Morgunblaðið - 29.05.2018, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 29.05.2018, Blaðsíða 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 2018 ✝ HildurEðvarðsdóttir fæddist í Braut- artungu 31. mars 1956. Hún lést á Sjúkrahúsi Akra- ness 13. maí 2018. Foreldrar henn- ar voru hjónin Eð- varð Pétur Torfa- son, bóndi í Braut- artungu, f. 14. júní 1919, d. 17. apríl 2010, og Guðfinna Torfhildur Guðnadóttir húsmóðir, f. 7. des- ember 1928, d. 26. febrúar 2003. Systkini Hildar eru: 1) Margrét Kristjánsdóttir, f. 1. febrúar 1952, maki Helgi Hannesson, f. 19. sept- ember 1946, búsett í Hveragerði, synir þeirra eru Sævar Þór og Arnar Geir. 2) Sveinn Gunnar Eð- varðsson, f. 5. júní 1953, kona hans Anna Eygló Rafnsdóttir, f. 19. desember 1958, búsett í Borg- arnesi, börn þeirra Eðvarð Jón og Anna Margrét, Anna átti fyrir Arnar Pálma Pétursson. 3) Guðni Eðvarðsson, f. 20. júlí 1960, kona hans er Halldóra Ingimund- ardóttir, f. 29. maí 1962, búsett í Brautartungu, börn þeirra eru Ingimundur Pétur, Einar Örn og Guðfinna Sif. Eftirlifandi eiginmaður Hildar er Eiríkur Sveinsson, f. 24. des- ember 1948, og giftu þau sig 29. desem- ber 2000 og bjuggu alla tíð á Akranesi. Foreldrar Eiríks voru Sveinn Jónsson og Hallveig Eiríks- dóttir, bæði látin. Systkini Eiríks eru Jón Sveinsson, son- ur hans Halldór Páll, og Jenný Una Sveinsdóttir, látin, synir hennar Sveinn Unnar og Valur. Hildur gekk í barnaskóla á Kleppjárnsreykjum rétt eins og systkini hennar, síðan í Gagn- fræðaskólann í Reykholti. Hún vann fyrst í Sláturhúsinu í Borg- arnesi, síðan um tíma í Skíðaskál- anum í Hveradölum, en það var eftir vinnuna þar sem hún hóf nám í Sjúkraliðaskólanum. Eftir útskrift vann hún á Hjúkr- unarheimilinu Grund í Reykja- vík. Hildur fluttist á Akranes árið 1981 og hóf störf á sjúkrahúsinu þar, hún vann lengst á E- deildinni eða þar til hún var lögð niður árið 2012. Hildur kynntist manni sínum um svipað leyti og hún hóf vinnu á Akranesi. Hildur verður jarðsungin frá Akraneskirkju í dag, 29. maí 2018, kl. 13. Elsku Hildur mín, þá er komið að kveðjustund en þá er svo erfitt að koma hugsunum sínum í orð. Þegar við kynntumst fyrst vannst þú sem sjúkraliði á E- deildinni. Eitt sem mér fannst mikið til koma var þegar þú talaðir um að í vinnunni fyndist þér þú ekki hafa nægan tíma til að geta sest niður hjá sjúklingunum til að spjalla, vegna þess að þér fannst að gamla fólkið á deildinni þinni hefði svo oft þörf fyrir eitthvað slíkt. Og ég er viss um að þú gafst þér þann tíma sem þú hafðir til þess. Því hvern sem ég talaði við, hvort sem um var að ræða sjúkling eða aðstandanda, fékkst þú alltaf toppmeðmæli. Þetta fann ég líka oft á samverustundum að þú hugs- aðir alltaf meira um aðra en þig sjálfa. Samanber þegar þér leið sem verst heima vegna verkja í skrokknum og ég átti til dæmis að fara í vinnu að morgni að þegar ég fór inn til að leggja mig komst þú alltaf og lokaðir svefnherbergisdyr- unum til þess að ég gæti sofið en þú gekkst um gólf og gast ekki sofið, gast ekki setið eða legið vegna verkja og pirrings í fótum. En við áttum líka góðar stundir sem betur fer, við skemmtum okkur ætíð vel við uppáhaldið þitt, sjóstöngina, og fórum um allt land til að taka þátt í sjóstangveiðimótum. Þar fékkstu oft verðlaun og meira segja fékkstu einu sinni stærsta fisk sumarsins, sem mig minnir að hafi verið rúm 18 kíló. Í þessum félagsskap eign- uðumst við marga góða vini. Nokk- ur ár fórum við á Fiskidaginn mikla á Dalvík og vorum þá oft í samfloti með Guðna og Halldóru á Lukk- unni og krökkunum þeirra, þar skemmtum við okkur alltaf vel. Þar hittum við oft félaga okkar úr sjós- tönginni og það var alltaf gaman. Einnig fórum við