Morgunblaðið - 29.05.2018, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 29.05.2018, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 2018 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Enn eru til afgreiðslu hjá Viðlaga- tryggingu Íslands bótamál vegna Suðurlandsskjálftans sem varð fyrir réttum tíu árum, 29. maí 2008. Jarðskjálftinn sem átti upptök sín undir Ingólfs- fjalli og var 6,2 að styrkleika reið yfir kl. 15.47 þennan dag og olli miklum skemmdum í Hveragerði, Ölf- usi, á Selfossi og nærliggjandi slóðum þar í kring. Þúsundir tilkynninga um tjón bárust Viðlagatryggingu strax á fyrstu mánuðunum eftir þessar hamfarir. Skv. lögum er lengstur frestur til þess að tilkynna tjón og skemmdir sem hugsanlega má rekja til nátt- úruhamfara alls tíu ár – eða út líð- andi ár – og nokkur slík mál hafa borist á síðustu mánuðum. Þessi frestur er þó háður ákveðnum skil- yrðum svo sem að skemmdir hafi af einhverjum ástæðum ekki verið sýnilegar fyrr en nú. 5.000 tjónamál „Þessi mál eru nú til skoðunar hjá matsmönnum, en ekki liggur þó fyr- ir hverjar lyktir verða, enda er sönn- unarbyrðin alltaf erfið þegar svo langt er liðið frá atburði, segir Hulda Ragnheiður Árnadóttir, framkvæmdastjóri Viðlagatrygging- ar, í samtali við Morgunblaðið. Heildartjón í Suðurlandsskjálft- anum fyrir tíu árum var tæpir 10 milljarðar kr., eða rúmlega 16 millj- arðar kr. að núvirði og eru þetta um- fangsmestu náttúruhamfarir sem komið hafa til úrlausnar Viðlaga- tryggingar Íslands. Alls varð tjón á nærri fjögur þúsund fasteignum og meðaltjón á hverja þeirra um tvær milljónir kr. Um 90% tjóna á hús- eignum voru um eða undir fjórum milljónum kr. Talsvert tjón varð á lausafé, samtals rúmur milljarður kr. Tjónamálin vegna þessara ham- fara voru um 5.000 talsins. Í tilefni af því að tíu ár eru í dag liðin frá Suðurlandsskjálftanum verður í dag opið hús síðdegis hjá rannsóknarmiðstöð Háskóla Íslands í jarðskjálftaverkfræði, sem er til húsa á Austurvegi 2a á Selfossi. Klukkan 17 hefjast fyrirlestrar og þar mun Bjarni Bessason, prófessor við umhverfis- og byggingaverk- fræðideild HÍ fjalla um skemmdir í skjálftunum á Suðurlandi árið 2000 og 2008. Þá mun Tryggvi Hjörtur Oddsson, formaður Björgunarfélags Árborgar, greina frá hlutverki björgunarsveita í jarðskjálftum, en á Suðurlandi var það veigamikið því atburðurinn snerti alla. Tilkynningar berast enn  Tíu ár í dag frá síðasta Suðurlandsskjálfta  Skemmdir eru enn að koma í ljós  Heildartjónið 16 milljarðar króna Morgunblaðið/Sigurður Bogi Skemmdir Þúsundir bygginga fóru illa í skjálftanum. Gaflinn í fjósinu í Gljúfurholti í Ölfusi sprakka út og fljótlega var komið með gröfu í niðurrif. Hulda Ragnheiður Árnadóttir SÉRSÝNING Q&A + TÓNLIST PALLBORÐ: Benedikt Erlingsson, Halldóra Geirharðsdóttir, Ómar Guðjónsson, Magnús E. Tryggvason, Juan Ásthildar, Helga Braga Jónsdóttir, Ólafur Egilsson SPYRILL: Ragnar Kjartansson KYNNIR: Tómas Guðbjartsson Í lokin munu Sigríður Thorlacius og ADHD flytja nokkur lög. HÁSKÓLABÍÓ 30. MAÍ KL. 20 MIÐAVERÐ 2200 KR Á SMARABIO.IS ÁGÓÐI AF SÝNINGUNNI RENNUR TIL RJÚKANDA OG VERNDUN FOSSANNA UPP AF ÓFEIGSFIRÐI. Erna Ýr Öldudóttir ernayr@mbl.is Ölvun við akstur, ásamt því að nota ekki öryggisbelti í akstri, er á meðal meginorsaka tveggja banaslysa í umferðinni haustið 2016. Þetta er mat Rannsóknarnefndar samgönguslysa, en skýrslur nefnd- arinnar vegna slysanna hafa verið birtar. Slysin urðu með nokkurra daga millibili á vegum á landsbyggðinni. Bifreiðunum var báðum ekið út af veginum með þeim afleiðingum að þær ultu. Í slysunum fórust tveir einstaklingar vegna áverka sem þeir hlutu við að kastast til og út úr bif- reiðunum við útafaksturinn en einn komst af alvarlega slasaður, en hann hafði kastast að hluta út úr bifreið- inni. Enginn þeirra var í öryggis- belti. Í orsakagreiningu slysanna kom fram, í báðum tilfellum, að það hefði verið dimmt og ökumenn undir áhrifum áfengis. Í öðru tilfellinu var að auki ekið of hratt og ökumaður hafði ekki öðlast almenn ökuréttindi, einungis heimild til æfingaaksturs með leiðbeinanda. Í hinu tilfellinu var slysið, auk fyrrgreindra atriða, rakið til þreytu ökumanns og rangr- ar ákvarðanatöku eftir að bifreiðinni var ekið út á vegöxl. Ástand og aksturshæfni Samkvæmt upplýsingum frá Rannsóknarnefnd samgönguslysa ætti ekki að vanmeta ástand öku- manna með tilliti til aksturshæfni. Auk ölvunar eða neyslu lyfja eða vímuefna, geti þreyta eða tilfinn- ingalegt uppnám haft veruleg áhrif til skerðingar á aksturhæfni og dóm- greind ökumanna. Nefndin hyggst gera samantekt á helstu orsakaþátt- um banaslysa. Banaslys rakin til ölvunaraksturs  Niðurstaða rannsóknarnefndar Morgunblaðið/Hari Radarmælingar Hraðakstur er ein af orsökum alvarlegra umferðarslysa.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.