Fréttablaðið - 10.08.2018, Side 14

Fréttablaðið - 10.08.2018, Side 14
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5407. Þennan dag árið 1927 lést Stephan G. Stephansson skáld, 73 ára að aldri. Ungur flutti hann vestur um haf og bjó hann lengi við Klettafjöll. Hann var oft kallaður Klettafjallaskáldið. Stephan G. Stephansson hét upphaf- lega Stefán Guðmundur Guðmundsson. Hann var fæddur þann 3. október árið 1853 á Kirkjubóli í Skagafirði. Stefán bjó í Skagafirði til 15 ára aldurs en flutti þá í Þingeyjarsýslu og starfaði þar sem vinnumaður. Hann bjó þar þangað til hann fluttist til Vesturheims ásamt fjöl- skyldu sinni. Í fimm ár bjó hann í Wisconsin-ríki í Bandaríkjunum og giftist þar Helgu Sigríði Jónsdóttur. Áttu þau saman átta börn en sex þeirra komust á legg. Næst bjó Stefán í Norður-Dakóta, í tíu ár. Í Wisconsin kallaði hann sig Stefán Guðmundsson en í Dakota var hann skrifaður Stefansson, sem gerði það að verkum að bréf hans rugluðust við bréf annarra Stefanssona svo Stefán tók upp nafnið Stephan G. Stephansson, sem hann varð síðar þekktur undir. Fyrsta ljóðakver Stefáns bar nafnið Úti á víðavangi og kom það út 1894. Ljóðabækur hans urðu fjölmargar og mjög vinsælar. Þ ETTA G E R Ð I ST : 1 0 . ÁG Ú ST Stephan G. Stephansson féll frá Viðar Hreinsson rithöfundur skrifaði ævi- sögu Stephans G. Stephanssonar. Mynd/SiGurður Jökull ÓlafSSon E lín Halldórsdóttir söng-kona, píanóleikari og tón-menntakennari, hefur gefið út lagið The #metoo song eða #metoo lagið. Þetta er fyrsta lagið sem hún semur á ensku en viðlagið fjallar um að vonandi geti metoo hreyfingin orðið til góðs fyrir konur og menn, þannig að allir vandi sig betur að fíflast ekki með ástina eða í ástamálum „Það eru nokkrar hliðar ástarinnar teknar fyrir í laginu sem er óður minn til metoo hreyfingarinnar,“ segir Elín sem hefur gefið út lagið The #metoo song eða #metoo lagið. Lagið hljómar á ensku en þetta er í fyrsta sinn sem hún semur á ensku. „Ég samdi þetta lag í febrúar og hef orðið fyrir sorgum og einu atviki sem ég vil ekki tjá mig um. En ég var heilluð af hreyfingunni og ég segi í textanum að ég vilji að allir geti treyst á ný.“ Elín nam söng og píanóleik við Lond- on College of Music. Hún stundaði fram- haldsnám í einsöng í Köln í Þýskalandi og bjó og starfaði þar í landi í Köln og Regensburg. Í Regensburg stjórnaði hún kórnum Femmes Fatales og gospelkórn- um Spirit of Joy, auk þess sem hún kom víða fram sem einsöngvari í borginni. Hún segir að hún hafi verið að semja fyrir börn og aðallega söngleiki en vilji færa sig inn á almennan markað. „Ég á eftir að gera meira af þessu. Ég er búin að senda frá mér söngleiki fyrir krakka en nú langar mig að semja fyrir almenn- ing. Ég er söngkona, píanóleikari og tón- menntakennari og hef starfað sem kór- stjóri og stofnað kóra heima og erlendis. Er því með langan og skemmtilegan feril.“ benediktboas@frettabladid.is Lag um #metoo byltinguna Elín Halldórsdóttir söngkona, píanóleikari og tónmentakennari hefur gefið út lagið The #metoo song eða #metoo lagið. Þetta er fyrsta lagið sem hún semur á ensku en viðlagið fjallar um að vonandi geti metoo hreyfingin orðið til góðs fyrir konur og menn. Elín Halldórsdóttir hefur sent frá sér lag um metoo byltinguna. „Viðlagið fjallar um að vonandi geti metoo hreyfingin orðið til góðs fyrir konur og menn, þann- ig að allir vandi sig betur að fíflast ekki með ástina eða í ástamálum.“ Ég á eftir að gera meira af þessu. Ég er búin að senda frá mér söngleiki fyrir krakka en nú langar mig að semja fyrir almenning. Ég er söngkona, píanóleikari og tón- menntakennari og hef starfað sem kórstjóri. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Ásgeir Long kvikmyndagerðarmaður, vélstjóri rennismiður og þúsundþjalasmiður, sem lést þann 3. ágúst sl. verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 14. ágúst klukkan 13. Fyrir hönd aðstandenda, Valdimar Long Björg Long Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Sigurður Þórhallsson Laugarnesvegi 89, lést að Hrafnistu í Reykjavík að kvöldi fimmtudagsins 2. ágúst sl. Útför fer fram frá Áskirkju fimmtudaginn 16. ágúst nk. kl. 15.00. Sigríður Benediktsdóttir Helga Sigurðardóttir Viðar Aðalsteinsson Þórey Viðarsdóttir Helga Sóley Viðarsdóttir Kristján Már Gunnarsson Rósa Sigurðardóttir Torfi S. Gíslason Arna Lind Kristinsdóttir Gísli Berg Torfason Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Ragnheiður Magðalena Jóhannsdóttir frá Ósi, Kálfshamarsvík, Melabraut 34, Seltjarnarnesi, lést á Landspítalanum í Fossvogi laugardaginn 4. ágúst. Útförin fer fram frá Seltjarnarneskirkju miðvikudaginn 15. ágúst klukkan 13.00. Jóhann Kristinsson Ester Kristinsdóttir Andrés G. Jónsson barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Önnu Steindórsdóttur, dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri. Sérstakar þakkir til starfsfólks Asparhlíðar fyrir góða og hlýja umönnun. Úlfar Hauksson Hólmfríður Andersdóttir Selma Hauksdóttir Þengill Ásgrímsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, Kristmundur Guðmundsson vélsmiður, Njarðarvöllum 6, Reykjanesbæ, lést mánudaginn 30. júlí á Hrafnistu í Reykjanesbæ. Útför hans verður frá Fossvogskirkju mánudaginn 13. ágúst klukkan 15. Elín Guðný Bóasdóttir Guðmundur Karl Kristmundsson Guðborg Eyjólfsdóttir Anna Katrín Kristmundsdóttir Bjarni Róbert Jónsson Eyrún Elín, Kristrún María, Róbert Arnar, Marinó Ingi og Nanna Ísold Metoo hefur hreyft við mörgum. nú er komið lag um byltinguna. fréttablaðið/StEfán 1 0 . á g ú s t 2 0 1 8 F Ö s t U D A g U R14 t í m A m ó t ∙ F R É t t A B L A ð i ð tímamót 1 0 -0 8 -2 0 1 8 0 4 :3 1 F B 0 4 8 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 8 D -9 9 2 C 2 0 8 D -9 7 F 0 2 0 8 D -9 6 B 4 2 0 8 D -9 5 7 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 4 8 s _ 9 _ 8 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.