
Berlín 28 heiðskírt
Vín 25 heiðskírt
Moskva 17 heiðskírt
Algarve 21 léttskýjað
Madríd 20 rigning
Barcelona 19 rigning
Mallorca 20 heiðskírt
Róm 21 rigning
Aþena 24 heiðskírt
Winnipeg 22 heiðskírt
Montreal 19 skýjað
New York 15 alskýjað
Chicago 23 heiðskírt
Orlando 27 alskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
29. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:30 23:21
ÍSAFJÖRÐUR 2:54 24:07
SIGLUFJÖRÐUR 2:35 23:52
DJÚPIVOGUR 2:50 22:59
Um þrjátíu
manns hafa stað-
fest þátttöku í
hópmálsókn gegn
fyrirtækinu
Geymslum vegna
brunans í Mið-
hrauni í apríl.
Um er að ræða
leigjendur
geymslna í hús-
næði fyrirtæk-
isins sem brann til kaldra kola í stór-
bruna.
Enn fjölgar í hópnum að sögn
Ágústs Valssonar, eins forsvars-
manna leigjendahópsins, en hann
segir að þeir sem að málsókninni
standi hafi bæði orðið fyrir fjárhags-
legu og tilfinningalegu tjóni.
Spurður um kröfur hópsins segir
Ágúst að í fyrsta lagi séu þær að
ábyrgð Geymslna verði viðurkennd
og í öðru lagi verði gerð krafa um
skaðabætur. Lögmaður hópsins er
Guðni Á. Haraldsson hjá Löggarði
og hvetur Ágúst þá sem hug hafa á
að taka þátt í málsókninni að hafa
samband við hann. Leigutakarnir
funduðu fyrst um miðjan maí, en
Ágúst segir Guðna stefna á að halda
sameiginlegan fund fyrir alla þá sem
hyggjast taka þátt í málsókninni
hinn 6. júní klukkan 10.
Upptök eldsvoðans voru í raf-
tenglum neðan við rafmagnstöflu á
brunavegg í miðrými húsnæðis
Icewear í sama húsi og Geymslur
höfðu starfsemi í.
Minnst 30
í mál við
Geymslur
Leigutökum í
hópnum fer fjölgandi
Bruni Frá eldsvoð-
anum í apríl.
Landsréttur staðfesti í gær sex
mánaða langt nálgunarbann yfir
manni sem margdæmdur er fyrir of-
beldisbrot gagnvart konu. Sam-
kvæmt úrskurðinum má maðurinn
ekki koma inn á svæði sem afmark-
ast við 50 metra radíus við heimili
hennar. Þá má hann ekki veita henni
eftirför, nálgast hana á almannafæri
eða setja sig í samband við hana.
Í greinargerð lögreglustjóra kom
fram að ákvörðun hans væri byggð á
því að kærði liggi undir rökstuddum
grun um ofbeldi og ónæði gagnvart
konunni og hafi þannig raskað friði
hennar. Hann var sakfelldur þrisvar
árið 2017 fyrir þrjú ofbeldisbrot
gegn henni og lögregla rannsakar
nú tvö önnur nýleg brot.
M.a. segir konan manninn hafa
veist að sér í maí sl. með ofbeldi,
dregið hana upp stiga, reynt að
kyrkja hana, kýlt ítrekað og haldið
henni nauðugri á heimili hennar.
Sex mánaða langt nálgunarbann staðfest