Fréttablaðið - 26.09.2018, Qupperneq 11
Mér finnst ekki boðlegt að vera allt að klukkutíma að keyra um 10 kílómetra á
höfuðborgarsvæðinu til að komast
í og úr vinnu. Ef ég legg af stað úr
Hafnarfirði á tímabilinu 7.45–9.00
þá er þetta oft ferðatíminn, það þarf
ekki að hafa orðið slys á leiðinni til
að tefja, þetta er venjan núna.
Það er jafnvel verra að komast
heim seinnipartinn, biðröðin byrjar
á bílastæðinu hér í Háskólanum
í Reykjavík (HR) og nefni ég sem
dæmi að um daginn þegar ég var
búin að bíða í nærri 10 mínútur eftir
að komast út af stæðinu lagði ég
aftur og fór inn og beið þar í nærri
2 klukkutíma eftir að komast heim.
Í annað skipti var ég 40 mínútur að
komast frá HR út að Bústaðavegi
sem er líklega um 2 kílómetra leið.
Oft er bent á að það sé líka hægt
að labba, hjóla eða taka strætó en
það hentar einfaldlega ekki öllum
af margvíslegum ástæðum. Mér
datt í hug að skoða hvernig væri
að taka strætó og fór á góðan vef
fyrirtækisins. Niðurstöðurnar eru
að ef ég vil fara að heiman 8.30 á
virkum degi þá tekur ferðin 47 til
52 mínútur eftir því hvort ég næði
vagni 8.40 eða 8.50 og þar af væri
ég á gangi í 15 mínútur. Líklega
er ekki gert ráð fyrir að strætó sé
fastur í röð eins og aðrir á þessum
tíma og því gæti tíminn verið enn
lengri. Ekki fýsilegur kostur finnst
mér því miður.
Það er eflaust gott og gaman að
hjóla í vinnuna en einhvern veginn
hugnast mér það ekki, líst ekki á að
koma veðurbarin og sveitt í vinnuna
fyrir utan að önnur verkefni í morg-
unsárið gera það næstum ómögu-
legt að fara nógu snemma af stað til
að mæta um kl. 9.00. Ég veit að það
eru til rafmagnshjól og alls konar
hlífðarfatnaður en einhvern veginn
leiðist mér veðrið hér á landi og
langar ekkert að hjóla svona langa
vegalengd í íslensku veðri.
Kannski eru einhverjir sem geta
farið fyrr af stað bæði í og úr vinnu
eða mætt seinna og farið seinna
heim en flestir hafa ekki þann
sveigjanleika og þurfa að fara af stað
á svipuðum tíma. Einhverjir geta
líka unnið heima oft eða stundum
og kannski er það lausnin að fleiri
fengju tækifæri til að gera það.
En eitt er þó gott við þetta ástand,
þetta getur sparað mér pening. Mér
dettur ekki í hug að fara að versla
í Reykjavík eftir vinnu nema lífið
liggi við. Ef mig vantar eitthvað þá
athuga ég fyrst á netinu og í minni
heimabyggð hvort það fæst þar. Ef
ekki þá bíð ég eftir næstu utanlands-
ferð eða bara sleppi að kaupa það
sem vantar. Vona að aukinn bensín/
rafmagnskostnaður við að bíða og
bíða vegi ekki upp á móti sparnað-
inum við að sleppa að kaupa.
Gengur ekki lengur
Í könnun sem Samtök sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu og Vegagerðin
létu gera 2017 má sjá þessar niður-
stöður: „Samkvæmt könnuninni voru
76% allra ferða á höfuðborgarsvæð-
inu farnar með einkabíl og 4% með
strætisvögnum, breytist lítið frá 2011
og 2014. Áhugavert er að sjá að skv.
könnuninni haustið 2017 jókst hlut-
deild hjólreiða úr 4% í 6% frá könnun
2014.“ Það eru greinilegar flestir sem
velja að nota bílinn og þarf þá ekki
reyna að liðka fyrir umferðinni?
Þegar ég er að skrifa þennan pistil
þá les ég á netinu að það hafi því
miður orðið árekstur á gatnamótum
Bústaðavegar og Flugvallarvegar í
Reykjavík og út um gluggann sést að
biðröðin er strax komin frá bílastæð-
unum í HR klukkan rúmlega tvö. Ekki
bætir úr skák að það kviknar í bíl á
Miklubrautinni skömmu seinna. Og
ég sem ætlaði snemma heim til að
losna við biðröðina, það endar með
að ég verð hér til kl. 18 einu sinni enn.
Kannski ég ætti að hringja í Vinnu-
eftirlitið eða neyðarlínuna því ég er
föst á vinnustað.
Það er ósköp gott að það skuli vera
fjölbreyttar samgöngur til umræðu
og einhver stefna til 2030 en þegar
ég sit og bíð og bíð í bílnum tvisvar
á dag þá hjálpar það mér lítið. Ég
hef ekki lausn á þessum vanda en
ætlast til að þeir sem eru kosnir til
að stýra bæjum, borgum og þjóðinni
allri finni lausnina fljótt og vel, þetta
gengur ekki lengur.
Æi, mig langar að komast heim!
Það er jafnvel verra að
komast heim seinnipartinn,
biðröðin byrjar á bílastæðinu
hér í Háskólanum í Reykjavík
(HR) og nefni ég sem dæmi að
um daginn þegar ég var búin
að bíða í nærri 10 mínútur
eftir að komast út af stæðinu
lagði ég aftur og fór inn og
beið þar í nærri 2 klukkutíma
eftir að komast heim. Í annað
skipti var ég 40 mínútur að
komast frá HR út að Bústaða-
vegi sem er líklega um 2 kíló-
metra leið.
Ásrún
Matthíasdóttir
lektor við
Háskólann í
Reykjavík
GE bílar
Reykjanesbæ
www.gebilar.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
Renault KADJAR & CAPTUR
Sparneytnir sportjeppar
Renault Captur, verð frá: 2.890.000 kr.
Renault Kadjar, verð frá: 3.790.000 kr.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
9
9
1
9
R
e
n
a
u
lt
K
a
d
ja
r
o
g
C
a
p
t
u
r
v
e
t
ra
rt
il
b
5
x
2
0
s
e
p
t
250.000 kr. vetrarpakki
fylgir í september!
S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 11M i ð V i k u D A G u R 2 6 . S e p T e M B e R 2 0 1 8
2
6
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:4
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
E
A
-4
2
2
8
2
0
E
A
-4
0
E
C
2
0
E
A
-3
F
B
0
2
0
E
A
-3
E
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
5
6
s
_
2
5
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K