Morgunblaðið - 29.05.2018, Síða 30

Morgunblaðið - 29.05.2018, Síða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 2018 Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is „Bókin hefur að geyma ljóð, smá- sögur og ljóðævintýri,“ segir Sveinbjörg Alexanders um Aft- anskin, sem hún hefur gefið út til að heiðra aldarminningu móður sinnar, Ólafar Jónsdóttur rithöf- undar. Ólöf fæddist árið 1909 í Litlu-Ávík á Ströndum og ólst þar upp, en fluttist síðar til Reykjavík- ur þar sem hún bjó til dánardags árið 1997. Samhliða ritstörfum vann hún um skeið sem hvíslari hjá Þjóðleikhúsinu og í Þjóðminjasafni Íslands. Verkin í Aftanskini eru frá síð- ustu æviárum Ólafar. Flest voru bara til í handriti, en önnur hafa birst áður og þau valdi Sveinbjörg af stakri kostgæfni. „Til dæmis æv- intýrið „Rósin og stjakinn“ í einni af mínum uppáhaldsbókum, Heim- sókn, sem kom út árið 1959 og var fyrsta bók móður minnar. Allt frá árinu 1954 höfðu þó birst eftir hana smásögur, ljóð og þulur í blöðum og tímaritum. Margir hafa í áranna rás opinberlega sungið lög við ljóð- in hennar, þar á meðal merkar söngkonur eins og Ingibjörg Þor- bergs og Jóhanna Linnet,“ segir Sveinbjörg og lætur þess getið að móðir hennar hafi á sinni tíð flutt fjölda erinda og bæði samið og les- ið barnaefni í útvarpinu. Af listrænu fólki „Mamma var komin af list- hneigðum borgfirskum og norð- lenskum ættum. Meðal forfeðra hennar var séra Matthías Joch- umsson og því átti hún kannski ekki langt að sækja skáldgáfuna. Hún fékk yfirleitt mikið lof og prís fyrir verk sín, listamannalaun um tíma og ýmis verðlaun og viður- kenningar. Þótt hún væri ekki langskólagengin stundaði hún sjálfsnám af kappi. Hún sótti bók- menntatíma í Háskóla Íslands auk þess sem hún fór í upplestrarnám hjá Lárusi Pálssyni leikara, og fleira mætti tína til.“ Ólöf sendi frá sér þrettán bækur af ýmsum toga. Af barna- og ung- lingabókum má nefna Dularfulla njósnarann, Glaða daga og Gunna og Palla í Texas. Viðamestu verkin eru þó líklega Úr fylgsnum fyrri tíðar, sem kom út í þremur bind- um, með viðtölum Ólafar við þekkta sem óþekkta Íslendinga. Sjálfri finnst Sveinbjörgu ekki hægt að tala um skáldskap móður sinnar án þess að geta um ljóða- bókina Dögg næturinnar. „Í þess- ari yfirlætislausu bók er að finna skærar perlur, sem gott er að eiga og geyma í minni, þótt það séu perlur sorgarinnar, en einmitt í þeim verður ljósið fegurst,“ sagði gagnrýnandi Þjóðviljans meðal annars um bókina á sínum tíma. „Yndisleg ljóð,“ segir Sveinbjörg einfaldlega. Stóra stundin Það var stór stund í lífi Svein- bjargar í Pennanum-Eymundsson í Austurstræti á laugardaginn þegar hún kynnti bókina og fékk Arnar Jónsson leikara til að lesa upp úr henni. „Ég vil reyndar ekki eigna mér allan heiðurinn af útgáfunni, því sonur minn, Simon Björgvin Veredon, hjálpaði mér með umbrot og kápuhönnun og Halldóra Björnsdóttir las prófarkir og kom einnig að umbrotinu,“ upplýsir hún. Þótt höf og lönd hafi oftast skilið þær mæðgur að frá því dóttirin hleypti heimdraganum aðeins 17 ára segir Sveinbjörg að þær hafi alltaf skipst á sendibréfum og að á milli