Fréttablaðið - 11.09.2018, Blaðsíða 2
Veður
Vestlæg átt og hvassast allra
syðst. Súld eða rigning með
köflum austan til á landinu, en
annars víða skúrir, einkum síð-
degis. Hiti 6 til 13 stig. SJÁ SÍÐU 16
Flísabúðin
Stórhöfða 21 | s: 545 5500 | flis.isFlísabúðin
30
ára
2018
Rubi kynning fyrir fagmenn
11. og 12. september frá 13:00 til 17:00.
Sérfræðingur frá Rubi á staðnum
Finndu okkur
á facebook
Upplitsdjarfir undir pressu
Landsliðsþjálfari karla, Erik Hamrén, og aðstoðarmaður hans, Freyr Alexandersson, voru léttir, ljúfir og kátir á æfingu liðsins í gær þrátt fyrir 6-0
skell gegn Sviss ytra. Liðið tekur á móti bronsliði Belga frá HM á Laugardalsvelli í kvöld en leikurinn er liður í hinni nýju Þjóðadeild UEFA. Ljóst er
að liðið þarf að gyrða sig í brók en tapist leikurinn verður róðurinn þungur og stutt í fall í B-deild keppninnar. Sjá síðu 12 FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
JARÐFRÆÐI „Þetta er stórmerki
legt,“ segir Páll Einarsson jarðfræði
prófessor um mikinn flaum sem tók
skyndilega að streyma frá Austur
Engjahver og litar nú sunnanvert
Kleifarvatn.
Haraldur Diego flugmaður sem
flaug yfir svæðið í gærmorgun
tók eftir breytingum suðvestur af
Kleifarvatni þar sem hvítur flaumur
streymdi niður að vatninu. Haraldur
tók meðfylgjandi mynd.
„Þetta kemur svolítið á óvart,“
segir Páll sem skoðaði myndir Har
aldar í gær. Breytingin sé greinileg.
„Það er hugsanleg skýring að grunn
vatnið standi mjög hátt ef úrkomu
samt sumar og þess vegna renni
meira úr hvernum.“
Páll segir að vatn standi nú hærra
í Kleifarvatni heldur en hafi verið
mjög lengi. Vatnsborðið hafi lækkað
um fjóra metra í jarðskjálftum árið
2000. AusturEngjahver er austan
við Krísuvík, um tvo og hálfan kíló
metra frá Kleifarvatni.
„Það stendur hverataumur niður
allan farveg lækjarins sem rennur úr
honum og alveg út í syðsta flóann í
vatninu. Þessi flói er búinn að vera
á þurru í áratugi en er nú nýlega
orðinn að flóa aftur. Vatnið stendur
hærra en ég hef séð það síðan ég var
ungur maður,“ segir Páll.
Aðspurður segir Páll enga sér
staka hættu vera á ferðum við
Kleifar vatn. „Það er fylgst nokkuð
vel með í Krísuvík. Það eru alls
konar mælingar,“ segir hann.
Meðal þess sem fylgst er með er
landhæð. Að sögn Halldórs Geirs
sonar hjá Jarðvísindastofnun
Háskóla Íslands hefur land nú
sigið á Kleifarvatnssvæðinu um tíu
til tólf sentímetra frá árinu 2010. Á
árunum þar á undan hafi land risið
og þannig gangi þetta á víxl. Ekki sé
vitað fyrir víst hvort það sé jarðhita
kerfið sem valdi þessu eða hvort það
tengist meira kvikuferlum.
„Þetta er sennilega kísill sem er
í þessu,“ segir Halldór um efnið í
hvíta læknum frá AusturEngjahver.
Kristín Jónsdóttir, hópstjóri Nátt
úruvárvöktunar hjá Veðurstofu
Íslands leit á aðstæður við Kleifar
vatn eftir ábendingu Fréttablaðsins
í gær. „Þetta er eiginlega magnað.
Þegar horft er á Kleifarvatn er það
tvílitt af vatninu úr þessum hvíta
læk,“ segir hún.
