Fréttablaðið - 26.09.2018, Page 20
Helgi Vífill
Júlíusson
helgivifill@frettabladid.is
Ég var með hugmyndina mótaða þegar starfs-maður Stefnis hringdi í mig sama dag og gengið var frá kaupum á Festi. Hann vildi athuga
hvort ég hefði áhuga á að vinna að
þessu verkefni með þeim. Ég vissi
nákvæmlega hvað ég vildi gera
með Krónuna, ELKO, Intersport og
fasteignafélagið og fékk hluthafana
með mér til að fara þá leið,“ segir
Jón Björnsson sem var forstjóri
Festar á árunum 2014 til 2018 en
gegnir nú stjórnarformennsku í
Krónunni.
Sjóður á vegum Stefnis, sjóðsstýr-
ingar í eigu Arion banka, og einka-
fjárfestar keyptu Festi árið 2013 af
Norvik, eignarhaldsfélagi í eigu fjöl-
skyldu Jóns Helga Guðmundssonar,
sem rekur meðal annars BYKO.
Samkvæmt ársreikningi sjóðsins
SFV var kaupverðið 8,8 milljarðar
króna. Fimm árum seinna var það
selt fyrir 23,2 milljarða króna til N1
eftir að hafa greitt hluthöfum 1,5
milljarða króna í arð. Þeir fengu því
fjárfestinguna 2,8 sinnum til baka.
Á meðal einkafjárfesta voru Hregg-
viður Jónsson, aðaleigandi Veritas
Capital, Þórður Már Jóhannesson
fjárfestir og Guðmundur Ásgeirsson
í Nesskipum.
„Fæðingin var ógnarlöng.
Áreiðanleikakönnun var fram-
kvæmd sumarið 2013. Því næst
tekur Samkeppniseftirlitið kaupin
til skoðunar og lýkur sinni vinnu í
nóvember. Þá voru að koma jól og
það er óæskilegt að taka við rekstri
smásölufyrirtækis um það leyti
því stjórnendur og starfsfólk þurfa
þá að einblína á söluna um hátíð-
arnar. Nýir eigendur hefðu truflað
þá vinnu. Við tókum því við fyrir-
tækinu í mars 2014.“
Fjárfestarnir fengu býsna góða
ávöxtun á sitt fé.
„Engu að síður töldu ýmsir á þeim
tíma að seljandinn hefði fengið ansi
gott verð fyrir fyrirtækið. Það sem
kemur saman er að tímasetning
kaupanna var góð, planið gott og
fyrirtækin sterk.“
Trúir ekki á miðstýringu
Hvaða sýn hafðir þú á rekstur fyrir-
tækjanna?
„Fyrirtækið var vel rekið með
góðum gildum. Ég trúi hins vegar
ekki á miðstýringu í rekstri fyrir-
tækja. Sparnaðurinn sem af henni
hlýst nær ekki að vega upp á móti
tapinu sem skapast þegar það
skortir dýnamík. Ég vildi að fyrir-
tækin fengju meira sjálfstæði til að
geta blómstrað. Vörur, mannauður
og viðskiptavinir verða að mynda
eina heild og það er ekki hægt að
slíta neinn þessara þátta frá hinum.
Það er leikskipulag sem ég trúi á og
við innleiddum.
Í öðru lagi var ákveðið að gera
vel það sem við kunnum og hætta
því sem við kunnum ekki. Við
hættum að reka íþróttavöruversl-
unina Inter sport og auglýsinga-
stofuna Expo. Í fasteignasafninu
voru fasteignir sem ekki tengdust
smásölu og þær voru seldar. Eftir
stóð móður félag sem var sérhæft á
þremur mörkuðum; dagvörumark-
aði, raftækja- og heimilisvörumark-
aði og rekstri fasteigna í smásölu.
Hafin var vinna við að einfalda
reksturinn í dagvörunni. Öllum
nema einni Nótatúnsverslun var
Vissi nákvæmlega
hvað gera skyldi
Jón Björnsson segir að það hafi verið mikilvægt í umskiptum á rekstri Festar að þátttakendur voru meðvitaðir um að breytingar taka tíma. Þær gerast ekki á hálfu ári eða einu ári. Þetta var tveggja, þriggja ára verkefni.“ FréTTaBlaðið/Ernir
Jón Björnsson leiddi vel heppnaða umbreytingu á rekstri Festar sem meðal ann-
ars rekur Krónuna. Fjárfestar fengu góða ávöxtun þegar félagið var selt til N1. Í
umbreytingunni skiptu fjórir þættir sköpum en meðal annars var fjárfest fyrir
700-800 milljónir í rekstrinum á hverju ári. Matvöruverslanir eiga í harðri sam-
keppni við veitingahús. Ferðamenn versluðu lítið hjá Festi árin 2014 og 2015.
„Við gerum
okkar plön með
bankanum“
360° samtal fyrirtækja er
tækifæri til að fara yfir reksturinn og
framtíðaráætlanir hjá þínu fyrirtæki.
Að auki færðu yfirsýn yfir öflugar og
sérsniðnar lausnir Landsbankans fyrir
fyrirtæki af öllum stærðum. Kynntu þér
360° samtal hjá fyrirtækjaþjónustu
Landsbankans.
2 6 . s e p t e m b e r 2 0 1 8 m I Ð V I K U D A G U r6 markaðurinn
2
6
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:4
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
E
A
-4
C
0
8
2
0
E
A
-4
A
C
C
2
0
E
A
-4
9
9
0
2
0
E
A
-4
8
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
5
6
s
_
2
5
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K