þeirra hafi ríkt gagnkvæm ást og virðing. „Hún styrkti mig í öllu því sem ég gerði með jákvæðni sinni og hvatningarorðum. Ég dáð- ist að umburðarlyndi hennar og þolinmæli. Hún líktist einna helst þeim kjörviði, sem ekkert fær beygt,“ segir Sveinbjörg. Og er nú farin að hljóma býsna skáldlega. Samt kveðst hún ekki hafa í sér snefil af skáldageni. Listagyðjan beindi henni snemma á aðrar brautir; ballettinn varð hennar líf, starf og yndi. Ballerína á heimsvísu „Eftir ballettnám í Þjóðleikhús- inu fór ég í Konunglega ballett- skólann í London. Næst lá leiðin vestur um haf þar sem ég stundaði nám við Hartford-ballettskólann í Connecticut og öðlaðist Vaganova- kennararéttindi.“ Ballettferill Sveinbjargar spann- ar meira en þrjá áratugi. Hún hef- ur m.a. verið í Stuttgart-ballett- inum, aðaldansari hjá Tanz-- Forum-flokknum í Köln og dansaði í ótal klassískum og nútímalegum ballettum í frægustu óperuhúsum heims. Ballerína á heimsvísu sem unnið hefur með heimsþekktum danshöfundum og sjálf samið ball- etta og dansa fyrir óperur, leikrit og sjónvarp sem og sviðsett ball- etta eftir aðra. Auk þess hefur hún leikið aðalhlutverk í leikritum eftir Tennessee Williams, Jean Cocteau og fleiri fræga. Alltaf á ferð og flugi. Kvikmyndagerð í Berlín „Síðustu tvo áratugina hef ég aðallega starfað sem kennari í ball- ettskólum, ballettflokkum og há- skólum í Bandaríkjunum og Evr- ópu, verið í dómnefndum í alþjóð- legum danskeppnum og einnig sem sviðsstjóri við Óperuna í Köln,“ segir Sveinbjörg og víkur að því starfi sem hún er einna stoltust af á ferlinum: „Á árunum 1997-2007 var ég ballettmeistari og skóla- stjóri við Nevada-ballettinn í Bandaríkjunum, þar sem um 600 nemendur stunduðu nám í ballett og ýmiss konar sviðslistum undir leiðsögn 23 kennara.“ Árið 2012 réð hún sig til starfa sem aðstoðarskólastjóri við Margot Fonteyn-ballettakademíuna í New York. Núna segist hún vera í „millibilsástandi“ því til standi að flytja skólann, jafnvel til Ástralíu og Frakklands. Þótt hún viti ekki hvað framtíðin ber í skauti sér sit- ur Sveinbjörg ekki auðum höndum. Hún er á leiðinni til Berlínar, þar sem hún hefur búið undanfarið og unnið að kvikmynd ásamt Simoni, syni sínum, sem leikstýrir, en hann er kvikmyndaleikstjóri, leikari, rit- höfundur og upplesari. Og um hvað skyldi kvikmyndin vera? „Dans,“ svarar hún að bragði. Heiðrar aldarminningu móður sinnar  Sveinbjörg Alexanders hefur gefið út bókina Aftanskin með áður óbirtum ljóðum og smásögum móður sinnar, Ólafar Jónsdóttur rithöfundar  Ólöf sendi frá sér þrettán bækur af ýmsum toga Morgunblaðið/Árni Sæberg Aftanskin Sveinbjörg efndi til kynningar á bók móður sinnar, Aftanskini, og fékk Arnar Jónsson leikara til að lesa. Ljósmynd/Pipo Tafel Ballettkennari Sveinbjörg leiðbeinir 15 ára ballerínu, sem vann silf- urverðlaun í alþjóðlegu danskeppninni í Riga í Lettlandi í apríl sl. Listahátið 1974 Sveinbjörg og Truman Finn- ey dönsuðu Grand pas de deux með glæsibrag á Listahátíð í Reykjavík árið 1974. Rithöfundur Ólöf Jónsdóttir skrif- aði ljóð, smásögur og barnabækur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.