Fréttablaðið - 26.09.2018, Side 8
Kristrún Heimisdóttir stýrir fundinum
ALDREI AFTUR! - FUNDARÖÐ SAMTAKA SPARIFJÁREIGENDA
Svana Helen Björnsdóttir
Framkvæmdastjóri Stika
Lífeyrisfé eftir höft og áhættugreining
Sigurður B. Stefánsson
Hagfræðingur
Lífeyrissjóðirnir á alþjóðlegum
markaði 2018-2050
Svíþjóð Stefan Löfven nýtur ekki
stuðnings meirihluta þingmanna í
Svíþjóð og var í gær sparkað úr emb-
ætti forsætisráðherra. 204 þingmenn
greiddu atkvæði gegn honum en 142
með honum. Ríkisstjórn Löfvens
mun sitja áfram þangað til öðrum
tekst að mynda ríkisstjórn, en ljóst
er að það verður flókið verkefni.
Löfven
sparkað
Í ræðu sinni eftir atkvæða-
greiðsluna sagði Löfven að hann
væri tilbúinn til þess að leiða ríkis-
stjórn sem nyti stuðnings sænska
þingsins. Þau ummæli kallast á við
málflutning ráðherrans undanfarna
daga um að þörf væri á því að fjar-
lægjast blokkapólitíkina. Löfven er
sum sé viljugur til þess að brúa bilið
frá vinstri til hægri.
Andreas Norlén, þingmaður
hægriflokksins Moderaterna og
nýr þingforseti, sagði í yfirlýsingu
að hann hefði boðað leiðtoga allra
flokka á þingi til fundar á fimmtu-
daginn.
Tveir menn eru líklegastir til að
leiða næstu ríkisstjórn. Fyrrnefndur
Löfven, sem er leiðtogi Jafnaðar-
mannaflokksins og þar með vinstri-
blokkarinnar, og svo Ulf Kristers-
son, formaður Moderaterna og þar
með hægriblokkarinnar er kallast
Bandalagið. Ljóst er þó að stjórnar-
myndun verður erfið. – þea
Stefan Löfven.
Bandaríkin Leiðtogar 35 ríkja stigu
í pontu á allsherjarþingi Sameinuðu
þjóðanna í gær og fluttu ræður.
Óhætt er að segja að kynjahlut-
fallið á mælendaskránni hafi verið
örlítið bjagað. Að þingforsetanum
undanskildum tók aðeins ein kona
til máls. Það var Hilda Heine, forseti
Marshall eyja.
Það var Donald Trump Banda-
ríkjaforseti sem vakti mesta athygli,
eins og hann á til að gera. Trump fór
um víðan völl í ræðu sinni á þinginu.
Talaði um þróun mála á Kóreuskaga,
kallaði Íran „spillt einræðisríki“,
varði tollastríðin sem Bandaríkin
standa nú í og gagnrýndi Þýskaland
fyrir að reiða sig á rússneskt jarðgas
til að svara orkuþörf sinni.
Meginstef ræðu Bandaríkjafor-
seta var það að Bandaríkin ættu
rétt á því að marka eigin stefnu, full-
veldi þeirra ætti að virða og að ríki
heimsins gætu ekki lengur „notfært
sér Bandaríkin í eigin þágu“.
Vísaði hann til að mynda til við-
skiptastríðsins við Kína, sagðist
kunna vel við Xi Jinping forseta en
viðskiptahalli á milli ríkjanna gengi
ekki lengur.
Trump sagði stefnu ríkis síns
grundvallast á föðurlandsást, ekki
hnattvæðingarhyggju, Bandaríkin
höfnuðu alfarið „hnattrænni stjórn-
un og drottnun“. Höfnun leiðtogans
á hnattvæðingarhyggjunni vakti mis-
jöfn viðbrögð viðstaddra, í rými sem
fréttastofa AP kallaði holdgerving
stefnunnar. Alþjóðlega sakamála-
dómstólinn og mannréttindaráð SÞ
gagnrýndi Trump í þessu samhengi.
Að mati Trumps bera leiðtogar
Írans ábyrgð á glundroða, mann-
falli og eyðileggingu í Mið-Austur-
löndum. „Þeir virða ekki nágranna
sína, landamæri né fullveldi annarra
ríkja. Þess í stað hafa leiðtogar Írans
hagnast persónulega á auðlindum
ríkisins og valdið stórfelldum skaða
í Mið-Austurlöndum og víðar.“
Hassan Rouhani, forseti Írans,
svaraði Trump fullum hálsi. Sagði
hann Bandaríkin skorast undan
alþjóðlegri ábyrgð og gagnrýndi
harðlega ákvörðun forsetans um
að draga ríki sitt út úr kjarnorku-
samningnum. Sagði Rouhani að
viðskiptaþvinganir Bandaríkjanna
gagnvart Íran jafngiltu „efnahags-
legum hryðjuverkum“ gegn írönsku
þjóðinni. thorgnyr@frettabladid.is
Trump stal senunni enn á ný
Donald Trump Bandaríkjaforseti er hann steig úr pontu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gær. FréTTaBLaðið/EPa
Forseti Bandaríkjanna
ræddi um Íran, Norður-
Kóreu, hnattvæðingar-
hyggju og ýmislegt fleira
á allsherjarþingi SÞ.
Bandaríkin Nauðgarinn og leikar-
inn Bill Cosby var í gær dæmdur
til þriggja til tíu ára fangelsisvistar
fyrir að hafa byrlað Andreu Con-
stand ólyfjan og nauðgað henni á
heimili leikarans í Philadelphia.
Fréttastofa AP greindi frá því að
saksóknarar í málinu hefðu krafist
fimm til tíu ára fangelsisdóms. Verj-
endur kröfðust þess hins vegar að
Cosby yrði dæmdur í stofufang-
elsi, en hann var sakfelldur í apríl.
Grundvallaðist sú krafa á því að
Cosby er 81 árs, lögblindur og því
væru „ótrúlega litlar“ líkur á því að
hann gæti brotið af sér á ný.
Steven O’Neill dómari sagði
Cosby hafa tekið „fallegan, heil-
brigðan og æskufullan anda“ þol-
andans og kramið hann. O’Neill
sagði Constand að hann hefði heyrt
á henni að brotið hafi haft greinileg
áhrif á líf hennar.
Dómarinn ákvað jafnframt að
Cosby yrði færður á skrá yfir kyn-
ferðisbrotamenn. Það þýðir að
hann mun þurfa að skrá sig hjá
lögreglu, láta nágranna sína vita af
skráningu sinni og sækja mánaðar-
lega sálfræðitíma þar til hann deyr.
– þea
Þrjú til tíu ár fyrir Cosby
Kynferðisbrotamaðurinn Cosby er hann mætti í dómsal. NorDiCPhoToS/aFP
Ásakanir gegn Cosby
60 konur hafa sakað Cosby um kynferðisofbeldi.
Flest málanna eru fyrnd.
81 árs er Bill Cosby.
8 hafa höfðað einkamál gegn Cosby.
33
konur hafa ráðið Gloriu
Allred lögmann vegna
meintra brota.
2 6 . S e p t e m B e r 2 0 1 8 m i ð v i k U d a G U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a B L a ð i ð
2
6
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:4
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
E
A
-5
5
E
8
2
0
E
A
-5
4
A
C
2
0
E
A
-5
3
7
0
2
0
E
A
-5
2
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
5
6
s
_
2
5
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K