Fréttablaðið - 11.09.2018, Qupperneq 8
SVISS Michelle Bachelet, nýr mann
réttindastjóri Sameinuðu þjóðanna,
nýtti fyrstu ræðu sína í nýju starfi í
gær til að kalla eftir því að kínverska
ríkisstjórnin heimilaði eftirlits
mönnum að rannsaka ásakanir um
að Kínverjar héldu allt að milljón
Uyghurum gegn vilja sínum í heila
þvottarbúðum í Xinjiang.
Ræðan fylgir í kjölfar tveggja
skýrslna um málið. Mannrétt
indaráðið birti skýrslu um málið
í lok síðasta mánaðar og svo birti
Mannréttindavaktin (HRW) langa
skýrslu á sunnudaginn. „Kínverska
ríkisstjórnin er að fremja mann
réttindabrot í Xinjiang á skala sem
hefur ekki sést þar í landi í áratugi,“
sagði Sophie Richardson, yfirmaður
Mannréttindavaktarinnar í Kína, á
sunnudag.
Bachelet, áður forseti Síle, sagði
að rannsóknarnefnd SÞ hefði sett
fram alvarlegar ásakanir á hendur
Kínverja. „Ég hef sjálf verið í haldi
af pólitískum ástæðum og er dóttir
pólitískra fanga. Ég hef verið bæði
flóttamaður og læknir, meðal ann
ars barna sem þurftu að þola pynt
ingar,“ sagði Bachelet í ræðu sinni.
Hún lýsti einnig yfir áhyggjum
sínum af því að 500 börnum sem
innflytjendamálayfirvöld í Banda
ríkjunum tóku af foreldrum sínum
hafi ekki enn verið skilað til fjöl
skyldna sinna. – þea
Bachelet hjólar beint í Kína í fyrstu ræðu sinni í nýju starfi
SPÁNN Rétt tæplega hálf milljón
Katalóna hefur skráð sig til þátttöku
í fjöldamótmælum sem fram fara á
þjóðhátíðardegi Katalóna í dag. Frá
þessu greindi Assemblea Nacional
Catalana (ANC), samtök sjálfstæðis
sinna, í gær. Elisenda Paluzie leið
togi samtakanna sagði í viðtali við
katalónska héraðsútvarpið í gær að
þar að auki hefðu 270.000 keypt sér
boli merkta atburðinum og að 1.500
rútur hefðu verið teknar á leigu til
að ferja skarann.
Þetta verður fyrsta þjóðhátíð
Katalóníu frá atburðunum síðasta
haust. Þá lýsti héraðsstjórnin yfir
sjálfstæði eftir umdeilda atkvæða
greiðslu sem hæstiréttur Spánar
úrskurðaði ólöglega. Ráðherrar
héraðsstjórnarinnar og forsetinn
voru ákærðir í kjölfarið, forsetinn
flúði land með nokkrum ráðherrum
en aðrir eru enn í varðhaldi og bíða
réttarhalda.
Markmið mótmælanna, að sögn
skipuleggjenda, er að vekja athygli
heimsbyggðarinnar á ástandinu í
katalónskum stjórnmálum. Lög
menn nokkurra ráðherra verða á
meðal þeirra sem halda ræður. – þea
Hundruð
þúsunda ætla
að mótmæla
SVÍÞJÓÐ Enginn skýr meirihluti er
á sænska þinginu eftir kosningar
sunnudagsins. Vinstriblokkin,
undir forystu Stefans Löfven for
sætisráðherra og Jafnaðarmanna
flokks hans, fékk 144 þingsæti. Þar
af fékk Jafnaðarmannaflokkurinn
101 en hafði 113. Bandalagið, undir
forystu hægriflokksins Moderaterna
og formanns hans, Ulf Kristersson,
fékk 143 sæti. Þar af fengu Moderat
erna 70 en höfðu 84. Hvorug þessara
tveggja stóru blokka sænskra stjórn
mála getur því myndað meirihluta á
349 sæta þingi.
Ástæðan fyrir þessari pattstöðu er
stórsókn þjóðernishyggjuflokks Sví
þjóðardemókrata sem bætti við sig
þrettán þingsætum og fékk 62 sæti
og 17,6 prósent atkvæða. Sigur Sví
þjóðardemókrata var þó minni en
stefndi í um mánaðamót þegar þeir
mældust mest með 24,8 prósenta
fylgi. Hvorug blokkanna vill vinna
með Svíþjóðardemókrötum, sem
eiga rætur sínar í sænskum hreyf
ingum fasista, nýnasista og hvítra
þjóðernissinna.
