Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.05.2018, Blaðsíða 28
FERÐALÖG Flugfarþegum er alltaf að fjölga en í Bandaríkjunum er spáðað á eftirfarandi þremur dögum verði flugvellirnir óvenjulegafullir; fimmtudagana 5., 12. og 19. júlí. Þeir, sem er illa við
þvögur, ættu að reyna að ferðast á öðrum dögum.
Fullir flugvellir
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.5. 2018
Á næsta ári verður áratugurliðinn frá því að Íslendingargátu flogið beint til Seattle,
stærstu borgar Washington-fylkis í
Bandaríkjunum. Nokkur ljómi hefur
verið yfir borginni um langan aldur,
m.a. vegna þess að þar hafa risaþot-
urnar frá Boeing orðið til. En þar
eiga íbúar Norðurlanda einnig mörg
ættmenni. Þangað héldu margir
vesturfaranna í lok 19. aldar og
freistuðu gæfunnar í sjávarútvegi og
timburiðnaði.
Frá því að Icelandair hóf beint
flug til borgarinnar hefur henni vax-
ið mjög ásmegin og skýrist það m.a.
af því að nokkur af öflugustu fyrir-
tækjum heims hafa þarf höfuð-
stöðvar sínar. Má þar m.a. nefna
Microsoft, Starbucks, fyrrnefndar
Boeing-verksmiðjur og Amazon.
Auðvelt að rata um
Þótt stórborgarsvæðið í kringum
Seattle telji á sjöundu milljón íbúa
er borgin sjálf aðeins byggð ríflega
600 þúsund íbúum. Þá er borgin vel
skipulögð og auðvelt að rata eftir
breiðstrætum hennar.
Áður en hótel er pantað í borginni
er ágætt að ganga úr skugga um
hvort þar sé hægt að fá lánað eða
leigt hjól fyrir lítinn pening. Þannig
er borgin mjög aðgengileg hjólreiða-
fólki og ef ekki er farið of hratt yfir
hafa íbúar hennar skilning á því þótt
aðkomufólk ferðist um eftir gang-
stéttum. Eftir nokkrum stærri göt-
unum eru einnig sérstakir hjólreiða-
stígar sem henta vel ef ætlunin er að
fara ögn hraðar yfir.
Líkt og víðast hvar í Bandaríkj-
unum er allvíða hægt að komast í
góðan morgunverð í borginni. Þar
má sérstaklega mæla með 5 Point
Café, sem er undarleg samblanda af
bar og kaffihúsi. Staðurinn er opinn
allan sólarhringinn en kaffið er gott
og maturinn ekki síðri!
Höggmyndir
á heimsmælikvarða
Að staðgóðum morgunverði loknum
er tilvalið að draga fram hjólið og
Morgunblaðið/Stefán E. Stefánsson
Á hjóli um hina töfrandi Seattle
Seattle er heimaborg margra af þekktustu
fyrirtækjum heims. Þrátt fyrir það eru íbúar
borgarinnar aðeins ríflega 600 þúsund talsins.
Hún er ótrúlega aðgengileg fyrir fólk sem
þangað kemur í fyrsta sinn og það er einstaklega
gaman að ferðast um hana á hjóli.
Stefán Einar Stefánsson ses@mbl.is
Seattle er heillandi og
vel skipulögð borg
sem gott er að sækja
heim á eigin vegum.
NÝ ÞJÓNUSTA
FYRIR ÁSKRIFENDUR
HLJÓÐMOGGI FYRIR
FÓLK Á FERÐ