Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.09.2018, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 26.09.2018, Qupperneq 24
Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg@frettabladid.is Við Atli Kolbeinn Atlason, vinur minn og matreiðslu-maður, fengum þessa hug- mynd á þriðjudegi og þar sem Atli lætur verkin tala var strax drifið í að útvega kjöt, hamborgarabrauð og annað hráefni í þennan stærsta grillaða hamborgara landsins,“ segir Alfreð sem fékk einnig lánað aukagrill frá Weber til verksins. Í hamborgarann var öllu því fín- asta tjaldað til enda átti útkoman að verða sú girnilegasta og bragð- besta hingað til. „Við fengum átta kíló af nauta- hakki með 20 prósenta fituinni- haldi frá Kjötkompaní, bættum út í það átta eggjum og 100 grömmum af hveiti til að binda það saman og hnoðuðum í höndum. Við ákváðum að hafa borgarann þre- faldan og krydduðum kjötið með tveimur staukum af kryddinu Grillmeistarinn frá Príma, en alls tók um klukkutíma að grilla buffin á kolagrillunum,“ útskýrir Alfreð og tveggja manna tak var að snúa stærsta borgara landsins á grillinu. „Sósan var heimatilbúið lostæti og undir töfrasprotann fóru 1.800 grömm af Hellman’s mæjónesi, stór krukka af pikkles, hálfur hótellaukur og hálf krukka af Dijon-sinnepi, allt smakkað til með salti og pipar.“ Þeir Alfreð og Atli grilluðu einnig 3.150 grömm af þykku beikoni, skáru niður tuttugu tómata, fjóra hótellauka, þrjár dósir af súrum gúrkum og sex potta af Lambhaga- salati til að hafa sem meðlæti á þennan tröllaukna grillborgara. „Gæðabakstur hljóp undir bagga með risastór hamborgabrauðin sem voru bökuð þannig að neðsta brauðið var þyngst og stærst til að bera þyngdina, en svo urðu brauðin léttari eftir því sem þau nálguðust toppinn,“ útskýrir Alfreð, himin- sæll með árangurinn. „Þetta var einn sá allra besti hamborgari sem við Atli höfum smakkað enda var allt hráefni í hæsta gæðaflokki.“ Áhugasamur um eld og grill Til að tryggja að grillborgarinn yrði örugglega sá stærsti leituðu Alfreð og Atli logandi ljósi að stærsta hamborgara Íslands hingað til og fundu einn stæðilegan sem Tommaborgarar steiktu á Kótilett- unni árið 2013. „Af myndum að dæma var okkar borgari miklu stærri enda not- uðum við átta kíló af kjöti á móti þremur hjá Tommaborgurum,“ segir Alfreð sem er menntaður bíla- málari en með brennandi áhuga á grillmennsku. „Mér hefur reyndar verið boðin vinna í eldhúsi en held að ég njóti eldamennskunnar betur sem áhugamáls. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á eldi og fannst alltaf svo gaman í ferðalögum æskunnar með mömmu og pabba þar sem útilegu- maturinn var grillaður. Ég keypti mér því reykofn fyrir þremur árum og fór að grúska við að reykja nauta- rif, rifið svínakjöt og fleira góðgæti, en þá er allt hægeldað í djúpu grilli,“ segir Alfreð sem er með fjögur grill á pallinum og tvö í skúrnum. „Safnið samanstendur af reykofni, kolagrilli, gasgrilli og rafmagnsgrilli, sem er svipað og gasgrill en gengur fyrir rafmagni. Ég bauð fólki í mat eitt kvöldið og gerði blinda tilraun á bragðmun af þessum mismunandi grillum. Grilluðu 18 kílóa hamborgara Það tók 17 tíma að matbúa stærsta grillborgara Íslands. Útkoman var 17,545 kílóa hamborgari sem grindvíski grillkóngurinn Alfreð Fannar Björnsson segir þann besta sem hann hefur smakkað. Alfreð og Atli skiptu átta kílóum nautahakks í þrjú risastór buff sem þeir grilluðu á kolagrillum. Tvo stauka af kryddi þurfti á borgarana sem voru tveggja manna tak að snúa við á grillinu, eins og sjá má á umfanginu. Tilbúinn hefði ham- borgarinn dugað til að seðja sextíu svanga munna. Alfreð er bílamálari og Atli yfirkokkur hjá Dögum á Reykjanesi. Hér halda þeir á glæstum stærsta grillborgara landsins. Kolagrillið bar af á meðan lítill sem enginn munur var á gas- og raf- magnsgrillinu. Sjálfur er ég hrifn- astur af kolagrilluðum mat. Það er mikil stemning að grilla á kolum og bragðið er ómótstæðilegt,“ segir Alfreð sem hefur gert tilraunir með súpur, pottrétti og vöfflur á grillinu með góðum árangri. Sextíu manna hamborgari Stærsti grillborgari landsins vó 17 kíló og 545 grömm. „Við settum okkur tuttugu kílóa viðmið og hefði vel verið hægt að troða í hann meiru en við vildum að hann liti girnilega út, væri ferskur og undur bragðgóður. Ef miðað er við að hver maður borði 300 grömm af hamborgara hefði þessi dugað fyrir sextíu manns, en við vorum einir sem settumst að borði og vorum þó hálfsaddir af spenningi við matreiðsluna. Borgarinn fór þó ekki til spillis, við átum strax þriggja kílóa sneið, okkar skerf daginn eftir og enn eru til afgangar,“ segir Alfreð sem hefur trú á að risavaxinn borgarinn eigi eftir að espa menn upp í að toppa þá Atla. „Sjálfir ætlum við að gera enn betur næsta sumar og toppa okkur sjálfa, ef ekki aðra, með skemmti- legum matarútfærslum. Þetta er svo gaman!“ Hægt er að fylgjast með meistara- töktum Alfreðs á Snapchat undir Alli-tralli og á Instagram undir BBQKongurinn. BÍLABLAÐ FRÉTTABLAÐSINS Mest lesna bílablað landsins kemur næst út þriðjudaginn 2. október næstkomandi. Ritstjóri blaðsins er Finnur Thorlacius sem er bílaáhugamaður af lí og sál. Umsjón auglýsinga: Atli Bergmann • atlib@ frettabladid .is • sími 512 5457 FERMINGARGJAFIR Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöf m. Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 6 . S e p T e m B e R 2 0 1 8 M I ÐV I KU DAG U R 2 6 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :4 8 F B 0 5 6 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 E A -5 A D 8 2 0 E A -5 9 9 C 2 0 E A -5 8 6 0 2 0 E A -5 7 2 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 5 6 s _ 2 5 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.