Fréttablaðið - 09.10.2018, Blaðsíða 8
Páfagarður Djöfullinn ber ábyrgð
á þeim fjölmörgu kynferðisofbeldis
hneykslismálum sem hafa skekið
kaþólsku kirkjuna. Þetta sagði Frans
páfi í gær og bað kaþólikka um allan
heim um að leggjast á bæn alla daga
októbermánaðar til að hrekja freist
arann í burtu.
„Við verðum að bjarga kirkjunni
frá þeim illa, frá freistaranum. Á
sama tíma þurfum við að vera með
vituð um sekt okkar, mistök og
misbeitingu í nútíð og fortíð,“ hafði
Reuters eftir Frans páfa.
Hneykslismál kaþólsku kirkj
unnar eru mýmörg og hefur komist
upp um stórfelld brot í meðal ann
ars Bandaríkjunum og í Síle undan
farið. – þea
Páfi kennir
kölska um
hneykslismálin
Frans páfi. Nordicphotos/Getty
Vísindi Bandaríkjamennirnir
William Nordhaus og Paul Romer
vinna nóbelsverðlaunin í hagfræði
í ár. Um þetta tilkynnti sænska vís
indaakademían í gær. Nordhaus
er verðlaunaður fyrir að aðlaga
kenningar hagfræðinnar til þess að
gera ráð fyrir loftslagsbreytingum,
Romer fyrir að gera ráð fyrir fram
þróun tækninnar.
„Ég held að fjölmargir haldi að
það sé svo erfitt og dýrt að vernda
umhverfið að fólk vilji bara hundsa
vandann. En við getum án nokk
urs vafa náð miklum árangri í
umhverfis vernd án þess að fyrir
gera möguleikum okkar á því að
viðhalda hagvexti,“ sagði Romer við
Reuters í gær. – þea
Tveir fengu
nóbelsverðlaun
Bandaríkin Neyðarástandi hefur
verið lýst yfir og fellibylsviðvaranir
verið gefnar í 26 sýslum á hinu svo
kallaða pönnuskafti (e. Panhandle)
Flórída í Bandaríkjunum, það er
landræmunni sem gengur vestur
frá Flórídaskaganum og að borginni
Pensacola. Sömuleiðis hafa verið
gefnar út viðvaranir við hitabeltis
stormi í nærliggjandi sýslum og suður
að Tampa. Ástæðan er fellibylurinn
Michael, sem gekk yfir Kúbu í gær
sem hitabeltisstormur. Samkvæmt
frétt CNN var allt að 304 millimetra
úrkoma á vesturhluta Kúbu í gær.
Samkvæmt spám bæði einka
reknu veðurstofunnar The Weather
Channel og fellibyljamiðstöðvar
Bandaríkjanna (NHC) er útlit fyrir
að Michael gangi á land í Flórída
sem annars stigs fellibylur á morg
un. Vindhraði verði á milli 33 og 49
metrar á sekúndu og úrkoma mikil.
Strax í gær voru eyjarskeggjar á
Keyseyjum, rétt suður af Flórída
skaga, farnir að finna vel fyrir vot
viðrinu. Búist er við um 100 milli
metra úrkomu þar í dag.
Búist er við því að yfirborð sjávar
komi til með að hækka mikið allt
frá Pensacola og að Tampa vegna
stormsins. Hafa íbúar því verið
beðnir um að vera á varðbergi
þar sem ástandið gæti orðið
lífshættulegt.
„Þessi stormur ógnar lífi
okkar og verður gífurlega
hættulegur. Afleiðingar
hans á samfélög á svæð
inu gætu orðið gríðar
legar. Þess vegna þurfa
fjölskyldur að vera
vel undirbúnar,“
sagði Rick Scott
ríkisstjóri á blaða
mannafundi og
bætti við:
„Þið verðið öll
að undirbúa ykkur.
Ekki taka neina
áhættu. Sjávarborð
mun hækka, það
verður hvasst, það
gætu orðið flóð og það eru miklar
líkur á því að hvirfilbyljir mynd
ist.“
Íbúar Flórída hafa margir
hverjir einbeitt sér að kosn
ingum undanfarna daga.
