Fréttablaðið - 26.09.2018, Page 11

Fréttablaðið - 26.09.2018, Page 11
Mér finnst ekki boðlegt að vera allt að klukkutíma að keyra um 10 kílómetra á höfuðborgarsvæðinu til að komast í og úr vinnu. Ef ég legg af stað úr Hafnarfirði á tímabilinu 7.45–9.00 þá er þetta oft ferðatíminn, það þarf ekki að hafa orðið slys á leiðinni til að tefja, þetta er venjan núna. Það er jafnvel verra að komast heim seinnipartinn, biðröðin byrjar á bílastæðinu hér í Háskólanum í Reykjavík (HR) og nefni ég sem dæmi að um daginn þegar ég var búin að bíða í nærri 10 mínútur eftir að komast út af stæðinu lagði ég aftur og fór inn og beið þar í nærri 2 klukkutíma eftir að komast heim. Í annað skipti var ég 40 mínútur að komast frá HR út að Bústaðavegi sem er líklega um 2 kílómetra leið. Oft er bent á að það sé líka hægt að labba, hjóla eða taka strætó en það hentar einfaldlega ekki öllum af margvíslegum ástæðum. Mér datt í hug að skoða hvernig væri að taka strætó og fór á góðan vef fyrirtækisins. Niðurstöðurnar eru að ef ég vil fara að heiman 8.30 á virkum degi þá tekur ferðin 47 til 52 mínútur eftir því hvort ég næði vagni 8.40 eða 8.50 og þar af væri ég á gangi í 15 mínútur. Líklega er ekki gert ráð fyrir að strætó sé fastur í röð eins og aðrir á þessum tíma og því gæti tíminn verið enn lengri. Ekki fýsilegur kostur finnst mér því miður. Það er eflaust gott og gaman að hjóla í vinnuna en einhvern veginn hugnast mér það ekki, líst ekki á að koma veðurbarin og sveitt í vinnuna fyrir utan að önnur verkefni í morg- unsárið gera það næstum ómögu- legt að fara nógu snemma af stað til að mæta um kl. 9.00. Ég veit að það eru til rafmagnshjól og alls konar hlífðarfatnaður en einhvern veginn leiðist mér veðrið hér á landi og langar ekkert að hjóla svona langa vegalengd í íslensku veðri. Kannski eru einhverjir sem geta farið fyrr af stað bæði í og úr vinnu eða mætt seinna og farið seinna heim en flestir hafa ekki þann sveigjanleika og þurfa að fara af stað á svipuðum tíma. Einhverjir geta líka unnið heima oft eða stundum og kannski er það lausnin að fleiri fengju tækifæri til að gera það. En eitt er þó gott við þetta ástand, þetta getur sparað mér pening. Mér dettur ekki í hug að fara að versla í Reykjavík eftir vinnu nema lífið liggi við. Ef mig vantar eitthvað þá athuga ég fyrst á netinu og í minni heimabyggð hvort það fæst þar. Ef ekki þá bíð ég eftir næstu utanlands- ferð eða bara sleppi að kaupa það sem vantar. Vona að aukinn bensín/ rafmagnskostnaður við að bíða og bíða vegi ekki upp á móti sparnað- inum við að sleppa að kaupa. Gengur ekki lengur Í könnun sem Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Vegagerðin létu gera 2017 má sjá þessar niður- stöður: „Samkvæmt könnuninni voru 76% allra ferða á höfuðborgarsvæð- inu farnar með einkabíl og 4% með strætisvögnum, breytist lítið frá 2011 og 2014. Áhugavert er að sjá að skv. könnuninni haustið 2017 jókst hlut- deild hjólreiða úr 4% í 6% frá könnun 2014.“ Það eru greinilegar flestir sem velja að nota bílinn og þarf þá ekki reyna að liðka fyrir umferðinni? Þegar ég er að skrifa þennan pistil þá les ég á netinu að það hafi því miður orðið árekstur á gatnamótum Bústaðavegar og Flugvallarvegar í Reykjavík og út um gluggann sést að biðröðin er strax komin frá bílastæð- unum í HR klukkan rúmlega tvö. Ekki bætir úr skák að það kviknar í bíl á Miklubrautinni skömmu seinna. Og ég sem ætlaði snemma heim til að losna við biðröðina, það endar með að ég verð hér til kl. 18 einu sinni enn. Kannski ég ætti að hringja í Vinnu- eftirlitið eða neyðarlínuna því ég er föst á vinnustað. Það er ósköp gott að það skuli vera fjölbreyttar samgöngur til umræðu og einhver stefna til 2030 en þegar ég sit og bíð og bíð í bílnum tvisvar á dag þá hjálpar það mér lítið. Ég hef ekki lausn á þessum vanda en ætlast til að þeir sem eru kosnir til að stýra bæjum, borgum og þjóðinni allri finni lausnina fljótt og vel, þetta gengur ekki lengur. Æi, mig langar að komast heim! Það er jafnvel verra að komast heim seinnipartinn, biðröðin byrjar á bílastæðinu hér í Háskólanum í Reykjavík (HR) og nefni ég sem dæmi að um daginn þegar ég var búin að bíða í nærri 10 mínútur eftir að komast út af stæðinu lagði ég aftur og fór inn og beið þar í nærri 2 klukkutíma eftir að komast heim. Í annað skipti var ég 40 mínútur að komast frá HR út að Bústaða- vegi sem er líklega um 2 kíló- metra leið. Ásrún Matthíasdóttir lektor við Háskólann í Reykjavík GE bílar Reykjanesbæ www.gebilar.is 420 0400 Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 BL söluumboð Vestmannaeyjum 481 1313 862 2516 BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is Renault KADJAR & CAPTUR Sparneytnir sportjeppar Renault Captur, verð frá: 2.890.000 kr. Renault Kadjar, verð frá: 3.790.000 kr. E N N E M M / S ÍA / N M 8 9 9 1 9 R e n a u lt K a d ja r o g C a p t u r v e t ra rt il b 5 x 2 0 s e p t 250.000 kr. vetrarpakki fylgir í september! S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 11M i ð V i k u D A G u R 2 6 . S e p T e M B e R 2 0 1 8 2 6 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :4 8 F B 0 5 6 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 E A -4 2 2 8 2 0 E A -4 0 E C 2 0 E A -3 F B 0 2 0 E A -3 E 7 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 5 6 s _ 2 5 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.