Fréttablaðið - 26.09.2018, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 26.09.2018, Blaðsíða 10
Frá degi til dags Halldór Útgáfufélag: torg ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is ritStjórar: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is fréttablaðið.iS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttablaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5800, ritstjorn@frettabladid.is helgarblað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is menning: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ljóSmyndir: Anton Brink anton@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Fangavistin verður að hafa innihald en ekki vera skammar- krókur fyrir niðurlægt fólk. Þetta er því sem köld vatnsgusa framan í vegfarendur sem aka um brautina. Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is Á næstu dögum verður ný vegaáætlun lögð fyrir Alþingi sem gildir til ársins 2033. Ljóst er að forgangsraða verður verkefnum á grundvelli umferðaröryggis og umferðarþunga. Fordæmalaus fjölgun ferðamanna til landsins hefur valdið því að umferðarþungi um Reykjanes- braut hefur vaxið gríðarlega. Raunar hefur umferðar- þunginn aukist svo mikið að umferðarþungi er óvíða meiri á þjóðvegakerfi landsins. Í dag fara um 55.000 bílar á sólarhring í gegnum Hafnarfjörð og á þeim hluta sem er einbreiður er umferðin um 27.000 bílar á sólarhring. Vestan við Straumsvík aka um 19.000 bílar á sólarhring. Til samanburðar aka 15.000 bílar á sólarhring um Suður- landsveg austan við Rauðavatn og 11.000 bílar um Vesturlandsveg við Kollafjörð. Umferðin um Reykja- nesbraut við Straumsvík er 27% meiri en á Suður- landsvegi og 73% meiri en á Vesturlandsvegi. Fréttir berast nú af því að ráðast eigi á næsta ári í tvöföldun kaflans í Hafnarfirði, frá Kirkjugarði vestur að Krísuvíkurvegi. Það er lofsvert. Þar á að hætta og bíða í 15 ár eftir að ljúka við verkið, þ.e. frá Krísu- víkurvegi að Hvassahrauni. Þetta er mikil skamm- sýni. Gleymum ekki eðli þeirrar umferðar sem fer um Reykjanesbraut frá Leifsstöð til höfuðborgarinnar. Þetta er jú lang fjölfarnasti inngangur ferðamanna í landið. Þetta er því sem köld vatnsgusa framan í veg- farendur sem aka um brautina að nú eigi að bíða til ársins 2033 eftir tvöföldun. Að einn fjölfarnasti þjóð- vegur landsins eigi að vera einbreiður á þessum kafla næstu 15 árin er óhugsandi vegna umferðarþunga og ekki síður umferðaröryggis. Skv. þessari áætlun mun það koma í hlut annarra ríkisstjórna að ljúka við þetta nauðsynlega verk verði ekki breyting gerð á. Bæjarfulltrúar Miðflokksins í Reykjanesbæ og Hafnarfirði gera þá skýru kröfu við afgreiðslu vega- áætlunar á Alþingi að ráðist verði í tvöföldun allrar brautarinnar strax á næsta ári. Milljónir ferðamanna og Reykjanesbrautin bíður Margrét Þórarinsdóttir bæjarfulltrúi Miðflokksins í Reykjanesbæ Sigurður Þ. Ragnarsson bæjarfulltrúi Miðflokksins í Hafnarfirði Nú liggur fyrir þinginu í annað sinn tillaga þingflokks Samfylkingar-innar um að einn sálfræðingur í það minnsta starfi í hverju fangelsi á Íslandi. Eins og sakir standa starfa þrír sálfræðingar hjá Fangelsismálastofnun, meðan fangar, skjólstæðing- ar stofnunarinnar, eru um 600. Einn sálfræðingur hefur fasta starfsstöð á Litla-Hrauni, hinir dreifa kröftum sínum um kerfið. Sinna þarf öðrum fang- elsum og föngum sem afplána utan múranna – eru í rafrænu eftirliti, á áfangaheimilum, í samfélags- þjónustu, á biðlistum og þar fram eftir götunum. Fangelsismálastjóri hefur í viðtölum látið hafa eftir sér að það blasi við öllum þeim sem þekkja til í fangelsunum að flestir, ef ekki allir, sem sitja í fang- elsi glími við einhvers konar fíknivanda. „Að