Fréttablaðið - 13.09.2018, Page 2
Veður
Norðlæg átt í dag, vætusamt og
svalt veður á norðanverðu landinu,
en bjartviðri syðra og mun hlýrra.
SJÁ SÍÐU 28
Mjólk er góð
í nýjum fernum
Að renna úr hlaði
Hinn indverski Sushil Reddy er lagður af stað í tveggja vikna hringferð um landið á rafhjóli með sólarsellu á tengivagni. Sushil hefur skráð sig á
spjöld sögunnar fyrir að hjóla á rafhjóli tengdu sólarsellu, en fyrsta ferðin var í heimalandinu. Fyrir þá ferð komst hann í Heimsmetabók Guinness
fyrir lengstu ferð á rafhjóli, en hann hjólaði rúmlega 7.400 kílómetra. IKEA leggur honum til rafhjól, vagn og sólarselluna. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
FJÖLMIÐLAR „Það er mjög mikilvægt
að það ríki samkeppni á fjölmiðla-
markaði. Við fáum betri og öflugri
fjölmiðla ef það er virk og góð sam-
keppni,“ segir Lilja Alfreðsdóttir,
mennta- og menningarmálaráð-
herra, sem kynnti í gær tillögur til
að bæta rekstrarumhverfi einka-
rekinna fjölmiðla.
Meðal tillagnanna er endur-
greiðsla ritstjórnarkostnaðar hjá
prent- og ljósvakamiðlum að upp-
fylltum ákveðnum skilyrðum. Stefnt
er að því að frumvarp þess efnis
verði lagt fram eftir áramót og að
fyrstu endurgreiðslurnar komi til
framkvæmda vegna rekstrarársins
2019.
„Þetta eru tillögur sem hafa verið
í vinnslu í mennta- og menningar-
málaráðuneytinu síðustu átján
mánuði. Við höfum unnið þetta
með fjölmiðlanefnd og lagt mikla
áherslu á alþjóðlegan samanburð.
Við vildum skoða hvað væri að
gerast annars staðar og hvernig það
væri að ganga upp.“
Lilja segir að fjölmiðlar gegni
mjög mikilvægu hlutverki, bæði
við miðlun upplýsinga í lýðræðis-
samfélagi og fyrir íslenska tungu.
„Ef við berum okkur saman við
hin Norðurlöndin, þá er umhverfi
einkarekinna fjölmiðla hér annað
og þessar aðgerðir miða að því að
jafna leikinn.“
Stefna að því að bæta
RÚV upp tekjutapið
Tillögurnar voru kynntar á blaðamannafundi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Endurgreiða á hluta
ritstjórnarkostnaðar
einkarekinna fjölmiðla
og minnka umsvif RÚV
á auglýsingamarkaði
um 560 milljónir á ári
samkvæmt tillögum
mennta- og menningar-
málaráðherra.
Aðgerðir til að styrkja íslenska tungu
Auk tillagna um stuðning við
einkarekna fjölmiðla kynnti ráð-
herra tillögur sem miða að því að
styrkja stöðu íslenskrar tungu.
Meðal aðgerða er stuðningur
við útgáfu bóka á íslensku en í
stað niðurfellingar virðisauka-
skatts verður fjórðungur beins
kostnaðar endurgreiddur. Verður
árlegur stuðningur um 400 millj-
ónir frá og með næsta ári.
Þá verða 2,2 milljarðar króna
settir í sérstaka verkáætlun sem
ber heitið „Máltækni fyrir íslensku
2018-2022“. Markmiðið er að
tryggja að íslenska verði gjaldgeng
í stafrænum heimi og rafrænum
samskiptum.
Þingsályktunartillaga í 22 liðum
verður lögð fram á Alþingi í haust.
Markmið tillögunnar er að efla
íslenskukennslu, auka framboð á
menningarlegu efni á íslensku og
stuðla að vitundarvakningu.
Umsvif RÚV á auglýsingamark-
aði verða einnig minnkuð. Þar er
til skoðunar að banna kostun dag-
skrárliða og að lækka hámarksfjölda
auglýsingamínútna á klukkustund
úr átta í sex. Lilja segir að til standi
að bæta RÚV upp það tekjutap. „Við
stefnum að því. RÚV hefur verið
að fá auknar fjárveitingar og við
stefnum áfram að því að hafa öflugt
RÚV.“ sighvatur@frettabladid.is
400
milljónir á ári gætu farið í
endurgreiðslur vegna kostn-
aðar einkarekinna miðla.
SKIPULAGSMÁL Söfnuður rússnesku
rétttrúnaðarkirkjunnar hefur kynnt
skipulagsyfirvöldum í Reykjavík
nýja hugmynd að uppbyggingu á lóð
safnaðarins á Mýrargötu.
Hjá skipulagsfulltrúa borgarinnar
liggja þannig fyrir tvær tillögur frá
hönnuði rétttrúnaðarsafnaðarins
sem vill vita hvort þær fáist sam-
þykktar. Sú fyrri hefur áður komið
fram. Nýrri tillagan gerir ráð fyrir
„minni kirkju í fermetrum og lægri
með tveimur turnum á lóðinni en
ekki innan núverandi byggingar-
reits“, segir í fyrirspurn arkitektsins.
Samkvæmt nýrri útfærslunni
verður kirkjubyggingin aðeins að
hluta innan byggingarreitsins á
lóðinni og þaðan liggja neðan jarðar-
göng sem verða alfarið utan bygg-
ingarreitsins. Málið var lagt aftur
fyrir í síðustu viku en afgreiðslu þess
frestað og arkitektinn beðinn að hafa
samband við embættið. – gar
Ný tillaga að kirkju á Mýrargötu
Nýja tillagan gerir ráð fyrir minni kirkju og safnaðarheimili. MYND/ARKITEO
TÆKNI Tæknirisinn Apple svipti
í gær hulunni af nýrri kynslóð
iPhone-snjallsímanna. Á meðal
nýjunga frá fyrirtækinu er lang-
stærsti iPhone-síminn hingað til,
iPhone XS Max, en skjástærð hans
er 6,5 tommur.
Í nýju símunum er að finna upp-
færða myndavél, rafhlöðu og mögu-
leika á að vera tvö með símkort.
– khn
Apple kynnir
nýjan iPhone
Síminn er sá stærsti hingað til.
1 3 . S E P T E M B E R 2 0 1 8 F I M M T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
3
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:4
9
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
C
E
-3
0
D
C
2
0
C
E
-2
F
A
0
2
0
C
E
-2
E
6
4
2
0
C
E
-2
D
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
6
4
s
_
1
2
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K