Morgunblaðið - 29.05.2018, Side 11
11
Við erum á facebook
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Leggings
með sportrönd
Kr. 7.900
Str. 40-56
Litir: rautt,blátt,svart
Opinn fræðslufundur í fyrirlestrarsal
Íslenskrar erfðagreiningar
Sturlugötu 8, fimmtudaginn 31. maí kl. 17.00 til 18.30.
Kynntar verða niðurstöður nýrrar rannsóknar á
erfðamengi landnámsmanna en grein um hana birtist í
tímaritinu Science sama dag og fræðslufundurinn er haldinn.
Kaffiveitingar frá 16.30 – allir velkomnir.
E R I N D I F LY TJ A :
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
SÍ
A
/
1
8
-2
2
2
1
Ný sýn
á uppruna
Íslendinga
Kári Stefánsson
forstjóri Íslenskrar
erfðagreiningar.
Agnar Helgason
líffræðilegur mannfræðingur
hjá Íslenskri erfðagreiningu.
Sunna Ebenesersdóttir
líffræðilegur mannfræðingur
hjá Íslenskri erfðagreiningu.
Margrét Hallgrimsdóttir
þjóðminjavörður.
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
Elst í nýrri borgarstjórn Reykjavík-
ur er Guðrún Ögmundsdóttir, borg-
arfulltrúi Samfylkingarinnar, 67 ára.
Hún sest aftur í borgarstjórn eftir
tveggja áratuga hlé.
„Ætli það sé ekki fyrst og fremst
hvatvísin hjá mér sem varð þess
valdandi að ég er komin aftur í borg-
arstjórn Reykjavíkur,“ segir Guðrún
sem hugðist fara á eftirlaun um ára-
mót þegar hún lýkur störfum hjá vist-
heimilanefnd.
Guðrún sat fyrst í borgarstjórn
fyrir Kvennalistann og síðar Reykja-
víkurlistann. Guðrún sat á þingi fyrir
Samfylkinguna 1999 til 2003.
„Ég fékk mjög mikla hvatningu og
það þurfti ekki meira til. Það vantaði
aldursbreidd og ég hef alltaf viljað
láta gott af mér leiða. Ég er enn að fá
hugmyndir sem mig langar að fram-
kvæma þrátt fyrir aldurinn,“ segir
Guðrún. Hún segir margt hafa breyst
til batnaðar á 20 árum og starfið legg-
ist vel í sig en hún mun halda einbeita
sér að velferðarmálum.
„Ég hef alltaf verið brúarsmiður og
ætla að halda því áfram. Minn draum-
ur er að snúa kyndlinum við og láta
unga fólkið berjast fyrir málefnum
foreldra sinna og aldraðra á meðan
við eldri tökum baráttuna fyrir unga
fólkið og barnabörnin,“ segir Guðrún
sem og bætir við að það þurfi að
hætta hugsa í boxum.
Reynsla og rödd unga fólksins
Sanna Magdalena Mörtudóttir,
borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins, er
yngsti borgarfulltrúinn í Reykjavík
26 ár gömul.
„Það leggst vel í mig að setjast í
borgarstjórn og ég er mjög ánægð að
vera kominn á þennan stað. Þrátt fyr-
ir að ég sé ung hef ég mikla reynslu
og hef sjálf upplifað fátækt, misskipt-
ingu auðs, óréttlæti í samfélaginu og
hvernig samfélagið brást móður
minni og mér vegna fátæktar,“ segir
Sanna sem er ánægð með það fylgi
sem Sósíalistaflokkurinn fékk sér-
staklega í ljósi þess að um nýtt fram-
boð var að ræða og flokkurinn hafði
lítið sem ekkert fjármagn á bak við
sig.
„Það var magnað að vera í hópi
fólks sem hefur upplifað óréttlæti og
að kerfi borgarinnar hafa ekki mætt
þeirra þörfum. Vera í hópi sem skilur
hvað það er að upplifa það að vera fá-
tækur og valdalaus,“ segir Sanna.
Hún segir það ekki hafa komið sér á
óvart hvað margir tilheyra slíkum
hópi.
„Fólk sem er fátækt er oft í mörg-
um störfum og hefur ekki tíma eða
orku til þess að taka þátt í baráttu.
Það er líka gott að sjá ungt fólk í póli-
tík og að rödd þess heyrist,“ segir
Sanna og bætir við að ungt fólk hafi
reynslu og því sé vel treystandi.
Rödd unga fólksins nýtt framboð í
Grindavík fékk einn bæjarfulltrúa og
var nálægt því að fá annan fulltrúa
kjörinn í bæjarstjórn. Framboðið er
nú næststærsta stjórnmálaaflið í
Grindavík.
Báðum ekki um atkvæði
„Við erum mjög ánægð og reikn-
uðum ekki með jafn góðri niður-
stöðu,“ segir Helga Dís Jakobsdóttir,
oddviti Radda unga fólksins. Hún
segir framboðið þverpólitískt og til-
gangurinn með því hafi verið að koma
ungu fólki 18 til 29 ára í skilning um
það hversu miklu máli atkvæði þeirra
skiptir.
„Við fengum eldri borgara í heið-
urssætin og það var stuðningur og yf-
irlýsing og stuðningur á því að þau
treysti okkur unga fólkinu,“ segir
Helga Dís. Hún segir að Raddir unga
fólksins hafi rætt við öll framboð í
Grindavík og fundið samhljóm með
Samfylkingu, Miðflokki og Fram-
sókn. Það verði því fyrsta verk fram-
boðsins að reyna meirihlutamyndum
með þeim flokkum.
„Á kynningarfundum reyndum við
að útskýra fyrir ungu fólki af hverju
flokkarnir væru með stefnuskrá og
ýmislegt annað hagnýtt,“ segir Helga
Dís og bætir við að þau hafi ekki beð-
ið unga fólkið að kjósa framboðið
heldur hvatt þau til þess að nýta at-
kvæðisrétt sinn.
Unga fólkið má vel við una
með úrslit kosninganna
Raddir unga fólksins næststærsta framboðið í Grindavík Sanna yngst í borg-
arstjórn með mikla reynslu af lífinu Guðrún elst og kemur til baka eftir 20 ár
Guðrún
Ögmundsdóttir
Sanna Magdalena
Mörtudóttir
Helga Dís
Jakobsdóttir
ÚRSLIT SVEITARSTJÓRNARKOSNINGA 2018
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 2018