Fréttablaðið - 26.09.2018, Side 48
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Miðvikudagur
hvar@frettabladid.is
26. september 2018
Stórsveit Reykjavíkur undir stjórn Franky Rousseau spilar nokkur eldheit lög í Hörpunni í kvöld. FRéttablaðið/SteFán
Viðburðir
Hvað? Una Margrét með erindi um
leiki barna í gegnum aldirnar
Hvenær? 12.15
Hvar? Bókasafn Kópavogs
Miðvikudaginn 26. september
klukkan 12.15 mun útvarpskonan
ástsæla Una Margrét Jónsdóttir
flytja erindi um leiki barna frá
fyrri tíð. Hún mun stikla á stóru í
sögu íslenskra leikjasöngva allt frá
18. öld og fram yfir aldamótin 2000.
Meðal þess sem kemur við sögu er
stríðnisrím frá 18. öld, rómantískir
söngdansar frá aldamótunum 1900
og klappleikir frá síðustu áratugum.
Viðburðurinn er liður í dagskrá
Menningarhúsanna í Kópavogi,
sem fer fram kl. 12.15 á Bókasafni
Kópavogs, Gerðarsafni, Náttúru
fræðistofu, Héraðsskjalasafni eða í
Salnum í hverri viku. Viðburðurinn
hlaut styrk frá nefnd um fullveldis
afmæli Íslands.
Hvað? Danspartí Dans og Kúltúr
Hvenær? 21.00
Hvar? Gaukurinn, Tryggvagötu
Þriðja danspartí Dans og Kúltúr
verður á Gauknum í kvöld, mið
vikudaginn 26. september. Dans
partíin hafa gjörsamlega slegið í
gegn því þar gefst fólki færi á að
kynnast og læra ólíka dansstíla á
skemmtilegan máta. Hugmyndin
með þessum kvöldum er að sam
eina dansmenninguna á höfuð
borgarsvæðinu og bjóða upp á
eina kvöldstund þar sem ólíkir
dansstílar mætast. Engin þörf
á fyrri dansreynslu eða á dans
félaga. Nóg að mæta í stuði og
með viljann til að brillera á dans
gólfinu.
Hvað? Bókakaffi | Gísli Marteinn
Baldursson fjallar um leyndar hliðar
Tinnabókanna
Hvenær? 20.00
Hvar? Borgarbókasafnið, Gerðubergi
Í Bókakaffi í september fjallar
sjónvarpsmaðurinn og Tinnafræð
ingurinn Gísli Marteinn Baldursson
um Tinnabækur Hergés. Ævintýri
Tinna hafa notið mikilla vinsælda
hér á landi allt frá því að Tinni kom
fyrst út á íslensku árið 1971. Hver
man ekki eftir bræðrunum Skafta
og Skapta, eða hefur ekki spreytt
sig á að tvinna saman blótsyrði í
anda Kolbeins kafteins? Það var þó
rúmum fjörutíu árum eftir að Tinni
birtist fyrst á prenti í kaþólsku dag
blaði í Belgíu, árið 1929.
Hvað? Dansnámskeið fyrir byrjendur
í svingdansi 4 miðvikudagskvöld
Hvenær? 20.00
Hvar? Danshöllin, Drafnarfelli
„Komið og dansið“ verður með
dansnámskeið fyrir byrjendur í
svingdansi í Danshöllinni í kvöld
og næstu þrjú miðvikudagskvöld
klukkan 20.00 til 22.00. Skráning í
síma 5777700.
Hvað? Trailer Park Boys
Hvenær? 20.00
Hvar? Háskólabíó
Strákarnir í Trailer Park Boys
reyna á samvisku og sómakennd
áhorfenda með óviðjafnanlegum
og meinfyndnum hætti, en nú er
komið að þeim að sýna villtustu
hliðar sínar í Háskólabíói þann
26. september í splunkunýrri
sýningu. Hópurinn samanstendur
af hinum treggáfuðu og stórfurðu
legu Ricky, Julian, Bubbles og
Randy, sem hafa eytt öllu lífi sínu
í hjólhýsahverfinu Sunnyvale í
Kanada. Þríeykið hefur slegið veru
lega í gegn í Bandaríkjunum og
víðar með ýktum heimildarþáttum
sínum þar sem óheflaður húmor
þeirra er allsráðandi. Auk sjón
varpsþáttanna hefur hópurinn gert
garðinn frægan með ýmsum uppi
stöndum og kvikmyndum.
Hvað? Gagnavísindaveisla í Tjarnar-
bíói
Hvenær? 17.00
Hvar? Tjarnarbíó
Data Lab Ísland og hugbúnaðar
fyrirtækið Dataiku bjóða til veislu
í Tjarnarbíói. Þar verður sjónum
beint að nýjungum á sviði gagna
vísinda (data science) og þýðingu
þeirra fyrir íslenskt atvinnulíf. Á
dagskrá eru þrír fyrirlesarar sem
nálgast viðfangsefnið úr ólíkum
áttum.
