Fréttablaðið - 26.09.2018, Blaðsíða 29
Rúmlega 6.000
fyrirtæki nýta sér
viðskiptahugbúnað dk
og þeim fjölgar um 500 á
hverju ári.
Dagbjartur Pálsson
Spennandi afmælisútgáfa er væntanleg með nýju andliti og viðmóti á bókhaldshugbúnaði dk. MYNDIR/ANTON BRINK
Fyrirtækið dk hugbúnaður er leiðandi á sviði viðskipta-hugbúnaðar hér á landi fyrir
allar stærðir og gerðir fyrirtækja.
Fyrirtækið verður 20 ára í nóvem-
ber og starfsemin hefur farið ört
vaxandi undanfarin ár. Í dag vinna
59 starfsmenn hjá fyrirtækinu.
„Rúmlega 6.000 fyrirtæki nýta
sér viðskiptahugbúnað dk og þeim
fjölgar um 500 á hverju ári,“ segir
Dagbjartur Pálsson, en hann er
framkvæmdastjóri dk hugbúnaðar
ásamt bróður sínum, Magnúsi
Pálssyni.
Margar sérlausnir
„Kerfið okkar er mjög sveigjan-
legt, en takmarkaðir notkunar-
möguleikar eru veikleiki margra
bókhaldskerfa á íslenska mark-
aðnum og oft er ekki hægt að
laga hugbúnaðinn að sérþörfum
fyrirtækja,“ segir Dagbjartur. „Við
höfum þróað fjölda sérlausna
fyrir bæði íslenskan og erlendan
markað. Við erum með framtals-
kerfi fyrir aðila sem eru í fram-
talsgerð, lausnir fyrir almenn
þjónustufyrirtæki eins og bók-
haldsstofur, endurskoðunarstofur,
lögfræðistofur og verkfræðistofur.
Lausnir fyrir verslanir og veitinga-
hús, þar sem við bjóðum margar
greiðslulausnir. Hótelbókunar-
kerfi, veitingahúsakerfi og versl-
unarkerfi fyrir hótel og gististaði.
Við erum líka með töluvert mikið
af sérlausnum fyrir stéttarfélög,
en þau eru nánast öll með dk hug-
búnað,“ útskýrir Dagbjartur.
dk hugbúnaður býður einnig
upp á sérlausnir fyrir bændur og
alla aðila í búrekstri sem heitir
dkBúbót.
„Hún gerir bændum kleift að
vera með margvíslegan rekstur,
ferðaþjónustu og alls konar auka-
búskap eins og sölu veiðileyfa,
gröfurekstur, skólaakstur og leigu
á vélum og tækjum, í viðbót við
hefðbundinn búskap. Svo höfum
við líka sérlausnir fyrir útgerðir
varðandi aflauppgjör og sjó-
mannalaun,“ segir Dagbjartur.
Afmælisútgáfa væntanleg
„Það er ýmislegt að breytast í bók-
haldskerfinu,“ segir Dagbjartur.
„Stefnan er að koma með veglega
afmælisútgáfu seinnipartinn á
árinu. Þá kynnum við betur þessar
nýjungar í kringum snjalltækin
og veflausnir. Það verður líka nýtt
andlit á hugbúnaðinum. Viðmótið
breytist örlítið og einhverjar
vinnslur færast í nýrri búning,
en margar vinnslur hafa verið að
færast í nýrri búning hjá okkur
nýlega og við ætlum að klára það
endanlega í þessari afmælisút-
gáfu.“
Nánari upplýsingar má finna á dk.is.
Áreiðanlegur þjónustuaðili í 20 ár
Bókhaldskerfið frá dk hugbúnaði er sveigjanlegt og býður upp á lausnir fyrir ótal gerðir reksturs.
Kerfið er áreiðanlegt og fjölbreytt, þúsundir fyrirtækja nýta það og viðskiptavinum fjölgar hratt.
dk hugbúnaður 20 ára | 1998-2018
KYNNINGARBLAÐ 5 M I ÐV I KU DAG U R 2 6 . s e p t e m B e r 2 0 1 8 eNDURSKOÐUN OG BóKhALD
2
6
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:4
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
E
A
-3
3
5
8
2
0
E
A
-3
2
1
C
2
0
E
A
-3
0
E
0
2
0
E
A
-2
F
A
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
5
6
s
_
2
5
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K