Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.05.2018, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.05.2018, Blaðsíða 40
SUNNUDAGUR 27. MAÍ 2018 VICENZA svefnsófi Sérlega vandaður svefnsófi. Dökkgrátt, grátt, dökkblátt og ljóst slitsterkt áklæði. Stærð: 185 x 94 x 84 cm. Svefnpláss: 140 x 200 cm. Fullt verð: 289.900 kr. Aðeins 144.950 kr. 50% AFSLÁTTUR TILBOÐ SHAPEDELUXE og Pertect T stillanlegur botn Shape Deluxe 90 x 200 heilsudýna og Perfect T stillanlegur botn. Meðal eiginleika Perfect T er að hann er með nuddi, þráðlausri fjarstýringu, USB-tengi, LED lýsinguog tveimur mótorum. Fullt verð: 248.900 kr. Aðeins 201.080kr. 30% AFSLÁTTUR TILBOÐ afShapeDeluxdýnu 15%af botni Smáratorgi | Holtagörðum | Akureyri | Ísafirði OP IÐ Á SU NN UD ÖG UM Í DO RM A SM ÁR AT OR GI Afgreiðslutími Rvk Mánudaga til föstudaga kl. 10–18 Laugardaga kl. 11–17 Sunnudaga kl. 13–17 (Smáratorgi) www.dorma.is Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði Vikutilboð 25. til 31.maí „Ég er þakklát fyrir þennan titil, en að vera for- setafrú er ekki starf,“ segir Eliza Reid, for- setafrú Íslands, í viðtali við blaðamann indverska fjölmiðilsins The Hindu Businessline sem birtist síðatliðinn föstudag. Með orðum sínum vísar hún til starfs síns í þágu IWR, Iceland Writers Re- treat, sem er árlegt mót rithöfunda sem koma til Íslands til að vinna að skriftum í litlum hópum og kynna sér íslenskar bókmenntir. Blaðamaður spurði Elizu hvort hún teldi að það að hún væri orðin forsetafrú kæmi IWR til góða og hvort vin- sældir rithöfundamótsins væru meiri eftir það. Sagði Eliza að það hefði verið henni afar mik- ilvægt að halda áfram starfi sínu fyrir IWR þótt eiginmaður hennar, Guðni Th. Jóhannesson, væri orðinn forseti landsins. Hún bætti enn fremur við: „Ég myndi aldrei vilja að einhver héldi að ég nýtti stöðu mína sem forsetafrú í þágu þessa verkefnis.“ Í viðtalinu ræðir Eliza ís- lenskar bókmenntir, stöðu bókarinnar og stöðu landsins í tilefni 100 ára afmælis fullveldisins. IWR fer fram í apríl á hverju ári, en í ár voru þátttakendur 110 frá 17 löndum. Eftir að Eliza Reid fluttist til Íslands gerðist hún blaðamaður hjá ýmsum íslenskum tímaritum. Í viðtalinu við indverska fjölmiðilinn segist hún þó ekki ganga með bók í maganum. AFP Ekki starf að vera forsetafrú Eliza Reid segir það hafa verið henni mikilvægt að halda eigin starfi áfram í þágu Iceland Writers Retreat. Á þessum degi fyrir 30 árum synjaði Húsfriðunarnefnd beiðni Menntaskólans í Reykjavík um að sett yrði tvöfalt gler í glugga skólahússins. Í viðtali við Morgunblaðið sagðist Guðni Guðmundsson, þá rektor skólans, eiga erfitt með að sætta sig við þessa niður- stöðu. Nemendur og kennara héldust stundum illa við í ákveðnum hlutum skólans í verstu kuldaköstunum á vet- urna. Þáverandi þjóðminjavörður og formaður Húsfriðunar- nefndar, Þór Magnússon, sagði að þar sem hús MR væri friðað myndi slík aðgerð breyta húsinu talsvert og því hefði beiðninni verið hafnað. Hann benti á að hægt væri í staðinn til dæmis að fara þá leið sem gert var á Bessastöðum árið áður, 1987, þegar laus innri fög voru sett á gluggana. Guðni rektor bað Húsfrið- unarnefnd um að endurskoða niðurstöðu sína. „Ég held að það verði erfitt fyrir okkur að breyta þessari niðurstöðu, ef menn á annað borð vilja halda útliti og gerð hússins,“ sagði Þór í sam- tali við Morgunblaðið. GAMLA FRÉTTIN Fengu ekki tvöfalt gler Margir nemendur og kennarar undu sér illa í húsnæði Menntaskólans í Reykjavík vegna kulda og var gjarnan kvartað yfir því í blöðum. ÞRÍFARAR VIKUNNAR Jenni Pulos sjónvarpsframleiðandi Julia Louis-Dreyfus leikkona Hanna Eiríksdóttir markaðsstjóri Omnom Chocolate

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.