Fréttablaðið - 26.09.2018, Síða 31

Fréttablaðið - 26.09.2018, Síða 31
Egla möppurnar hafa fyrir löngu fest sig í sessi og hér innan- húss segjum við gjarnan „röð og regla með Egla“! Sigurður Viktor Úlfarsson Sigurður Viktor Úlfarsson, framkvæmdastjóri Múlalundar vinnustofu SÍBS. MYNDIR/EYÞÓR „Við framleiðum einnig plast- kápur utan um ferðabækur og landakort bókaforlaganna, plöstum bækur og tímarit og öllum þessum verkefnum, pökkun, merk- ingum, gyll- ingum og meira til, er sinnt af ná- kvæmni og natni af starfsfólki Múlalundar.“ „Hver einasta króna skiptir Múlalund máli, ávinningurinn er samfélagsins í heild og við hjálpum fleirum sem glíma við fötlun eða veik- indi að komast á vinnumarkað.“ Múlalundur selur allt sem hugsast getur fyrir skrifstofuna Á Múlalundi fást allar almennar skrifstofuvörur á einum stað, pappír og ritföng. Við segjum stundum að þetta sé einfaldasta samfélagsverk- efnið, bara að panta og fá vörurnar sendar daginn eftir,“ segir Sigurður Viktor Úlfarsson, framkvæmda- stjóri Múlalundar vinnustofu SÍBS. Þar starfa dugmiklir einstaklingar sem þurft hafa að takast á við fötlun og veikindi, bæði andleg og líkamleg, í kjölfar slyss eða heilsu- brests. Sigurður segir ánægjulegt að sjá starfsfólk Múlalundar byggja upp sjálfstraust og þrótt með þátttöku á vinnumarkaði. „Fólki er mjög mikilvægt að fá að mæta til vinnu, eiga vinnufélaga og vera virkt í samfélaginu.“ Röð og regla með Egla Múlalundur selur allt sem hugsast getur fyrir skrifstofuna og verðin eru vel samkeppnishæf. „Oftar en ekki erum við ódýrari en aðrir,“ segir Sigurður sem á Múlalundi selur til dæmis gatapoka, plastvasa og klemmubækur framleiddar á Múlalundi auk viðbótarþjónustu eins og gyllingar merkis eða nafns á vörur. Þá má fá allar almennar skrifstofuvörur á einum stað. „Egla möppurnar hafa fyrir löngu fest sig í sessi og hér innan- húss segjum við gjarnan „röð og regla með Egla“,“ segir Sigurður. „Þá seljum við einnig tímaritabox, sem líta eins út og Egla möpp- urnar, fyrir gögn sem ekki er hægt að gata. Þá er snyrtilegt að horfa yfir skrifstofuhillurnar. Fyrirtæki geyma gjarnan gögn um ákveðinn tíma í möppum en færa þau svo yfir í skjalakassa til að endurnýta möppurnar. Við bjóðum upp á allar þessar lausnir. „Máltækið „Það þarf heilt þorp til að ala upp barn“ á vel við. Múlalundur stendur og fellur með stuðningi samfélagsins og því að einstaklingar, fyrirtæki og stofn- anir kaupi vörur af okkur,“ segir Sigurður og eiga viðskiptavinir ekki að þurfa að fara annað eftir almennum skrifstofuvörum. „Að kaupa skrifstofuvörur af Múlalundi er einföld leið til að flétta saman samfélagslega ábyrgð og daglega starfsemi. Hver einasta króna skiptir Múlalund máli, ávinningurinn er samfélagsins í heild og við hjálpum fleirum sem glíma við fötlun eða veikindi að komast á vinnumarkað,“ segir Sigurður. Vefverslunin vinsæl Á heimasíðunni mulalundur.is, er rekin stór vefverslun. „Þar geta viðskiptavinir valið úr glæsilegu úrvali og bæði verð og úrval kemur flestum á óvart. Það er einfalt að versla á netinu og við sendum vör- urnar strax daginn eftir,“ útskýrir Sigurður, en fari pöntun yfir 16 þúsund krónur er frí heimsending um allt land. Fyrir lægri pantanir er sendingargjald 2.150 krónur. Á Múlalundi er sífellt leitað nýrra verkefna svo skjóta megi fleiri og styrkari stoðum undir reksturinn. „Langtímaverkefni eru þýðingar- mikil fyrir starfsemi Múlalundar og dæmi um slíkt er að setja saman fylgigögn með greiðslukortum, að líma strikamerki og leiðbeiningar á umbúðir fyrir innflytjendur, ávaxtapökkun fyrir Ávaxtabílinn og fleiri verkefni sem