Morgunblaðið - 02.06.2018, Page 18

Morgunblaðið - 02.06.2018, Page 18
BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Dæmi eru um að fjárfestar hafi hætt við áform um hótelbyggingar vegna aukinnar óvissu í ferðaþjónustunni. Þetta segir Hreiðar Hermannsson, forstjóri og eigandi Stracta hótels á Hellu, og bendir að bókunum hafi fjölgað minna en vænst var. Óraun- hæft hafi verið að reikna með miklum vexti frá metárinu 2017. Nokkrir mán- uðir hafi verið óvenjugóðir í fyrra. „Listi fyrirhugaðra hótela er ótrúleg- ur. Ég hef trú á því að aðeins brot af þessum hótelum verði byggt. Það fæst ekki fjármagn í sum verkefnin og önn- ur eru menn hættir við,“ segir Hreið- ar. Hvað varðar Stracta hótel sé útlit fyrir að áætlanir frá júní til áramóta haldi. Bókunum frá Þjóðverjum og Bretum sé að fækka en fjölga frá Bandaríkjunum og Asíu. Óttast launahækkanir Eigendur Stracta hótels hafa boðið það til sölu. „Ég reiknaði ekki með að fá neina fyrirspurn. Það hafa hins veg- ar komið nokkrar fyrirspurnir. Nokkr- ir eru að tala í alvöru,“ segir Hreiðar. Hann segir óvissu í kjaramálum og styrkingu krónunnar valda því að menn haldi að sér höndum. Þar með talið erlendir aðilar sem hafa áhuga á að fjárfesta í hótelum á Íslandi. „Það er stórmál ef það tefst að ganga frá kjarasamningum. Rætt er um tugprósenta launahækkanir. Erlendir aðilar eru logandi hræddir við launaliðinn. Á meðan vilja þeir ekki fjárfesta,“ segir Hreiðar. Steinþór Jónsson, hótelstjóri Hótel Keflavíkur, segir „skarpa niðursveiflu“ hafa orðið í bókunum í maí. Margir hópar hafi verið afbókaðir og lítið kom- ið í staðinn. Hann segir aðspurður að áskorunin verði að halda í horfinu. „Ég myndi gera ráð fyrir að júní yrði minni en í fyrra. Ég held að þetta verði varnarbarátta og að það verði einhver samdráttur á árinu,“ segir Steinþór um horfurnar. Samkvæmt tölum Hagstofunnar voru bókaðar gistinætur á Austurlandi í apríl 22% færri en í fyrra. Tölurnar miðast við hótel sem eru opin allt árið. Þær ná því til dæmis ekki til Airbnb- íbúða. Þráinn Lárusson, eigandi Hótel Hallormsstaðar og Hótel Valaskjálfar, segir bókunum hafa fjölgað lítillega milli ára. Ferðaþjónustan sé þó enn smá í sniðum á Austurlandi. „Það þarf svo lítið til að það verði aukning eða samdráttur. Þetta er jafn lélegt og það hefur alltaf verið,“ segir Þráinn og gagnrýnir aðgerðaleysi í markaðssetningu á ferðaþjónustu á landsbyggðinni. Boðaðir skattar höfðu áhrif Stjórnvöld þurfi að leggja miklu meira fé í málaflokkinn, svo dreifa megi ferðamönnum betur. Áform síð- ustu ríkisstjórnar um hækkun virðis- aukaskatts á gistingu hafi dregið úr bókunum hópa í ár. „Nokkuð var um að hópferðir fyrir þetta ár væru teknar úr sölu í fyrra vegna boðaðra skattahækkana. Nú eru þær hins vegar aftur komnar í sölu fyrir næsta ár. Það lítur ágætlega út með bókanir.“ Þráinn segir viðbúið að Heims- meistaramótið í knattspyrnu (HM) í Rússlandi í sumar dragi úr bókunum til Íslands. Reynslan af síðustu mótum, sérstaklega 2006 og 2010, sé að HM hafi marktæk áhrif á ferðalög. Vegna HM kjósi margir að ferðast til Rúss- lands, eða vera heima og fylgjast með mótinu. HM í Brasilíu 2014 hafi þó haft minni áhrif á eftirspurnina. Erna Hauksdóttir, fv. fram- kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónust- unnar, segir vísbendingar um að HM í knattspyrnu hafi áhrif á innlenda eftir- spurn í greininni. „Ég man eftir þessari umræðu. Mig minnir að hótel úti á landi hafi sér- staklega orðið fyrir barðinu á þessu. Þannig að þegar HM var að koma vildu menn vera uppi í sófa. Það býr náttúrlega stór hluti þjóðarinnar á höfuðborgarsvæðinu.“ Óvissan bitnar á fjárfestingu í hótelum  Eigandi Stracta hótels segir dæmi um að hætt hafi verið við áformuð hótel  Óvissa fæli frá er- lenda fjárfesta  Eigandi Hótel Keflavíkur býst við samdrætti í ár  HM í fótbolta gæti haft áhrif Gistinætur á hótelum eftir landshlutum Gistinætur í aprílmánuði 2010-2018 1.000 900 800 700 600 500 400 300 200 100 0 200 150 100 50 0 .000 2016 2017 2018 Höfuðborgar- svæðið Suðurland Suðurnes Norðurland Vesturland og Vestfirðir Austurland ’10 ’11 ’12 ’13 ’14 ’15 ’16 ’17 ’18 Heimild: Hagstofa Íslands Breyting apríl 2017 til apríl 2018 eftir landshlutum Höfuðborgarsvæðið Utan höfuðborgarsvæðisins Breyting frá árinu á undan: +17,3% -0,2% Janúar til apríl 2016-2018 Höfuðborgarsvæðið Suðurland Suðurnes Norðurland Vesturland og Vestfirðir Austurland Breyting frá árinu á undan: +57,7% +3,0% Breyting frá árinu á undan: +89,1% -7,0% Breyting frá árinu á undan: +6,1% +17,2% Breyting frá árinu á undan: +32,9% +6,4% Breyting frá árinu á undan: +8,5% -1,1% .000 -3,8% -12,3% -7,3% -5,9% -4,9% -21,8% Hér eru eingöngu hótel sem opin eru allt árið. Tölur fyrir árið 2018 eru bráðabirgðatölur. 18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 2018 Kringlunni 4c – Sími 568 4900 Buxnadagar 30% afsláttur af öllum buxum fimmtudag til mánudags 30% afsláttur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.