Fréttablaðið - 07.09.2018, Qupperneq 30
Þetta kartöflusalat á mjög vel við
flest kjöt, pylsur og fisk.
1 kg kartöflur
1 blómkálshaus, skorinn í litla bita
¼ bolli rauðlaukur, saxaður smátt
¾ bolli súrar smágúrkur (e. dill
picles), saxaðar eða skornar í litla
bita
¼ bolli sellerísönglar, saxaðir
smátt
½ bolli vorlaukur, smátt saxaður
6 harðsoðin egg, hvert skorið í 4
hluta
½ bolli stökkt beikon, skorið
smátt
Sósan:
¾ bollar majónes
¾ bollar sýrður rjómi
2 msk. borðedik
1 msk. dijonsinnep
1 msk ferskt dill, smátt saxað
Salt og pipar eftir smekk
Skerið kartöflur í bita. Sjóðið þær
með blómkálinu í léttsöltuðu vatni
í 10-15 mín. Kælið. Setjið í stóra
skál kartöflur, blómkál, rauðlauk,
smágúrkur, sellerí og ¼ bolla af
vorlauknum. Hrærið saman. Setjið
í aðra skál allt hráefni fyrir sósuna.
Hrærið vel og hellið í salatskálina.
Smakkið til með salti og pipar.
Þegar salatið er borið fram skal strá
beikoni og afgangi af vorlauknum
yfir ásamt eggjunum. Gott að
skreyta með fersku dilli.
Frábært salat
Leikfangaframleiðandinn LEGO byggði ökuhæfan Bugatti-sportbíl í fullri stærð
að öllu leyti úr LEGO-kubbum.
Bíllinn er eins fullkomin eftir-
mynd af Bugatti Chiron og hægt er
að gera úr LEGO-kubbum og hann
er knúinn áfram af mótortækninni
sem er notuð í LEGO Technic, en
fer reyndar ekkert svakalega hratt.
Bíllinn var byggður úr yfir
milljón LEGO Technic-kubbum
af um 340 gerðum og ekkert lím
var notað til að halda kubbunum
saman. Bíllinn vegur rúmlega eitt
og hálft tonn og vélin samanstend-
ur af 2.304 LEGO-mótorum, 4.032
LEGO Technic-gírhjólum og 2.016
LEGO Technic- krossásum. Bíllinn
er líka með vindskeið og hraða-
mæli úr LEGO Technic-kubbum
sem virka.
LEGO segir að bíllinn sé um
5,3 hestöfl og að hönnun hans og
bygging hafi tekið meira en 13.438
vinnustundir. Hugmyndin kom
eftir að hönnunarlið LEGO Tec-
hnic byggði módel af Chiron-bíln-
um sem var átta sinnum minna
en hann er í raun. Bíllinn sem er
í fullri stærð var svo byggður af
16 manna teymi sérfræðinga í
verksmiðju LEGO í Kladno í Tékk-
landi.
LEGO fékk Andy Wallace,
sem sér um að prófa alvöru
Bugatti-bílana, til að prufukeyra
LEGO-útgáfuna og það var gert á
brautinni þar sem Bugatti Chiron-
bíllinn var upphaflega prófaður.
Hægt er að sjá prufukeyrsluna á
YouTube.
Byggðu ökuhæfan Bugatti úr LEGO
Hugrún og Magni. MYND/ANNA GEPPERT
Yfirlitssýningin Undraveröld Kron
by Kronkron stendur nú yfir í
Hönnunarsafni Íslands. Þar má
sjá verk Hugrúnar Árnadóttur og
Magna Þorsteinssonar sem hannað
hafa um 1.200 skópör á tíu árum. Í
sköpunarverki Hugrúnar og Magna
mætist vandað handverk, sköpunar-
gleði og ástríða í trylltum dansi, og
á morgun, laugardag, verður boðið
upp á leiðsögn með hönnuðunum
sjálfum um sýninguna.
Þriðjudaginn 18. september
lýkur svo sýningunni með loka-
balli Hönnunarsafnsins sem standa
mun frá klukkan 20 til 22. Þá leikur
hljómsveitin Mabolitos sambland
af uppáhalds salsanúmerum
hljómsveitarmeðlima ásamt frum-
sömdum latínukvæðum. Hljóm-
sveitina skipa Alexandra Kjeld með
söng og spili á kontrabassa, Daníel
Helgason á gítar og tres, Kristofer
Rodriguez Svönuson á slagverk
og Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir á
básúnu og fiðlu. Þá er bara að skella
sér í dansskóna.
1.200 skópör
á tíu árum
- Fákafeni 9, 108 RVK | Sími 581-1552 | www.curvy.is
ÞÚ FÆRÐ “SUMARDRESSIД HJÁ
Curvy býður upp á fjölbreyttan fatnað í stærðum 14-28 eða 42-58
VERTU VELKOMIN Í VERSLUN OKKAR AÐ FÁKAFENI 9 EÐA PANTAÐU Á WWW.CURVY.IS
Afgreiðslutímar í verslun Curvy.is að Fákafeni 9 eru
Alla virka daga frá kl. 11-18 og Laugardaga frá kl. 11-16
10 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 7 . S E P T E M B E R 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U R
0
7
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:3
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
C
2
-8
4
7
0
2
0
C
2
-8
3
3
4
2
0
C
2
-8
1
F
8
2
0
C
2
-8
0
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
6
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K