Kosið er um annað sæti
ríkisins í öldunga
deild þingsins og
um ríkisstjóra þess
þann 6. nóvember
næstkomandi svo
fátt eitt sé nefnt.
Vegna stormsins
hafa frambjóð
endur flestir aflýst
f y r i r h u g u ð u m
kosningafundum
sínum.
Útlit er fyrir að
afar mjótt verði á
munum í kosningunum. Í nýjustu
könnunum mældist munurinn á
frambjóðendum Demókrata og
Repúblikana í báðum kosningum
einungis eitt prósent.
Búist er við því að Michael haldi
áfram yfir Georgíu og SuðurKaról
ínu sem hitabeltisstormur áður en
hann heldur svo í norðaustur.
thorgnyr@frettabladid.is
Neyðarástand vegna fellibyls
Fellibylurinn Michael stefnir á Flórída. Spár gera ráð fyrir því að hann gangi á land sem annars stigs fellibylur
á morgun. Neyðarástandi lýst yfir og varað við hvassviðri, mikilli úrkomu, hækkandi sjávarborði og flóðum.
stormurinn gekk yfir Kúbu í gær. Neyðarástandi lýst yfir í Flórída. Viðvaranir við hitabeltisstormi í sýslunum í kring.
Skammt stórra högga á milli
Starfsmenn FEMA, almannavarna Bandaríkjanna, standa í ströngu þessa
dagana. Stutt er frá því að fellibylurinn Florence reið yfir Bandaríkin og
olli miklu tjóni. Í fyrra gengu svo Harvey, Irma, Maria og Nate á land í
Bandaríkjunum með stuttu millibili.
The New York Times fjallaði um það í gær að FEMA hefði styrkt ríki,
svæði og sveitarfélög um alls 81 milljarð Bandaríkjadala, jafnvirði tæp-
lega tíu billjóna króna, frá árinu 1992. Fjármagnið fór í 683.035 mismun-
andi verkefni. Allt frá því að fjarlægja brak og til þess að reisa opinberar
byggingar á nýjan leik eftir að þær höfðu hrunið í ofviðri.
Ekki hafi hins vegar verið tekið nægilegt tillit til loftslagsbreytinga við
þau uppbyggingarverkefni sem fjármunirnir fóru í. Því hafi hinar nýju
byggingar verið alveg jafnviðkvæmar fyrir næsta stormi og þær sem
hrundu í þeim fyrri, að því er blaðið hélt fram.
Ford Transit Custom er þekktur fyrir
einstakan búnað, endingu og hagkvæmni.
Með nýrri kynslóð bætir Ford enn í og gerir
Transit Custom enn betri. Hinn nýi Ford
Transit Custom er ríkulega búinn m.a.
olíumiðstöð með tímastilli, upphitanlegri
framrúðu, aksturstölvu, Easy fuel
eldsneytisáfyllingu, upphitanlegu
ökumannssæti, spólvörn, ESP
stöðuleikakerfi, brekkuaðstoð og
14 geymsluhólfum í innréttingu.
NÝR FORD TRANSIT CUSTOM
– Betri en nokkru sinni
3.790.000 KR. MEÐ VSK.
FÁANLEGUR SJÁLFSKIPTUR
3.056.452 KR.ÁN VSK.
FORD TRANSIT CUSTOM KOSTAR FRÁ:
Brimborg Reykjavík
Bíldshöfða 6
Sími 515 7000
Brimborg Akureyri
Tryggvabraut 5
Sími 515 7050
Nýir og notaðir bílar:
Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17
og laugardaga kl. 12-16 ford.is
Ford_Transit_Custom_5x15_20180831_END.indd 1 01/10/2018 12:54
rick scott.
9 . o k t ó B e r 2 0 1 8 Þ r i ð J u d a g u r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a B L a ð i ð
0
9
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:3
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
0
5
-E
3
2
0
2
1
0
5
-E
1
E
4
2
1
0
5
-E
0
A
8
2
1
0
5
-D
F
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
8
_
1
0
_
2
0
1
8
C
M
Y
K