Morgunblaðið - 02.06.2018, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 02.06.2018, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 2018 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Framkvæmdir við endurgerð Tryggvagötu frá Pósthússtræti að Lækjartorgi hefjast í byrjun næstu viku. Lokað verður fyrir umferð um Tryggvagötu á þessum kafla þar til verki lýkur í byrjun október. Bíla- umferð verður á meðan beint um Geirsgötu. Þá munu einnig hefjast fram- kvæmdir við Steinbryggju, en svo heitir nú sá kafli Pósthússtrætis sem er á milli Tryggvagötu og Geirsgötu. Á framkvæmdatíma verður hún að mestu opin fyrir gangandi vegfar- endur með einhverjum undantekn- ingum, samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg. Tvær nýjar göngugötur Inni á byggingarreitnum er einnig að hefjast vinna við frágang nýrra göngugatna sem fengið hafa heitin Kolagata og Tónagata. Kolagata mun liggja á milli Steinbryggju og Kalk- ofnsvegar, samsíða Tryggvagötu og Geirsgötu. Tónagata mun liggja frá Tryggvagötu yfir Geirsgötu að tón- listarhúsinu Hörpu. Bæjartorg, þar sem hinn heims- frægi pylsuvagn Bæjarins bestu hef- ur staðið um áratuga skeið, verður endurgert samtímis. Bæjarins bestu fá framtíðarstað á Bæjartorgi að framkvæmdum loknum en pylsu- vagninn hefur verið til bráðabirgða við hlið Eimskipafélagshússins. Samhliða þessum framkvæmdum er unnið að lokafrágangi á Kalkofns- vegi og Geirsgötu, en ekki er gert ráð fyrir frekari truflunum á umferð vegna þess. Kalkofnsvegur verður tekinn í notkun í áföngum og í lok vikunnar verður umferð hleypt á nýjan kafla, vestari akrein, frá Sæbraut að Geirs- götu. Þá verða einnig virkjuð ný um- ferðarljós á gatnamótum Geirsgötu og Kalkofnsvegar í lok vikunnar. Ljósastýring verður stillt til að mæta umferðarflæði um breytt gatnamót. Framkvæmdirnar munu óneitan- lega hafa áhrif á mannlífið í miðborg- inni og verða gerðar sérstakar ráð- stafanir til að beina gangandi vegfarendum um öruggar göngu- leiðir, segir í frétt frá borginni. Skilti verða sett upp á nokkrum stöðum til að vísa veginn og verða þau einnig á ensku vegna þess mikla fjölda er- lendra ferðamanna sem eru á þessum slóðum. Miðborgin mun breyta um svip  Endurgerð Tryggvagötu og Steinbryggju  Bæjarins bestu fara á Bæjartorgið að nýju  Kalkofnsvegur tekinn í notkun í áföngum  Ferðamönnum leiðbeint Mynd/Reykjavíkurborg Bæjartorg Hér má sjá pylsuvagn Bæjarins bestu kominn á sinn stað. Ný spennistöð hefur verið byggð á torginu. Gatan Steinbryggja dregur nafn sitt af samnefndri bryggju sem var byggð árið 1884 úr til- höggnum steini. Hún hvarf und- ir uppfyllingu um 1940. Bryggjan var í framhaldi af Pósthússtræti og er nú undir yfirborði jarðar, rétt austan við Tollhúsið. Er hún talin vera nokkuð heilleg. Steinbryggjan var upphaflega reist af bæjarsjóði Reykjavíkur og þótti framför miðað við litlu trébryggjurnar út af fjörukamb- inum í Reykjavík, sem voru í einkaeigu kaupmanna. Bryggjan var fyrsti viðkomu- staður þeirra sem komu til Reykjavíkur. Þegar Friðrik 8. Danakonungur kom til landsins 1907 gekk hann upp á Stein- bryggjuna. Einnig Kristján 10. og Alexandrína drottning 1921. Hvarf undir uppfyllingu SÖGUFRÆG STEINBRYGGJA Miðbær Hér má sjá Steinbryggjuna og hús Eimskipafélags Íslands. Nýr Audi A7 Frumsýndur í dag milli kl. 12 og 16 HEKLA · Laugavegi 170-174 / Audi.is Byltingarkennd hönnun Audi endurspeglast í nýjum Audi A7 sem býður upp á nýjustu tækni, ríkulegt pláss og þægindi engum lík. Tveir háskerpuskjáir með snertivirkni eru innbyggðir í mælaborðið þar sem ökumaður stýrir upplýsinga- og afþreyingarkerfi ásamt loftræstingu, þægindum og textaborði. Á boðstólum verður ljúffengt kaffi frá Kaffitár og súkkulaðimolar frá Hafliða. Litir og litablöð fyrir krakkana. Einn framsæknasti bíll okkar tíma Audi TTS verður á staðnum. Sjáumst!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.