starfsfólk Múlalundar hefur sinnt um langt skeið,“ upplýsir Sigurður. „Við erum opin fyrir því að taka að okkur hluta úr framleiðslu fyrirtækja, jafnt rótgróinna sem sprotafyrirtækja sem eru að stíga sín fyrstu skref, og allt sem kallar á mikla handavinnu. Með því tökum við að okkur fjölbreytt verkefni til lengri og skemmri tíma,“ upplýsir Sigurður og nefnir ýmis dæmi úr framleiðslu Múlalundar. „Við framleiðum fallegar kápur utan um prófskírteini útskriftar- nema framhalds- og háskólanna, sem gera útskriftargögnin eigulegri og útskriftina að meiri viðburði. Þá hefur ferðaþjónustan komið sterk inn með framleiðslu á upplýsinga- möppum fyrir hótelherbergi og flottum kápum utan um matseðla, þar sem merki veitingastaðarins er gjarnan letrað á eða þrykkt í kápuna. Við framleiðum einnig plastkápur utan um ferðabækur og landakort bókaforlaganna, plöstum bækur og tímarit og öllum þessum verkefnum, pökkun, merkingum, gyllingum og meira til, er sinnt af nákvæmni og natni af starfsfólki Múlalundar.“ Öllum er mikilvægt að vinna Frá árinu 1959 hefur Múlalundur verið rekinn af SÍBS, með stuðn- ingi Happdrættis SÍBS. Þar hafa þúsundir einstaklinga með skerta starfsorku fengið annað tækifæri og blómstrað á ný. „Árið 2017 greiddi Múlalundur yfir 100 millj- ónir í laun og skapaði varanleg störf fyrir meira en fjörutíu manns með skerta starfsorku. Að auki fengu aðrir fjörutíu tækifæri til að spreyta sig í fjögurra vikna vinnuprufum sem hjálpar fólki að komast af stað eftir langvarandi fjarveru frá vinnumarkaði,“ upp- lýsir Sigurður. Múlalundur stendur sjálfur undir stærstum hluta tekna sinna, sem er allt að því einsdæmi á vinnustofum fólks með skerta starfsorku. „Starfsemin stendur því og fellur með viðskiptavinum okkar og í dag eru mörg fyrirtæki að standa sig vel á sviði samfélags- legrar ábyrgðar,“ segir Sigurður. Virkir á vinnumarkaði Góð samvinna er á milli Múla- lundar og Reykjalundar, sem er einnig rekinn af SÍBS. „Múlalundur er einnig í góðu samstarfi við Vinnumálastofnun og ræður fólk til vinnu af biðlistum, en umsækj- endur geta þurft að bíða lengi á biðlista áður en þeir komast að,“ útskýrir Sigurður. Sigurður kallar eftir aukinni meðvitund fyrir- tækja um samfélagsmál fólks með skerta starfsorku. „Markmiðið er að sem flestir séu virkir á vinnu- markaði. Hjá Vinnumálastofnun eru til hvetjandi úrræði sem styðja fyrirtæki í að taka við fólki með fötlun eftir starfsendurhæfingu hjá Múlalundi og víðar. Störf á Múlalundi gefa þeim, sem annars sætu heima aðgerðarlausir, tæki- færi til að spreyta sig og taka þátt í verðmætasköpun samfélagsins.“ Á Múlalundi er aðstaða til að taka á móti mun fleira starfsfólki en for- senda fjölgunar er aukin viðskipti og verkefni. „Þetta er hörkudug- legt fólk og það þarf að hafa nóg að gera, þótt vinnudagurinn sé lagaður að getu hvers og eins.“ Múlalundur vinnustofa SÍBS er við Reykjalund í Mosfellsbæ. Sími 562 8500. Sjá nánar á mulalundur.is. Góðvild og gæði á skrifstofuna Múlalundur vinnustofa SÍBS býður fyrirtækjum og ein- staklingum allt fyrir skrifstofuna og skapar tækifæri fyrir fólk með skerta starfsorku til að leggja sitt af mörkum til atvinnulífsins. Úrval og verð kemur þægilega á óvart. KYNNINGARBLAÐ 7 M I ÐV I KU DAG U R 2 6 . S e p t e M B e R 2 0 1 8 ENDURSKoÐUN oG BÓKHALD 2 6 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :4 8 F B 0 5 6 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 E A -4 7 1 8 2 0 E A -4 5 D C 2 0 E A -4 4 A 0 2 0 E A -4 3 6 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 5 6 s _ 2 5 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.