Hvað? Cocktail pop-up á Kryddi, vol.
II - Berjaþema
Hvenær? 17.00
Hvar? Krydd, Hafnarfirði
Það var bara svo gaman síðast að
við verðum að endurtaka leikinn.
Í þetta skipti með berja og haust
þema. Dagana 26.30. september
verður Andri Davíð Pétursson
með popup kokteilaseðil á
veitingahúsinu Kryddi í Hafnar
firði. Andri er fyrsti sigurvegari
World Class Bartender of the Year
á Íslandi og keppti fyrir Íslands
hönd í Miami árið 2016. Andri
hefur sýnt og sannað að hann er
einn af okkar fremstu barþjónum
og mun hann ásamt hæfileikarík
um barþjónum Krydds töfra fram
einstaklega bragðgóða kokteila
sem allir eiga það sameiginlegt
að vera undir áhrifum íslenska
haustsins.
Hvað? Hrútaþukl 2018
Hvenær? 20.00
Hvar? Hestur, Borgarbyggð
Hrútaþukl Hreðjars verður haldið
miðvikudaginn 26. september
næstkomandi. Herlegheitin byrja
klukkan 20.00. Keppnin fer þannig
fram að það verða fimm hrútar sem
eru nú þegar stigaðir. Keppendur
þurfa einungis að þukla á hrút
unum og raða þeim í þá röð sem
þér finnst vera réttust, frá versta til
besta, auðvelt! Skráning fer fram á
staðnum, svo að við hvetjum alla
til að mæta hvort sem þeir ætla að
taka þátt eða ekki.
Hvað? Session List P2 – Mæja
Hvenær? 23.00
Hvar? Session Craft Bar, Bankastræti
Session kynnir til leiks listakonuna
Mæju sem tekur yfir veggi Session
næsta mánuðinn og um sölusýn
ingu er að ræða. Mæja er með aðra
sýningu sama kvöld á Kexi Hosteli,
en mun, ótrúlegt en satt, halda á
verkum þaðan með hjálp gesta og
koma þeim yfir á Session klukkan
23.00.
Tónlist
Hvað? Stórsveit Reykjavíkur og
Franky Rousseau
Hvenær? 20.00
Hvar? Harpa
Stórsveit Reykjavíkur heldur tón
leika í Silfurbergi, Hörpu, mið
vikudaginn 26. september kl. 20.
Stjórnandi og höfundur tónlistar
er kanadíska tónskáldið Franky
Rousseau. Hann hefur vakið mikla
athygli og er á meðal fremstu
höfunda stórsveitatónlistar af
yngri kynslóðinni í New York um
þessar mundir. Rousseau er meðal
annars þekktur fyrir samstarf sitt
við píanóstjörnuna Aaron Parks.
Einstakt tækifæri til að heyra það
nýjasta frá New York.
Hvað? Hist Og
Hvenær? 21.00
Hvar? Mengi, Óðinsgötu
Eiríkur, Róbert og Magnús hafa
spilað með mörgum, mjög lengi,
þar með talið hver öðrum. Þeir hafa
starfað sem tríó í tæpt ár og gera
margt mjög skemmtilegt. Á hverj
um tónleikum má ma. heyra: „raf
magnshljóð“, „óhljóð“, „skrýtinn
takt“ og síðast en ekki síst: „Heiiiii,
hvað er þetta aftur?“
Gísli Marteinn er einn helsti tinnasérfræðingur landsins og ræðir um blaða-
manninn knáa í borgarbókasafninu í Gerðubergi í kvöld. FRéttablaðið/SteFán
Síðumúla 34 • 108 Reykjavík
Sími 696 5600 • rafsol@rafsol.is
ENDURNÝJUN
OG VIÐHALD
Löggiltur rafverktaki
Sími:
696 5600
rafsol@rafsol.is
Whitney ...................................................... 17:45
Útey 22. júlí ............................................ 18:00
Kvíðakast (Atak Paniki) .................... 18:00
Climax (eng sub) ................................. 20:00
Sorry to Bother You ...................... 20:00
Útey 22. júlí ............................................ 20:00
Sorry to Bother You ....................... 22:00
Whitney ..................................................... 22:00
Kona fer í stríð (eng sub) ............. 22:00
HAPPY HOUR Á BARNUM 17-19 NÁNAR Á BIOPARADIS.IS
HÁGÆÐA IÐNAÐARHURÐIR
Járnháls 2-4 | 414-8600 | velaborg@velaborg.is
2 6 . s e p T e m b e r 2 0 1 8 m I Ð V I K U D A G U r20 m e n n I n G ∙ F r É T T A b L A Ð I Ð
2
6
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:4
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
E
A
-5
5
E
8
2
0
E
A
-5
4
A
C
2
0
E
A
-5
3
7
0
2
0
E
A
-5
2
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
5
6
s
_
2
5
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K