Fréttablaðið - 09.10.2018, Síða 24

Fréttablaðið - 09.10.2018, Síða 24
Við þurfum að byggja upp seiglu í börnunum okkar og samfélögum. Bellis hefur lagt áherslu á rannsóknir í framhaldi af svokallaðri Adverse Child- hood Experiences (ACE) rannsókn um áhrif erfiðra upplifana í æsku á heilsu á fullorðinsárum. ACE rannsóknarteymið skilgreindi 10 algengustu áföll og erfiða reynslu í uppvexti 17.000 þátttakenda í rannsókninni fram að 18 ára aldri og sýndi fram á sterk tengsl milli fjölda þessara áfalla eða ACE-stiga við andlegan, líkamlegan og félags- legan vanda á fullorðinsárum. Með öðrum orðum þá sýndu rann- sakendurnir fram á að fjöldi stiga/ áfalla gæfi til kynna vaxandi hættu á heilsufars- og félagsvanda síðar á ævinni. Um hvað fjallar fyrirlestur þinn á Íslandi? Ég mun ræða um hvernig ofbeldi, vanræksla og upplifun af heim- ilisofbeldi og önnur erfið upp- vaxtarskilyrði geta breytt því hvernig við þróumst, ekki aðeins andlega heldur einnig líkamlega. Þegar börn upplifa erfið áföll í æsku hættir þeim fremur en öðrum börnum til að tileinka sér óheilsusamlega lífshætti eins og að reykja, misnota vímuefni og sýna ofbeldisfulla hegðun og þróa því frekar með sér langvarandi heilsu- brest eins og sykursýki og hjarta- sjúkdóma seinna á ævinni. Ég mun einnig segja frá því hvernig sumum börnum með erfiða upplifun að baki tekst með því að þróa með sér seiglu að komast hjá þessum vandamálum. Ég mun velta því upp hvernig við getum unnið gegn erfiðri upplifun barna, byggt upp seiglu og þróað þjónustu sem styður betur við fólk, bæði börn og fullorðna, sem hefur orðið fyrir slæmri reynslu á uppvaxtar- árunum. Hvað geta yfirvöld gert til að draga úr afleiðingum erfiðra uppvaxtarskilyrða á sam- félagið? Við þurfum að byggja upp seiglu í börnum okkar og samfélögum. Seiglu er hægt að þróa á margan hátt, til dæmis með því að tryggja að börn hafi alltaf aðgang að full- orðnum einstaklingi sem þau geta treyst og talað við. Hægt er að þróa seiglu með því að gefa börnum tækifæri til að vera virkir þátttak- endur í samfélaginu, veita þeim tilfinningu fyrir því að þau geti náð árangri, veita þeim sterkar fyrir- myndir til að horfa upp til og með ýmsum öðrum hætti. Við getum byggt upp betri áfallastuðning í félagslega, heilbrigðis-, mennta- og réttarkerfinu. Þjálfa þarf starfs- fólkið upp í að skilja áhrif áfalla í barnæsku á hegðun og heilsu á fullorðinsaldri. Með því móti er því betur gert kleift að hjálpa börnum í þörf fyrir slíkan stuðning. Hvað geta þeir sem hafa átt erfiða æsku gert til að draga úr afleiðingum þess? Þættir eins og að tengjast öðru fólki, iðka íþróttir og taka þátt í vinnumarkaðnum ef viðkomandi er fær um slíkt, eru hjálplegir til að vinna gegn hugsanlegum áhrifum erfiðra áfalla í æsku. Stundum getur hjálpað að tala við heil- brigðisstarfsfólk. Í rannsóknum okkar kemur fram að fæstir höfðu rætt við sérfræðinga um erfið upp- vaxtarár sín. Núna erum við að skoða hversu gagnlegt getur verið fyrir fólk að deila reynslu sinni með heilbrigðisstarfsfólki jafnvel löngu eftir erfiðar upplifanir. Ef takast á að ná árangri verða allar viðeigandi stofnanir að til- einka sér skilning og leggjast á eitt til að ná árangri í verkefninu. Við höfum stofnað ACE-miðstöð með fjármögnun frá nokkrum opinberum stofnunum til að auka skilning innan þjónustustofnana á því hvernig hægt sé að varna og bregðast við afleiðingum áfalla og erfiðra uppeldisskilyrða. Við höfum komist að því að rót margra erinda fólks til heilsugæslunnar, lögreglunnar, félagsþjónustunnar eða menntastofnana er hægt að rekja til erfiðra upplifana í æsku. Með því að auka skilning starfs- manna viðkomandi stofnana á þessari staðreynd stuðlum við að því að þær vinni betur saman og bjóði fólki viðeigandi stuðning. Fólk þarf ekki aðeins að upplifa þennan stuðning frá sérfræðingum heldur einnig framlínustarfsfólki því að sérfræðingarnar hitta fólk oft ekki fyrr en vandamálin eru orðin alvarleg og erfiðara er að takast á við þau. Erfið reynsla veldur verri heilsu Mark Bellis, prófessor og ráðgjafi hjá Alþjóða heilbrigðismálastofnuninni WHO og fleiri alþjóðlegum stofnunum, fjallar um afleiðingar áfalla og erfiðra uppvaxtarskilyrða á heilsu og velsæld full orðinna á opnu málþingi Geðhjálpar og Geðverndarfélags Íslands á Alþjóðlega geðheilbrigðisdaginn. Próf. Mark Bellis, rannsókna- stjórnandi við Lýðheilsustofn- anir Wales og Stóra-Bretlands og stjórnarformaður miðstöðvar for- varna gegn ofbeldi hjá Alþjóðaheil- brigðisstofnun- inni WHO. 19.30 – 19.40 Opnunarávarp Gunnlaug Thorlacius, formaður Geðverndarfélags Íslands. 19.40 – 20.45 Áhrif erfiðrar reynslu í æsku á heilsu á fullorðinsárum, kostnaður og forvarnir Pr. Mark Bellis, stjórnandi rannsókna við Lýðheilsustofnanir Wales og Stóra Bretlands og stjórnarformaður miðstöðvar forvarna gegn ofbeldi hjá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni WHO. 20.45 – 21.05 Heilsa fullorðinna í ljósi erfiðrar æsku Margrét Ólafía Tómasdóttir, dr. í heilsugæslulækningum og lektor við Háskóla Íslands. 21.05 – 21.20 Fjallabaksleið til nýs lífs Sara Elísa Þórðardóttir varaþingmaður. 21.20 – 21.35 Fræðsluátak Geðhjálpar um afleiðingar erfiðrar reynslu í æsku á heilsu á fullorðinsárum Hrannar Jónsson, formaður Geðhjálpar. 21.35 – 21.45 Samantekt og umræður. Dulin áhrif erfiðrar reynslu í æsku á heilsufar á fullorðinsárum Opið málþing Geðhjálpar og Geðverndarfélags Íslands á Alþjóða geðheilbrigðisdeginum 10. október 2018. Fyrirlestrarsalur Íslenskrar Erfðagreiningar við Sturlugötu 8. Fundarstjóri Kjartan Valgarðsson, framkvæmdastjóri Geðverndarfélags Íslands. Aðgangur ókeypis 4 GEðHjáLP 9 . O k tó B E r 2 0 1 8 Þ R I ÐJ U DAG U R 0 9 -1 0 -2 0 1 8 0 4 :3 6 F B 0 4 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 0 5 -C 5 8 0 2 1 0 5 -C 4 4 4 2 1 0 5 -C 3 0 8 2 1 0 5 -C 1 C C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 8 s _ 8 _ 1 0 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.