Málið segir Kristín hægt að skoða
í samhengi við nýlegar upplýsingar
um breytingar á hverasvæði á
botni Kleifarvatns. „Við sjáum ekki
breytingar á skjálftavirkni eða neitt
slíkt en þurfum auðvitað að vera
vakandi.“
Búast má við að jarðvísindamenn
skoði betur á næstu dögum þá stöðu
sem upp er komin við Kleifarvatn.
gar@frettabladid.is
Óvæntur hveraflaumur
streymir í Kleifarvatn
Öflugur hvítur lækur sem streymir nú úr Austur-Engjahver í Kleifarvatn upp-
götvaðist í gær. Jarðvísindamenn segja um að ræða merkilega breytingu sem
hugsanlega eigi rætur í hárri grunnvatnsstöðu. Engin hætta er sögð á ferðum.
Hvítur lækur streymir nú út í syðsta flóa Kleifarvatns. MYND/HARALDUR DIEGO
Þetta er eiginlega
magnað. Þegar horft
er á Kleifarvatn er það tvílitt
af vatninu úr þessum hvíta
læk.
Kristín Jónsdóttir, hópstjóri Náttúru-
várvöktunar hjá Veðurstofu Íslands
DANMÖRK Dönsk stjórnvöld vilja
að þegnarnir fái leyfi til að vopnast
piparúða heima hjá sér þar sem það
auki öryggistilfinningu. Ætlunin er
að borgararnir geti beitt piparúð
anum gegn innbrotsþjófum til að
verja sig. Samband lögreglumanna
bendir á að piparúðinn geti komast
í rangar hendur.
Samkvæmt tillögu ríkisstjórnar
innar er gert ráð fyrir að þeir sem
eru ofsóttir af til dæmis fyrrverandi
maka eða öðrum fái að hafa pipar
úða á sér úti á götu. – ibs
Vilja leyfa
piparúða
Lögreglan telur piparúða geta komist
í rangar hendur. NORDICPHOTOS/AFP
LYFJAMÁL Um fimmtungur íslenskra
háskólanema hefur notað lyfseðils
skyld lyf sem stíluð eru á annan.
Stærstur hluti þeirra segist hafa
notað slík lyf til að bæta náms
árangur eða í aðdraganda prófa.
Þetta er meðal þess sem lesa má
úr niðurstöðum könnunar sem
Lyfjastofnun gerði. Langflestir, eða
um fjörutíu prósent, útveguðu sér
lyfin frá foreldrum sínum. Um einn
af hverjum sjö fékk þau hjá skóla
félaga og álíka stór hópur útvegaði
slík lyf í gegnum söluaðila sem var
þeim ókunnugur.
Ríflega þrír af hverjum fjórum
höfðu heyrt að lyfseðilsskyld lyf
væru notuð til að bæta námsárang
ur. Um tuttugu prósent höfðu notað
slík lyf til að njóta hugbreytandi
áhrifa þeirra við skemmtanahald.
– jóe
Mikill fjöldi
nema notar
lyf fyrir próf
SAMFÉLAG Kvikmyndin Lof mér að
falla eftir Baldvin Z er í efsta sæti
aðsóknarlista kvikmyndahúsa eftir
helgina með vel yfir 8 þúsund gesti.
6.467 gestir sáu myndina um
helgina, en 8.229 sé aðsókn að for
sýningum talin með. Síðasta mynd
Baldvins, Vonarstræti, trekkti að
7.671 gest fyrstu helgina í sýningu.
Af öðrum íslenskum myndum á
listanum má nefna að 17.543 hafa
séð Kona fer í stríð eftir Benedikt Erl
ingsson eftir 16 vikur í sýningu, 4.635
hafa séð Svaninn, eftir
Ásu Helgu Hjörleifs
dóttur eftir 36 vikur í
sýningu og 6.855 hafa
séð Andið eðlilega eftir
Ísold Uggadóttur eftir
27 vikur í sýn
ingu. – ósk
Lof mér að falla
aðsóknarmest
Baldvin Z
leikstóri.
1 1 . S E P T E M B E R 2 0 1 8 Þ R I Ð J U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
1
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:2
7
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
C
6
-D
2
B
C
2
0
C
6
-D
1
8
0
2
0
C
6
-D
0
4
4
2
0
C
6
-C
F
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
0
s
_
1
0
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K