Fréttablaðið - 10.08.2018, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 10.08.2018, Blaðsíða 25
Alisson 25 árA MArkvörður Brasilíumaður Landsleikir: 31 Keyptur á 65 milljónir punda frá Roma Eftir ófarir Loris Karius í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu síðasta vor var ljóst að Jürgen Klopp þyrfti að fá nýjan mann milli stanganna hjá Liver- pool. Um miðjan júlí staðfesti Liver- pool að félagið hefði fest kaup á brasilíska landsliðmarkverð- inum Alisson frá Roma. Hann var dýrasti markvörður heims í nokkrar vikur, eða þar til Chelsea keypti Kepa Arrizabalaga frá Athletic Bilbao. Alisson hóf ferilinn með Internacional í heimalandinu en gekk í raðir Roma 2016. Hann var varamaður fyrir Wojciech Szczesny á sínu fyrsta tímabili í borginni eilífu. Á síðasta tímabili fékk Alisson tækifæri eftir að Szczesny var seldur til Juventus og sló í gegn. Roma fékk aðeins 28 mörk á sig í ítölsku úrvalsdeildinni, næstfæst allra liða, og Alisson hélt marki sínu 17 sinnum hreinu. Þá hélt hann fimm sinnum hreinu á leið Roma í undanúrslit Meistara- deildar Evrópu. Alisson, sem hefur verið aðal- markvörður brasilíska landsliðsins undanfarin ár, er góður maður gegn manni, gríðarlega öruggur með boltann og kemur honum vel frá sér. Og hann er ekki mistækur eins og þeir Simon Mignolet og Karius sem hafa staðið í ramm- anum hjá Liverpool síðustu ár. Markvarðarstaðan hefur verið til vandræða hjá Rauða hernum undanfarin ár en stuðningsmenn Liverpool vonast til að það heyri sögunni til. Og þeir vonast að sjálf- sögðu til þess að kaupin á Alisson heppnist jafn vel og síðast þegar Liverpool keypti leikmann frá Roma (Mohamed Salah). Miklar væntingar gerðar til Brassans Liverpool hefur leitað lengi að traustum markverði. Stuðningsmenn liðsins vonast til að Alisson sé sá maður. Nordic photoS/ Getty Fred 25 árA MiðjuMAður Brasilíumaður Landsleikir/mörk: 8/0 Keyptur á 43,7 milljónir punda frá Shakhtar Donetsk Frederico Rodrigues de Paula Santos, eða Fred, lék í fimm ár með Shakhtar Donetsk, varð þrisvar sinnum Úkraínumeistari með liðinu og lék fjölmarga leiki með því í Meistaradeild Evrópu. Í sumar keypti Manchester United brasilíska miðjumanninn svo fyrir 43,7 milljónir punda. José Mour- inho, knattspyrnustjóri liðsins, var ekki sáttur með gang mála á félagaskiptamarkaðnum í sumar en landaði þó hinum 25 ára gamla Fred. Stuðningsmenn United vonast til að Fred reynist félaginu jafn vel og annar brasilískur miðju- maður, Fernandinho, hefur reynst Maðurinn sem á að fóðra Pogba og félaga Frammistaða Freds með Manchester United á undirbúningstímabilinu hefur lofað góðu. NordicphotoS/Getty Manchester City eftir að hann var keyptur frá Shakhtar fyrir nokkrum árum. Fred hefur leikið átta landsleiki fyrir Brasilíu og var í brasilíska hópnum á HM í Rúss- landi í sumar. Fred er vel spilandi alhliða miðjumaður sem er með góðar sendingar. Hans hlutverk hjá United verður að halda takti í spilinu og koma boltanum á leikmenn á borð við Paul Pogba, Alexis Sánchez og Romelu Lukaku í hættulegum stöðum. Fred getur líka unnið boltann en gengur stundum full hart fram. Á síðasta tímabili fékk hann 11 gul spjöld og eitt rautt í 26 leikjum í úkraínsku úrvalsdeildinni. Fred skrifaði undir fimm ára samning við United með mögu­ leika á eins árs fram­ lengingu. Brasilíski vængmaðurinn Richarlison endurnýjar sam-starf sitt við Marco Silva sem tók við sem knattspyrnustjóri hjá Everton síðasta vor, en þeir unnu saman með fínum árangri hjá Watford á síðustu leiktíð. Hann er snöggur og flinkur kantmaður, en Everton skorti tilfinnanlega hraða í sóknarleik sinn á síðasta keppnis- tímabili og Richarlison á að leysa þann vanda. Hann var fyrstu kaup Silva og Marcel Brands sem ráðinn var sem yfirmaður knattspyrnu- mála í sumar. Richarlison kostaði um það bil 40 milljónir punda og er næst dýrasti leikmaður í sögu félagsins á eftir Gylfa Þór Sigurðssyni. Það er því pressa á Brasilíumanninum að hann standi sig. Hann lék alla 38 deildarleiki Watford á sínu fyrsta tímabili með liðinu og skoraði í þeim leikjum fimm mörk. Everton er því ekki að fjárfesta í markaskorara af guðs náð, en hann getur ógnað með hraða sínum og knatttækni og skapað fyrir samherja sína í opnu spili. Samlandi hans, Bernard, sem er örvfættur vængmaður með snerpu og kraft, gekk svo til liðs við Everton frá úkraínska liðinu Shaktar Donetsk á lokadegi félaga- skiptagluggans síðdegis í gær. Það er því líklegt að Everton leiki með tvo brasilíska sóknartengiliði sinn hvorum megin við Gylfa Þór sem verður í hlutverki sóknar- sinnaðs miðjumanns. Sóknarlína Everton er þar af leiðandi orðin mun kvikari og tæknilega betri en sú sem liðið hafði á að skipa síð- asta vetur. Hinn fótfrái Theo Wal- cott þarf því að hafa meira fyrir því að komast í byrjunarliðið en undir stjórn Sams Allardyce.   Brasilísk innreið á Goodison Park richarlison sem kom til everton frá Watford í sumar með boltann í leik með liðinu gegn Valencia . NordicphotoS/Getty Everton keypti tvo brasilíska framherja í sumar sem eiga að hressa upp á sóknarleik liðsins. Richarlison er á sínu öðru tímabili í Englandi, en þetta verður frumraun Bernard. xxxxxxxxxxxxxxxxxxxxKyNNiNGArBLAÐ 7 F Ö S t U dAG U r 1 0 . ág ú S t 2 0 1 8 eNSKi BoLtiNN 1 0 -0 8 -2 0 1 8 0 4 :3 1 F B 0 4 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 8 D -9 4 3 C 2 0 8 D -9 3 0 0 2 0 8 D -9 1 C 4 2 0 8 D -9 0 8 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 8 s _ 9 _ 8 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.