Allir flokkar vilja koma að mynd
un ríkisstjórnar. Áhrifamenn innan
Jafnaðarmannaflokksins sögðu í
gær að stærsti flokkurinn, Jafnaðar
mannaflokkurinn, ætti að fá for
sætisráðuneytið.
Bandalagsmenn hafa farið fram
á að Löfven segi af sér enda tapaði
flokkurinn fylgi. Gunnar Strömmer
ritari Moderaterna var einn þeirra
sem fóru fram á slíkt í viðtali við
sænska ríkissjónvarpið, SVT, í gær.
Jafnaðarmannaflokkurinn hefur
verið með forsætisráðuneytið frá
kosningum 2014 í minnihlutastjórn
með Græningjum. Flokkarnir hafa
notið stuðnings Vinstriflokksins.
Leiðtogar flokka Bandalagsins
funduðu í gær. Jan Björklund, leið
togi Frjálslynda flokksins, sagði
á Twitter að markmiðið væri að
skipta um ríkisstjórn. Upplýsinga
fulltrúar vinstriblokkarinnar vildu
ekki upplýsa SVT um hvort leið
togar þeirra flokka væru að funda
en sögðu „eitthvað í gangi“.
Svíþjóðardemókratar buðu Mod
eraterna og Kristilegum demó
krötum, íhaldssamari flokkum
Bandalagsins, til viðræðna í gær.
Fyrrnefndur Strömmer sagði hins
vegar að flokkurinn ætlaði sér ekki
að vera í sambandi við Svíþjóðar
demókrata. Undir það tóku Kristi
legir demókratar.
Framhaldið er óljóst. Ef blokk
irnar tvær standa við gefin loforð
um að vinna ekki með Svíþjóðar
demókrötum mun annaðhvort
þurfa minnihlutastjórn eða brúa
bilið á milli hægri og vinstri. Löfven
virtist gefa hið síðarnefnda í skyn
á kosninganótt. Hann sagði niður
stöðurnar marka endalok blokka
pólitíkur. thorgnyr@frettabladid.is
Framhaldið er óljóst í Svíþjóð
Forsíður sænsku blaðanna segja allt sem segja þarf um óljóst framhald eftir kosningarnar. NORDICPHOTOS/AFP
Hvorki vinstri- né hægri-
blokkin í Svíþjóð fékk
meirihluta þingsæta
vegna velgengni Sví-
þjóðardemókrata. Boði
Svíþjóðardemókrata um
viðræður var hafnað.
Michelle Bach
elet, mannrétt
indastjóri SÞ.
440
þúsund hafa boðað komu
sína á mótmæli í Katalóníu.
Ford Transit Custom er þekktur fyrir
einstakan búnað, endingu og hagkvæmni.
Með nýrri kynslóð bætir Ford enn í og gerir
Transit Custom enn betri. Hinn nýi Ford
Transit Custom er ríkulega búinn m.a.
olíumiðstöð með tímastilli, upphitanlegri
framrúðu, aksturstölvu, Easy fuel
eldsneytisáfyllingu, upphitanlegu
ökumannssæti, spólvörn, ESP
stöðuleikakerfi, brekkuaðstoð og
14 geymsluhólfum í innréttingu.
NÝR FORD TRANSIT CUSTOM
– Betri en nokkru sinni
3.590.000 KR. MEÐ VSK.
FÁANLEGUR SJÁLFSKIPTUR
2.895.000 KR.ÁN VSK.
FORD TRANSIT CUSTOM KOSTAR FRÁ:
Brimborg Reykjavík
Bíldshöfða 6
Sími 515 7000
Brimborg Akureyri
Tryggvabraut 5
Sími 515 7050
Nýir og notaðir bílar:
Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17
og laugardaga kl. 12-16 ford.is
Ford_Transit_Custom_5x15_20180831_END.indd 1 31/08/2018 15:58
1 1 . S E P T E M B E R 2 0 1 8 Þ R I Ð J U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
1
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:2
7
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
C
6
-F
5
4
C
2
0
C
6
-F
4
1
0
2
0
C
6
-F
2
D
4
2
0
C
6
-F
1
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
0
s
_
1
0
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K