á nokkur ættar- mót, bæði með þínu fólki og mínu. En nú líður þér vel, nú eru eng- ir verkir. Nú geturðu farið allra þinna ferða án þess að finna til og ég veit að foreldrar okkar beggja hafa tekið á móti þér ásamt öllum þeim sem þekktu þig en fóru á undan þér. Margt er það og margt er það sem minningarnar vekur, og þær eru það eina sem enginn frá mér tekur. (Davíð Stefánsson) Þú varst engill á jörðu, nú ert þú engill á himni. Ég mun ætíð eiga fallegar minningar um samveru okkar. Eiríkur Sveinsson. Himneskt er að vera með vorið vistað í sálinni, sólina og eilíft sumar í hjarta. Því hamingjan felst í því að vera með himininn í hjartanu. Lifi lífið! (Sigurbjörn Þorkelsson) Ástkær mágkona mín er fallin frá, langt um aldur fram. Ég kynntist þér fyrst í nóvember 1979 þegar Guðni bróðir þinn fór með mig í heimsókn til þín í Reykjavík þar sem þú varst að mennta þig í Sjúkraliðaskólanum. Þegar þú varst orðin sjúkraliði fluttirðu á Akranes og fórst að vinna á Sjúkrahúsi Akraness, að mestu leyti á E-deildinni, og vannst þar allt til lokunar hennar 2012. Þú kynntist Eiríki þínum á Akranesi nokkrum mánuðum eftir að þú flytur þangað. Fyrst bjugg- uð þið á Brekkubrautinni og síðan keyptuð þið lítið krúttlegt hús á Skagabraut 48. Þú varst ekki há í loftinu en seiglan í þessum litla búk þínum var mikil og ósérhlífn- ari manneskju hef ég aldrei kynnst. Hugsaðir alltaf fyrst um aðra en síðast um sjálfa þig í öllu sem þú tókst þér fyrir hendur. Þú áttir þér dýrmætt tóm- stundagaman, það var að fara út á sjó og veiða. Þið fóruð saman í mörg ár vítt og breitt um landið og kepptuð á sjóstangamótum og oft- ar en ekki varstu aflahæst eða mjög nálægt því enda sést það best á skápnum þínum heima hjá þér, hann er fullur af verðlauna- gripum sem þú hefur unnið til á þessum mótum. Einnig voruð þið Eiríkur dugleg að fara í útilegur, fyrst með tjaldvagninn, síðan A- hýsið og svo í fyrravor keyptuð þið ykkur húsbíl og nefnduð hann Hjarðarból eftir æskuheimili Ei- ríks. Við fórum oft saman í útileg- ur, m.a. á Fiskidaginn á Dalvík í þó nokkur skipti. Þú hafðir yndi af að umgangast systkinabörn þín. Börnin og barnabörnin okkar Guðna hafa alla tíð dýrkað að vera í nálægð ykkar Eiríks. Megi góður guð styrkja hann Eirík þinn, systkini þín og systk- inabörnin, það er mikill missir að þér, kæra mágkona. Nú er komið að leiðarlokum, elsku Hildur mín, og vil ég þakka þér fyrir allar stundirnar okkar saman í þessi tæp 40 ár sem við er- um búnar að þekkjast, við sjáumst svo í sumarlandinu síðar. Bless þangað til. Þín mágkona, Halldóra Ingimundardóttir. Marga góða vini hef ég eignast í gegnum árin í kringum sjóstanga- veiðina sem ég hef stundað í all- mörg ár. Margir þeirra eru farnir yfir í Sumarlandið og enn kveð ég góða vinkonu og veiðifélaga, hana Hildi mína. Okkar kynni hófust um borð í bát í móti hjá SJÓSKIP Akranesi. Þétt handaband og mjúkur faðmur tók á móti mér og bauð mig velkomna um borð. Þarna var kominn keppinautur með mikið keppnisskap. Yndisleg- ur veiðifélagi. Hildur vann til margra verð- launa, ekki síst í sínu félagi, SJÓ- SKIP. Við urðum góðar vinkonur og á hverju sumri komu þau Hild- ur og Eiríkur í heimsókn til okkar hjóna, þá sögðum við jafnan „núna er sumarið komið“. Þau voru gleðigjafar og gott að spjalla við þau, og gott að finna hve innileg ást var á milli þeirra. En núna verður langt að bíða eftir sumrinu. Þessi fáu minningarorð skrifa ég um vinkonu mína, því ekki mun ég geta fylgt henni á kveðjustund. Minning um góða konu mun lifa. Við eigum eflaust eftir að hitt- ast í Sumarlandinu og veiða sam- an á vötnunum þar. Elsku Eirík- ur, megi algóður Guð styrkja þig í sorginni. Samúðarkveðjur til ætt- ingja og