Fréttablaðið - 26.09.2018, Qupperneq 46
TónlisT
HHHHH
Verk eftir strauss og Tsjajkovskí.
sinfóníuhljómsveit Íslands lék.
Einsöngvari: Þóra Einarsdóttir.
Stjórnandi: Petri Sakari.
Eldborg í Hörpu
fimmtudaginn 20. september
Þegar skákeinvígi aldarinnar stóð yfir hér olli Bobby Fischer mikilli hneykslun með því að
hella úr kókflösku yfir skyr og borða
með bestu lyst. Þar blandaðist saman
eitt helsta tákn íslenskrar menn
ingar og bandarískur þjóðarósómi.
Mér datt þetta í hug á tónleikum
Sinfóníuhljómsveitar Íslands á
fimmtudagskvöldið. Fyrsta verkið á
dagskránni var Till Eulenspiegel eftir
Richard Strauss, um mann sem uppi
var á 14. öld. Hann var sagður mikill
prakkari og ólíkindatól, og um hann
spunnust ótal ævintýri. Í verkinu
blandast saman algerar andstæður
alvarlegrar fagurtónlistar og kæru
leysislegra barnalaga, rétt eins og
skyrið og kókið hans Fischers.
Till Eulenspiegel er kröftug tón
smíð sem kemur stöðugt á óvart. Alls
konar stef renna saman og magnast
upp, en svo er þeim gefið langt nef,
og eitthvað allt annað tekur við.
Þetta kallar á snerpu og nákvæmni í
flutningi, og stóð Sinfóníuhljómsveit
Íslands fyllilega undir því. Horn
leikurinn var hreinn og hnitmiðaður,
og dillandi klarínettusóló var pott
þétt. Samspil ólíkra hljóðfærahópa
var flott og hljómsveitin í heild lék
af sannfærandi innlifun undir stjórn
Petris Sakari.
Ekki síðri voru hinir svokölluðu
Fjórir síðustu söngvar eftir Strauss,
sem á eftir komu. Þar söng Þóra
Einarsdóttir einsöng. Yrkisefnið er
dauðinn og eru táknmyndir úr nátt
úrunni áberandi. Yfirbragð tónlist
arinnar er angurvært, og Þóra gerði
henni fullkomin skil. Söngur hennar
var tilfinningaríkur og margbrotinn,
röddin gædd ótal litbrigðum. Hljóm
sveitin spilaði líka fallega. Áferðin
var draumkennd og styrkleikahlut
föll einsöngs og hljóðfæraleiks voru
eins og best verður á kosið. Fiðlu
einleikur konsertmeistarans var
sérlega fagur.
Eftir hlé var flutt fimmta sinfónían
eftir Tsjajkovskí. Hún byrjar mjög
alvarlega. Tsjajkovskí hugsaði mikið
um örlögin, hann þjáðist oft af þung
lyndi, og samkynhneigð, sem hann
fór leynt með, olli honum sálar
angist. Í sinfóníunni heyrist sama
stefið aftur og aftur í fleiri en einum
kafla, og gengur í gegnum talsverðar
umbreytingar. Það er þungbúið í
inngangi fyrsta kafla, en þegar það
birtist í lokakaflanum er það orðið
sigri hrósandi. Stefið hefur verið
kallað örlagastefið, því tónskáldið
kallaði innganginn „algera uppgjöf
fyrir örlögunum“ í glósubók áður en
hann fór að semja sinfóníuna.
Tsjajkovskí var þarna undir
áhrifum ungverska tónskáldsins
Franz Liszt sem endurtók oft sömu
stefin í ólíkum köflum sömu tón
smíðarinnar. Hann skapaði þannig
áhrifameiri heildarsvip. Sinfónían
eftir Tsjajkovskí er makalaust verk,
fullt af dásamlegum melódíum og
svo mögnuðum hápunktum að
maður fær gæsahúð aftur og aftur.
Flutningur hljómsveitarinnar var
í fremstu röð undir öruggri stjórn
Sakari. Hornsólóið í hæga kaflanum
var himneskt, og blásararnir voru
allir með sitt á tæru. Strengirnir
voru hnausþykkir og munúðar
fullir, og túlkunin var gædd ákefð og
spennu sem var einstaklega ánægju
leg. Útkoman var stórbrotin og gríp
andi; Sinfóníuhljómsveit Íslands var
greinilega í toppformi. Jónas Sen
niðursTaða: Framúrskarandi
flutningur á Tsjajkovskí og Strauss.
Magnaðir hápunktar framkölluðu gæsahúð
„Söngur hennar var tilfinningaríkur og margbrotinn.“ Fréttablaðið/GVa
Bækur
reykjavík um 1900 með
augum Benedikts Gröndals
HHHHH
Útgefandi: Sögur útgáfa
ritstjórn: Illugi Jökulsson
blaðsíður: 260
Reykjavíkurlýsing Benedikts Gröndals, sem hann skrifaði um aldamótin
1900, birtist fyrst í Eimreiðinni
en hefur ekki komið út í sér
stakri bók fyrr en nú. Sú bók,
sem Sögur útgáfa senda frá sér,
er hin veglegasta, eins og Grön
dal á skilið, og sérlegur fengur
er að þeim fjölmörgu myndum
sem hana prýða.
