Morgunblaðið - 02.06.2018, Síða 6

Morgunblaðið - 02.06.2018, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 2018 Bretagne skaginn&París sp ör eh f. Haust 7 Þessi glæsilega ferð hefst í friðsældinni í Normandíhéraði, þar sem kynnumst borginni Caen, bæjunum St. Malo og Paimpol á Bretagne, að ógleymdri klettaeyjunni merku, Mont St. Michel. Á leiðinni til Parísar, einnar mestu menningar- og listaborg Frakklands, verður höfð viðdvöl í bænum Dinan sem stundum er nefndur eitt best geymda leyndarmál Frakklands. 21. - 29. september Fararstjóri: Laufey Helgadóttir Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK Verð: 219.900 kr. á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið! Við fórum á skauta á Tjörninni og þar var oft músík og svo hittumst við gjarnan og spiluðum á kvöldin.“ Stúdentamót á Þingvöllum Hópurinn fór í hinar ýmsu ferðir saman. „Í fimmta bekk fórum við út í Drangey og Pálmi rektor fór með okkur. Pálmi sagði okkur að vara okkur á grjóthruninu en fótabúnaður hópsins var margbreytilegur, sumir voru í strigaskóm og aðrir í skíða- klossum, það var ekkert verið að spekúlera í því,“ segir Sigfríður og hlær. „Svo fórum við líka til Þing- valla. Það var daginn eftir að við út- skrifuðumst og þar var haldið stúd- entamót. Við vorum á Þingvöllum yfir helgina og gistum í Valhöll. Á mánu- deginum slógum við svo upp veislu á Hótel Borg.“ Vorkunn einskis nýt Sigfríður segist ekki vorkenna þeim sem nú klára menntaskólann á þremur árum enda gerði hún það sjálf. „Maður verður að muna að vor- kenna aldrei sjálfum sér því allir geta miklu meira en þeir halda. Hver ein- asta manneskja getur meira ef hún bara reynir.“ Sigfríður er dugleg að semja vísur og kveður eina sem hún orti til skóla- systkina sinna sem hafa kvatt jarð- neska tilveru. Gakktu hægt um gleðinnar dyr, gættu þess að engan saki, vinir hér sem voru fyrr, veislu halda að tjaldabaki. og telur upp þýskar forsetningar eins og ekkert sé. Það er þó ekki einungis námið sem er Sigfríði minnisstætt úr mennta- skólagöngunni. „Þetta var alveg yndislegur tími. Við vorum bara fjörutíu og vorum því eins og ein stór fjölskylda. Við héldum saman alla ævina en ég er reyndar ein eftir, hin eru fallin frá.“ Hópurinn brallaði ýmislegt saman. „Pálmi, Einar Magg og Valdimar voru alltaf að fara eitthvað á honum Grána gamla, bílnum sínum. Þeir voru alltaf tilbúnir í að fara eitthvað með okkur hin, í skíðaferðir, göngu- ferðir eða hvað sem var. Við þekktum vel heimilin hvert hjá öðru og vorum alltaf velkomin hvert heim til annars. Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Kvenskörungurinn Sigfríður Niel- johníusdóttir fagnaði 80 ára stúdents- afmæli sínu á útskrift Menntaskólans í Reykjavík í gær. Sigfríður er fyrsta íslenska konan sem nær þessum áfanga en hún útskrifaðist úr MR ár- ið 1938. Hún þakkar föður sínum fyrir það að hafa hlotið menntun. „Pabbi var búinn að ákveða það að við systkinin skyldum mennta okkur. Hann sagði að menntun yrði aldrei tekin frá okk- ur en peningar gætu horfið.“ Engar stúlkur í stærðfræði Sigfríður varð stúdent úr mála- deild. „Við vorum fjörutíu í árgang- inum, bara strákar í stærðfræðideild en tuttugu stelpur og átta strákar í máladeild. Það var í fyrsta skipti sem það voru svona margar stelpur í menntaskólanum.“ Ástæður þess að engar stúlkur hafi útskrifast af stærðfræðibraut í þá daga segir Sigfríður einfaldar: „Talið var að stúlkur hefðu ekkert að gera í stærðfræðideild. Þeim var sagt að þær gætu ekki lært stærðfræði eða raungreinar yfirleitt. Annað hefur nú aldeilis komið á daginn.“ Menntaskólanámið nýttist Sigfríði vel. „Ég kann enn utanbókar það sem ég lærði og ég vil því meina að það sé ekkert svo vitlaust að læra utan- bókar. Ég man ýmislegt úr latínunni og ég tala nú ekki um allar forsetn- ingarnar í þýskunni,“ segir Sigfríður Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Afmæli Sigfríður segir að stúdentsárin hafi verið yndislegur tími. Hún er sú eina sem enn lifir úr útskriftarhópnum. ,,Allir geta miklu meira en þeir halda“  Sigfríður Níeljohníusdóttir fagnar 80 ára stúdentsafmæli Ljósmynd/Úr einkasafni Stúdína Myndin var tekin þegar Sigfríður útskrifaðist 1938. Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is „Þetta eru frábærar fréttir fyrir Hafnarfjörð, að Coripharma skuli hafa keypt lyfjaverksmiðju Actavis og ætli að hefja lyfjaframleiðslu í verksmiðjunni,“ sagði Rósa Guð- bjartsdóttir, nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar og oddviti Sjálf- stæðisflokksins, í samtali við Morgunblaðið í gær. „Við Hafnfirðingar hljótum öll að gleðjast yfir þessum tíðindum. Þessi áform Coripharma skipta okkur vitanlega miklu máli og það er afskaplega ánægjulegt að þessi vinnustaður, lyfjaverksmiðjan, skuli á næstunni öðlast nýtt líf í höndum nýrra stjórnenda og eig- enda,“ sagði Rósa. Rósa segir að Hafnarfjarðarbær muni að sjálfsögðu taka vel á móti Coripharma. „Við fögnum því alltaf þegar ný fyrirtæki koma í bæinn og tökum vel á móti öllum,“ sagði Rósa, sem kveðst ekki síst glöð yfir því að svo fjölmennur vinnustaður taki til starfa í bæjarfélaginu. Starfsmenn verði 300 talsins Eins og fram kom í Morgun- blaðinu í gær komust Sjálfstæðis- flokkurinn og Framsókn og óháðir í Hafnarfirði að samkomulagi um myndun nýs meirihluta í bænum í fyrradag. Rósa tekur við starfi bæjarstjóra en á síðasta kjör- tímabili var hún formaður bæjar- ráðs og Haraldur L. Haraldsson gegndi starfi bæjarstjóra. Fram kom í Morgunblaðinu í gær, þegar rætt var við Bjarna K. Þorvarðarson, forstjóra Cori- pharma, að þegar lyfjaverksmiðjan verður komin í fullan rekstur stefni fyrirtækið að því að starfsmenn hennar og í stoðstörfum verði um 300 talsins, eða svipaður fjöldi og starfaði hjá Actavis þegar lyfja- verksmiðjan var í fullum rekstri. Bjarni sagði að fyrirtækið stefndi að því að þetta yrði innan tveggja ára. Frábærar fréttir fyrir Hafnarfjörð  Nýi bæjarstjórinn segir að bærinn muni taka vel á móti Coripharma Sindri Þór Stef- ánsson var úr- skurðaður í eins mánaðar farbann á ný í gær, skv. upplýsingum frá lögreglustjór- anum á Suður- nesjum. Lengd þess er í samræmi við kröfur yfir- valda. Sindri Þór var í byrjun maí úrskurðaður í mán- aðar farbann og rann það út í gær. Verjandi Sindra mótmælti kröf- unni á þeim grundvelli að skilyrði farbanns væru ekki uppfyllt og ætl- ar að kæra úrskurðinn. thor@mbl.is Telur skilyrði um farbann á Sindra Þór ekki uppfyllt Sindri Þór Stefánsson Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Umræður fóru fram um skipulag að- ildarfélaga Starfsgreinasambands Íslands í aðdraganda kjarasamninga á tveggja daga formannafundi sem lauk í gær. Aðalsteinn Á. Baldurs- son, formaður Framsýnar, hvatti þar til þess í ræðu að öll félögin næðu samkomulagi um að fara saman sem ein heild í kjaraviðræðurnar næsta vetur og gæta þyrfti þess að koma ekki sundruð að samningaborðinu. Á umliðnum árum hafa landsbyggð- arfélögin staðið saman í kjaravið- ræðum en Flóa- félögin samið sér. Þessu var vel tek- ið að sögn Aðal- steins, sem kveðst vona að nú verði kúvending á og öll félögin standi saman í viðræðunum eftir að kröfugerð hefur verið mótuð. Aðalsteinn segir að á fundinum hafi menn verið að stilla saman strengi og ræða undirbúning sem kominn er í fullan gang hjá hverju félagi fyrir sig við mótun kröfugerð- ar fyrir komandi kjaraviðræður. Aðalstein segir að erindi sem Stef- án Ólafsson prófessor flutti á fyrri degi formannafundarins um þróun launa, hafi vakið mikla athygli og þar hafi Stefán staðfest í einu og öllu gagnrýni verkalýðsfélaga og forystu þeirra á auglýsingaherferð ASÍ, hún væri skjön við söguna og staðreyndir um launaþróun verkafólks. Aðal- steinn segir að einnig hafi komið fram á fundinum að ekki hafi verið samstaða um það innan miðstjórnar ASÍ á sínum tíma að birta hinar um- deildu auglýsingar heldur verið um það skiptar skoðanir. Að sögn Aðalsteins er í bígerð að hann og Vilhjálmur Birgisson, for- maður Verkalýðsfélags Akraness, og Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, fari fljótlega á fund seðlabanka- stjóra til að fara yfir stöðu mála að ósk seðlabankastjóra. Fari í viðræður sem ein heild  Formenn allra SGS-félaga ræddu undirbúning kjaraviðræðna  Í bígerð fund- ur formanna Framsýnar, VR og VLFA með seðlabankastjóra um kjaramálin Aðalsteinn Árni Baldursson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.