Morgunblaðið - 29.05.2018, Qupperneq 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 2018
Ráðamenn í Kreml eru ósáttir við
ákvörðun stjórnvalda í Póllandi
þess efnis að biðja um aukna við-
veru bandarískra hersveita þar í
landi. Dímítrí Peskov, fjölmiðla-
fulltrúi Vladimírs Pútíns Rúss-
landsforseta, segir öll ríki eiga rétt
á að ákvarða eigin varnir en þetta
muni þó draga úr stöðugleika á
svæðinu.
„Við höfum þurft að horfa upp á
hernaðarlega útþenslu NATO í átt
að landamærum okkar. Þetta renn-
ir ekki stoðum undir stöðugleika á
svæðinu,“ sagði hann við Reuters.
Þá hefur Bandaríkjaher tilkynnt
Þjóðverjum um umfangsmikla her-
flutninga þar á næstunni, mörg
hundruð brynvarin og beltaknúin
tæki auk þúsunda hermanna.
Uggandi vegna auk-
inna umsvifa NATO
Rússland Talsmaður Pútíns forseta segir
Kreml hafa áhyggjur af stöðunni.
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Utanríkisráðherra Rússlands,
Sergei Lavrov, segir einungis her-
sveitir stjórnar Bashars al-Assads
Sýrlandsforseta eiga rétt á að vera í
suðurhluta Sýrlands, en þar má
meðal annars finna landamærin að
Jórdaníu og Ísrael. Hafa upp-
reisnarmenn hins vegar hluta af
þessu svæði á sínu valdi. Fyrr í þess-
um mánuði gerðu ísraelskar her-
sveitir miklar loftárásir á skotmörk
sem tengjast hernaði Írana í suður-
hluta Sýrlands, en hundruð íranskra
hermanna berjast með stjórnar-
hernum. Eru árásirnar svar við eld-
flaugaárás Írana á hinar hernumdu
Gólan-hæðir. Bæði Rússar og Íranir
eru nánir bandamenn Assads Sýr-
landsforseta.
„Brotthvarf allra hersveita sem
ekki lúta stjórn Sýrlands verður að
eiga sér stað,“ hefur fréttastofa
Reuters eftir Sergei Lavrov. „Út-
koma þeirrar vinnu, sem er í gangi,
ætti að vera sú að hersveitir Sýr-
landsstjórnar standi vaktina við
landamærin að Ísrael.“
Að sögn mannréttindahreyfing-
arinnar Syrian Observatory for
Human Rights eru hersveitir Sýr-
lands farnar að fjölmenna á svæðinu
og hefur áróðri verið dreift úr lofti til
uppreisnarmanna. Eru þeir hvattir
til þess að leggja niður vopn sín og
viðurkenna stjórn Assads. Þykir
þetta benda til þess að stórsókn sé
nú í undirbúningi.
Eiga ekkert erindi í Sýrlandi
Benjamin Netanyahu, forsætis-
ráðherra Ísraels, vill íranskar her-
sveitir út úr Sýrlandi. „Afstaða okk-
ar til Sýrlands er skýr,“ sagði
Netanyahu í ávarpi „Við trúum því
að hersveitir Írans eigi ekkert erindi
innan landamæra Sýrlands.“
Þá mun Avigdor Lieberman,
varnarmálaráðherra Ísraels, halda
til Moskvu og funda með Sergei
Shoigu, varnarmálaráðherra Rúss-
lands. Er fundurinn sagður fara
fram næstkomandi fimmtudag.
Fundarefnið hefur ekki verið gert
opinbert en gera má ráð fyrir að
fulltrúar Rússlands og Ísraels ræði
hernaðaraðgerðir Írana og viðveru
þeirra í Sýrlandi.
Stríðið í Sýrlandi hefur nú staðið
yfir í sjö ár. Nákvæmar tölur um
mannfall eru nokkuð á reiki en
mannréttindasamtök þar í landi
telja að alls um 500 þúsund manns
hafi fallið þar í átökum. Segja sam-
tökin einnig hátt í 4 þúsund almenna
borgara hafa fallið í vopnuðum átök-
um það sem af er þessu ári.