vina. Sigurbjörg Kristjánsdóttir (Sibba í Sjósnæ). Hvar skal byrja, elsku Hildur mín. Duglega og þrjóska frænka sem mun alltaf eiga hjartastað hjá mér. Þú og Eiríkur hafið fyllt hjartað mitt af ást og kærleika og alltaf verið minn innblástur í hvað ást væri. Áður en ég kynntist Pat- reki mínum dreymdi mig um það sem þið höfðuð og hafið ennþá þótt þú sért frá okkur farin. Virð- ingin og væntumþykjan sem þið gáfuð hvort öðru var svo falleg og mun ég taka hana til fyrirmyndar. Hildur er mín fyrirmynd í lífinu. Þrátt fyrir þær þrautir sem hún þurfti að ganga í gegnum lét hún ekkert stoppa sig. Hún Hildur mín var alltaf með aðra í fyrsta sæti á undan sjálfri sér, alveg til síðasta dags. Þegar maður kom í heimsókn til þeirra var alltaf farið í alla skápa og athugað hvort það væri ekki eitthvað til handa manni og áður en maður vissi af var hún rokin út í sjoppuna beint á móti að kaupa eitthvað. Það er ástæðan fyrir því að mér mér þykir svo vænt um vinnuna mína því ég er verslunarstjóri þar. Það er ein minning sem er mér svo minnis- stæð um hana Hildi mína. Þegar við frænkur vorum nýbúnar að fá ný föt frá ömmu og afa hentu bræður okkar okkur út í sund- laugina og Hildur varð alveg brjál- uð og hljóp út í laug og svoleiðis húðskammaði þá. Hildur var okk- ar verndarengill og verður það áfram þar sem hún er núna. Hún og Ebbi afi voru eins, alltaf að hugsa um aðra á undan sjálfum sér og ef þau ætluðu sér eitthvað gerðu þau það þótt hugurinn væri á undan fótunum. Fiskidagurinn á Dalvík verður aldrei eins. Hildur og Eiríkur með ungana sína; þrátt fyrir að vera á hinu svokallaða unglingatjaldstæði voruð þið alltaf þar. Við fengum heitt vatn í núðl- urnar okkar og fengum að hlaða símana okkar. Þessar endalausu minningar um Hildi eru svo dýr- mætar og er ég einstaklega þakk- lát fyrir að hafa farið og hitt þig í síðasta skipti, þú varst svo jákvæð en þú pældir samt ekki í þér fyrst heldur okkur Patreki og mömmu. Ætlaðir sko að standa upp úr rúm- inu að fá okkur til þess að setjast niður, við ættum sko ekki að þurfa að standa. Það sem ég er líka þakklát fyrir er að hafa fengið að gera þig fína alloft fyrir eitthvað, þorrablót og jólahlaðborð og allt svoleiðis, núna síðast fyrir jólin. Þar kom þrjóskan þín svo sann- arlega fram. Kemur hlaupandi yf- ir í sjoppu og spyrð eftir mér og biður mig að sjæna þig fyrir jóla- hlaðborð. Heldur betur gerði ég það og sjá hvað þú geislaðir af hamingju yfir því hvað þú varst fín. Hildur var falleg kona með fal- legt og stórt hjarta sem var stút- fullt af ást og kærleika og mun ég sakna hennar mjög mikið. Engar áhyggjur, Hildur, við munum ann- ast hann Eirík af jafn mikilli ást og kærleik og þið sýnduð okkur öll- um. Sérðu ekki við fæddumst til að standa hlið við hlið og halda út á veginn saman og líta aldrei við. Með þér vil ég verða gömul og ganga lífsins veg með þér er líf mitt ríkara – með þér er ég bara ég. Með þér er vorið yndislegt og sumarið dýrðin ein. Með þér er haustið göngutúr og ævintýri undir stein. Með þér er veturinn kertaljós koss og stök rós. (Bubbi Morthens) Þín frænka, Anna Margrét Sveinsdóttir. Ég vil minnast Hildar frænku minnar með nokkrum orðum. Við vorum jafnöldrur, það munaði ekki nema tæplega mánuði á okk- ur í árinu og vorum því nánar m.a. vegna þess. Samskiptin voru tals- verð á unglingsárunum, mömmur okkar systur og við borgarfjöl- skyldan komum oft í heimsókn í sveitina og það var alltaf svo gam- an. Móttökurnar í Brautartungu voru ekkert slor og ekki skemmdi fyrir að fá að taka þátt í heyskap og öðrum sveitastörfum. Í hugann kemur lyktin af tómatplöntunum sem voru í hlýjum gróðurhúsum. Og þarna var Hildur frænka mín glaðleg og létt í lund. Hildur kom