sama skapi blasir það við okkur að það þarf að hjálpa öllu því fólki sem glímir við slíkan vanda. Menn eru að fremja langflesta glæpi undir áhrifum fíkniefna og ef fólki er hjálpað að takast á við slíkt, þá getum við fækkað afbrotum og þar af leiðandi endurkomum inn í fangelsin. Í mínum huga er þetta svo einfalt, að minnsta kosti hjá stórum hluta minna skjól- stæðinga,“ sagði fangelsismálastjórinn. Fyrir liggur að fangar glíma oftar en ekki við áföll sem mikilvægt er að vinna úr, hvort sem þau tengjast uppvexti, neyslu, fangelsisvistinni sjálfri eða öðru. Sú sjálfsagða krafa að föngum sé tryggð heil- brigðis þjónusta, þar með talin aðstoð sálfræðinga, er ekki einungis spurning um mannúð og virðingu, heldur hefur margsinnis verið sýnt fram á að þann- ig má spara ríkinu háar fjárhæðir. Nærri helmingur fanga sem eru í afplánun í íslenskum fangelsum hefur áður mátt dúsa í fangelsi – er að koma í annað, þriðja eða fjórða sinn. Beinn kostnaður ríkissjóðs við hvern fanga er á bilinu níu til tíu milljónir á ári. Fagfólk kann aðferðir sem stuðla að því að fólk haldi sig á beinu brautinni. Þannig má afstýra mikilli óhamingju fanganna sjálfra og allra sem þeim tengjast – barna og fullorðinna. Frelsissvipting er afar íþyngjandi hverjum þeim sem fyrir henni verður. Að sama skapi fylgir mikil ábyrgð því opinbera valdi að svipta einstakling frelsi sínu. Stjórnvöld þurfa að gangast við þeirri ábyrgð og markmiðið hlýtur að vera að fá út úr fangelsi betra fólk en fór þangað inn. Raunveruleg betrun á sér oft stað ef einstaklingi eru færð tæki og tól til þess að takast á við lífið. Fólk getur öðlast trú á lífið og tilveruna og orðið virkir samfélagsþegnar. Fangavistin verður að hafa inni- hald en ekki vera skammarkrókur fyrir niðurlægt fólk sem við vitum ekkert hvernig við eigum að koma fram við. Fangar þurfa að fá tækifæri til að breyta lífssýn sinni – koma með eitthvað í fartesk- inu út í samfélagið að nýju. Tillaga Samfylkingarinnar er sparnaðarráð sem dregur úr óhamingju. Sparnaðarráð opinberun hannesar Hannes Hólmsteinn Gissurarson skilaði í gær skýrslu sinni um bankahrunið. Skýrslunnar hefur verið beðið í þrúgandi ofvæni. Pólitískir andstæðingar pró- fessorsins hafa brýnt klærnar á meðan skutilsveinar hans og Davíðs Oddssonar þéttu varn- irnar. Jón Trausti Reynisson, rit- stjóri Stundarinnar, var snöggur að greina kjarna skýrslunnar og segir „margyfirlýstan aðdáanda“ Davíðs þar skella sökinni á hruninu á vonda útlendinga. Og Björn Valur Gíslason, fyrrver- andi varaformaður VG, bregður sér í gervi fávita Dostojefskís og spyr hver þessi Davíð Oddsson „hvers nafn er nefnt 163 sinnum í þessari fínu skýrslu?“ sé. Íslandsskýrslan Sú var tíð, segir í bókum, að íslenska þjóðin átti aðeins eina sameign sem metin varð til fjár. Það var skýrsla og þessi mun verða þjóðinni drjúgt þrætuepli í það minnsta út vikuna. Stærð- fræðiprófessorinn Einar Stein- grímsson hefur þegar fundið villu í jöfnunni sem skýrslan byggir á. X og Y í því reiknings- dæmi eru að sögn Hannesar að megintilgangur hans hafi verið að útskýra fyrir útlendingum að Íslendingar séu ekki flón. „Já, Hannes er rétta eintakið í þá sýningu,“ veltir stærðfræðingur- inn fyrir sér eftir snögga yfirferð á reikningsdæmi Hannesar. thorarinn@frettabladid.is 2 6 . s e p t e m b e r 2 0 1 8 m I Ð V I K U D A G U r10 s K o Ð U n ∙ F r É t t A b L A Ð I Ð SKOÐUN 2 6 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :4 8 F B 0 5 6 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 E A -5 0 F 8 2 0 E A -4 F B C 2 0 E A -4 E 8 0 2 0 E A -4 D 4 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 5 6 s _ 2 5 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.