Stjórnarherinn verði ráðandi
afl í suðurhluta Sýrlands
Aðrar vopnaðar sveitir verða að yfirgefa svæðið, segir Sergei Lavrov
AFP
Átakasvæði Tveir bryndrekar sýrlenska stjórnarhersins sjást hér keyra um götur borgarinnar Damaskus um
miðjan þennan mánuð. Voru þeir á leið suður til þess að taka þátt í átökum gegn vígasveitum Ríkis íslams.
Forseti Ítalíu, Sergio Mattarella,
hefur beðið hagfræðinginn Carlo
Cottarelli um að taka við embætti
forsætisráðherra og mynda starf-
hæfa ríkisstjórn þar í landi. Er henni
ætlað að starfa fram að þingkosn-
ingum sem í síðasta lagi eiga að fara
fram í ársbyrjum 2019.
Ekki hefur tekist að mynda ríkis-
stjórn á Ítalíu frá kosningunum 4.
mars sl. Greint hefur verið frá því að
Giuseppe Conte hafi skilað umboði
sínu til stjórnarmyndunar eftir að
Mattarella forseti hafnaði tilnefn-
ingu hans á efnahagsráðherra, en sá
er yfirlýstur andstæðingur evru.
Emmanuel Macron, forseti
Frakklands, lofar ákvörðun Matta-
rella og segir hann vera að uppfylla
skyldu sína með „hugrekki og
ábyrgð“. „Ég ítreka vináttu mína og
stuðning í garð Mattarella, sem
gegnir mikilvægu hlutverki við að
tryggja stöðugleika stofnana og lýð-
ræðis lands síns, sem hann gerir af
miklu hugrekki og ábyrgð.“
Talsmaður Angelu Merkel Þýska-
landskanslara segir Þjóðverja ætla
að bíða og sjá hvaða stjórn muni
leiða landið að lokum. „Þýska stjórn-
in er alltaf tilbúin að vinna vel og ná-
ið með ítölskum stjórnvöldum – það
er grundvallarafstaða okkar,“ hefur
fréttaveita AFP eftir honum.
AFP
Ábyrgð Carlo Cottarelli sést hér ganga á fund með fjölmiðlamönnum í Róm.
Cottarelli beðinn um
að mynda ríkisstjórn
Evrópusam-
bandið (ESB)
hyggst leggja til
bann við notkun
á einnota plast-
varningi til að
stuðla að vernd á
lífríki hafsins. Á
bannið meðal
annars að ná til
drykkjarröra,
plastdiska,
eyrnapinna, plaststauka, sem
gjarnan eru festir við blöðrur, og
plaststauka sem notaðir eru til að
hræra í drykkjum fólks.
Þá vill ESB einnig festa í lög
ákvæði um endurvinnslu á öllum
plastflöskum fyrir árið 2025. Að
sögn breska ríkisútvarpsins (BBC)
verða aðildarríkin 28 og Evrópu-
þingið þó að samþykkja áðurnefnt
frumvarp áður en það getur orðið
að lögum.
ESB vill minnka
notkun á plasti
Rusl Plastflöskur á
endurvinnslustöð.
Minnst fjórir rússneskir ríkisborgarar féllu í árás vígamanna Ríkis íslams
á herstöð í austurhluta Sýrlands. Í hópi hinna látnu voru tveir hernaðar-
ráðgjafar sem veittu Sýrlandsher aðstoð, en þrír Rússar eru einnig sagðir
særðir eftir árásina. Ekki er vitað nánar um líðan þeirra, að sögn breska
ríkisútvarpsins (BBC). Rússnesk stjórnvöld segja hersveitir sínar hafa
drepið 43 vígamenn í átökunum.
Ráðamenn í Kreml hófu í september 2015 að veita ríkisstjórn Bashars
al-Assads Sýrlandsforseta hernaðaraðstoð. Samkvæmt opinberum tölum
hafa nú alls 90 Rússar fallið í landinu frá þeim tíma.
Hátt í 100 Rússar fallið
HERNAÐARAÐSTOÐ RÚSSLANDS
SMÁRALIND
www.skornirthinir.is
Leður strigaskór
Verð: 11.995
Stærðir 36-42
Eigum úrval af
strigaskóm úr leðri
að innan sem utan.
Mjúkur leðurinnsóli
sem gerir skóna
einstaklega þægilega.