oft í heimsókn til okkar frændfólksins í Reykjavík og þá gerðum við frænkurnar okk- ur glaðan dag. Mér er ennþá í minni kvikmynd sem við fórum saman á í bíó, í miklu óveðri sem geisaði í Reykjavík, þetta var Love Story og við grétum fögrum tárum yfir örlögum hetjanna í myndinni en mikið þótti okkur nú gaman þrátt fyrir sorgina. Við ræddum um allt milli himins og jarðar eins og ungt fólk gerir og mér þótti alltaf mikið til frænku minnar koma því hún var mikill dugnaðarforkur. Í dag væri sagt að hún hafi sett sér markmið og náði þeim, með góðum árangri. Hildur þurfti nefnilega að takast á við ýmis veikindi alveg frá fyrstu tíð en hún lét það aldrei aftra sér. Hildi langaði til að vinna við hjúkr- un, að hjúkra og annast þá sem sjúkir væru. Það gerði hún og menntaði sig sem sjúkraliði. Samverustundum okkar Hildar fækkaði eftir því sem árin liðu eins og gengur en ég fann alltaf þegar við hittumst að gamli vináttu- strengurinn sem okkur batt forð- um slitnaði ekki. Hún var afskap- lega ánægð með systkinabörnin sín og þau veittu henni mikla gleði. Blessuð sé minning frænku minnar. Heiða Pálmadóttir. Hildur Eðvarðsdóttir Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÁRNI REYNIR HÁLFDANARSON vélfræðingur, lést 13. maí sl. Útförin fer fram föstudaginn 1. júní nk. frá Víðistaðakirkju og hefst athöfnin klukkan 13.00. Margrét Reynisdóttir Gylfi Þorsteinsson Katrín Árnadóttir Stefán Rafnar Jóhannsson Lára Árnadóttir Ólafur Helgi Árnason Stefanía Knútsdóttir Annie Árnadóttir Gustavo Dorati Jón Hálfdan Árnason Guðný Þóra Friðriksdóttir Hrafnhildur Árnadóttir Hannibal Guðmundsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SVEINN ARNAR DAVÍÐSSON verkstjóri, lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands síðastliðinn laugardag. Útför hans verður gerð frá Stykkishólmskirkju laugardaginn 2. júní klukkan 14. Örn Sveinsson Birna Sveinsdóttir Árni Árnason Sesselja Sveinsdóttir Sigurður Kristinsson Hilmar Sveinsson Pála Vilhjálmsdóttir Davíð Sveinsson Anna María Rafnsdóttir Vignir Sveinsson Hera Sveinsdóttir Kristján Gunnarsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, ODDUR PÉTURSSON frá Grænagarði, sem lést fimmtudaginn 24. maí, verður jarðsunginn frá Ísafjarðarkirkju föstudaginn 1. júní klukkan 14. Magdalena M. Sigurðardóttir Elías Oddsson Ingibjörg Svavarsdóttir Ólöf B. Oddsdóttir Valdimar J. Halldórsson Haukur Oddsson Margrét Gunnarsdóttir Jóhanna Oddsdóttir Jón Ólafur Sigurðsson Pétur Oddsson Sigurlín G. Pétursdóttir Sigurður Oddsson afa- og langafabörn Okkar elskulegi BÖÐVAR JÓNSSON, Grettisgötu 13c, lést á Landspítalanum föstudaginn 25. maí. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 31. maí klukkan 15. Óli, Erla, Þórður, Heather, Guðný, Gunna Stína, Hinrik, Haukur, Gunna, Ásgeir, Fanney, Óskar, Gunna Stína, Hinrik, Haukur, Albert Frímann, Ívar Breki og fjölskyldur Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA GUÐNÝ JÓHANNSDÓTTIR frá Þorlákshöfn, lést á dvalarheimilinu Lundi miðvikudaginn 23. maí. Útförin fer fram frá Þorlákskirkju föstudaginn 1. júní klukkan 14. Árni Áskelsson Jóhanna Marín Jónsdóttir Bjarni Áskelsson Ingibjörg H. Sigurðardóttir Guðmundur S. Áskelsson Þóra Bjarnadóttir Torfi Áskelsson Júlíana Hilmisdóttir Gestur Áskelsson Sigríður Kjartansdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, fósturpabbi, tengdapabbi, afi og frændi, BJÖRGÚLFUR ANDRÉSSON, Unnarbraut 26, Seltjarnarnesi, varð bráðkvaddur á heimili sínu sunnudaginn 27. maí. Hafdís Jónsdóttir Gyða Margrét Pétursdóttir Matthías Hemstock Ýmir, Elvin og Bragi Anna Björg Sigurðardóttir Víglundur Ákason Ragnhildur Hrund Sigurðard.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.