Í bókinni lýsir Gröndal Reykjavík
síns tíma og segir frá íbúum, húsum
og hverfum, oft mjög ítarlega.
Hann fjallar sömuleiðis um götu
líf, menntalíf, listir, söfn, félagslíf,
trúarlíf, skemmtanir og fleira. Hin
leiftrandi stílgáfa Gröndals nýtur
sín iðulega mjög vel eins og í lýsingu
á fínum herrum sem Gröndal segir
vera „í hinu hærra veldi tilverunnar
á flaksandi flugnakápum eins og
stórkostlegir leðurblökuvængir,
sem fylla loftið með vindi og fram
farastormi, og svo má ekki gleyma
að hafa staf til að slá í kringum sig
– líklega til að ryðja í burtu öllu því
sem er sjö eða átta ára gamalt, hvað
þá eldra, því það er álitið óbrúkandi
og á eftir tímanum.“
Kannski hefur enginn Íslend
ingur verið afundinn á prenti á
jafn skemmtilegan hátt og Bene
dikt Gröndal. Víða í Reykjavíkur
lýsingu hans eru meinyrtar athuga
semdir um menn og málefni sem
krydda verkið mjög. Nokkrum
sinnum er lesandinn líklegur til
að skella upp úr. Lesturinn er ein
faldlega hin besta skemmtun, þótt
höfundur hafi vissulega ekki ætlað
sér að skrifa skemmtirit heldur rit
til upplýsingar. Og upplýsingar um
Reykjavík fær lesandinn sannar
lega í stórum skömmtum. Sumt
þar myndi reyndar eitt og sér virka
á köflum sem of nákvæmt og full
upptalningarlegt. Kemur þá að
þætti Ívars Gissurarsonar sem sá
um myndritstjórn en fjölmargar
ljósmyndir eru í verkinu af húsum,
umhverfi og fólki í Reykjavík. Les
andinn hefur því Reykjavík þessara
ára í mynd um leið og hann les fróð
legar lýsingar Gröndals um bæjar
lífið. Áhrifamestu
myndirnar eru af fólki
og ber þá sérstaklega
að nefna mynd sem
tekin er í október
mánuði árið 1901 af
drukknum manni sem
liggur í götunni. Önnur
býsna athyglisverð er af
hinni svipsterku og lífs
reyndu Gunnu grallara
í skautbúningi. Vert er
að minnast á myndar
textana sem eru afar
upplýsandi. Reyndar
má segja að þessi bók sé
prýðilegt dæmi um það
þegar texti og myndir
vinna vel saman og
skapa nær fullkomna
heild.
Ýmiss konar ítarefni
er í bókinni. Þar er til dæmis að
finna stutt brot úr Dægradvöl, hinni
leiftrandi skemmtilegu sjálfsævi
sögu skáldsins. Einnig er birt stutt
grein frá árinu 1900 þar sem Matthí
as Jochumsson skrifar um þessa
Reykjavíkurlýsingu Gröndals. Auk
þess eru í bókinni minningarljóð og
erfiljóð um Gröndal. Forseti Íslands,
Guðni Th. Jóhannesson, skrifar
aðfaraorð og Illugi Jökulsson, sem sá
um ritstjórn, skrifar skemmtilegan
formála. Verulega gaman er að sjá
þegar bókaforlög vanda til verka
eins og hér er gert.
Kolbrún bergþórsdóttir
niðursTaða: Einstaklega eiguleg bók
með Reykjavíkurlýsingu Gröndals og
myndum sem fullkomna hana. Bók sem
er fallega gerð úr garði.
Nær fullkomin heild
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
A F S L ÁT T U R
25%
KO M D U N Ú N A !
T E M P U R-D A G A R
Nýjar gerðir
og fjölbreytt úrval
heilsukodda
TEMPUR® Hybrid
Hönnuð fyrir sneggra viðbragð
TEMPUR® Original
Hönnuð fyrir meiri stuðning
TEMPUR® Cloud
Hönnuð fyrir meiri mýkt
ALLT ÞAÐ NÝJASTA FRÁ TEMPUR ...
TEMPUR-DAGAR
... MEÐ 25% AFSL ÆT TI Í BETRA BAKI Í SEPTEMBER
AÐ SOFA ER EIT T
AÐ HVÍL AST ER ANNAÐ
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
2 6 . s e p T e m B e r 2 0 1 8 m i ð V i k u D a G u r18 m e n n i n G ∙ F r É T T a B l a ð i ð
menning
2
6
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:4
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
E
A
-4
2
2
8
2
0
E
A
-4
0
E
C
2
0
E
A
-3
F
B
0
2
0
E
A
-3
E
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
5
6
s
_
2
5
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K