Morgunblaðið - 02.06.2018, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 02.06.2018, Qupperneq 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 2018 SVIÐSLJÓS Sigurður Ægisson Siglufirði Fjölskyldufyrirtækið Whale Watch- ing Hauganes fagnar 25 ára afmæli í dag og af því tilefni er gestum og gangandi boðið þaðan í hvalaskoð- unarferð. Lagt verður frá bryggju kl. 9.30 og komið í land aftur um kl. 12 en opnað verður fyrir veit- ingar kl. 12.30. Hauganes er við Eyjafjörð miðjan, að vestanverðu. „Fyrstu ferðina fórum við árið 1993. Það kom nú í kjölfarið á því að við fórum með norskan kafara út að Hrólfsskeri, í mynni Eyja- fjarðar, og sáum fullt af hrefnu á leiðinni. Og hann fer að spyrja af hverju í ósköpunum við bjóðum ekki upp á hvalaskoðun hérna og þótt mér fyndist ekki merkilegt að sjá hrefnur, þá var það hann sem ýtti þarna við okkur. Ári síðar kemur til okkar hópur sem langaði í sjóferð og þá bjóðum við upp á þennan möguleika og fórum svo nokkrar slíkar ferðir þá um sum- arið og strax árið eftir urðu þær miklu fleiri,“ segir Árni Halldórs- son, einn af aðaleigendum fyrir- tækisins. Hinir eru Halldór, bróðir hans, og Garðar Níelsson, en feður þeirra voru bræður. Gera út tvo eikarbáta Whale Watching Hauganes gerir út tvo íslenska eikarbáta, Níels Jónsson EA-106, sem var smíðaður árið 1974, og Whales EA-200, sem var smíðaður árið 1954. „Við erum komnir með annan eikarbát, áttum Níels Jónsson EA 106 fyrir, eignuðumst hann nýjan, hann var smíðaður á Akureyri og er 17,47 metra langur og 4,3 metra metra breiður, og í fyrra keyptum við annan bát, í þetta sinn úr Garð- inum, aflaskipið Gunnar Há- mundarson GK 357, sem var smíð- aður hjá Skipasmíðastöð Njarð- víkur 1954 og hefur þar smíða- númerið 1, og var búinn að vera í eigu sömu fjölskyldunnar frá upp- hafi og afar vel hirtur alla tíð af þeim sem áttu hann. Eftir að hann kom til Hauganess og hafði undir- gengist nauðsynlegar breytingar var honum gefið nafnið Whales. Hann er 21,5 metra langur og 5,2 metra breiður.“ Níels Jónsson getur tekið 48 far- þega og Whales 72 farþega. Áður en Whales kom til átti fyrirtækið Sandvík EA 200, sem var stálbátur, en hann var svo seldur. Þar til fyrir tveimur árum stund- uðu Árni, Garðar og Halldór fisk- veiðar á veturna á bátum fyrirtæk- isins en voru að sinna farþegum á sumrin og fram á haust. En núna byggja þeir eingöngu á hinu síðar- nefnda. Tímabilið hefur lengst af þeim sökum, er nú frá apríl og fram í nóvember. „Þó við séum elsta starfandi hvalaskoðunarfyrirtækið á Íslandi þá erum við ekki þeir sem byrjuðu fyrstir, því það var eitthvað búið að sigla frá Hornafirði áður, sem við reyndar vissum ekkert af þegar við byrjuðum. Fyrstu árin vorum við ekki með skipulagðar ferðir heldur tókum við bara hópa, vorum ekki með fastar brottfarir, þær komu seinna. En öll árin, að einu undan- skildu, á þessum 25 árum, hefur verið stígandi hjá okkur í farþega- fjölda. Og mesta aukningin hefur verið síðustu árin. Í upphafi var þetta bara höfr- unga- og hrefnuleit, við sáum ekki hnúfubak fyrstu 3, 4, 5 árin, en svo fara þeir að koma einn af öðrum og árið 2011 erum við með hnúfubak í hverri einustu ferð og það er nán- ast búið að vera þannig síðan. Á sama tíma sjáum við töluvert minna af hrefnu, kannski vegna þess að áður vorum við að sigla í 3-4 tíma í leit að hrefnu en núna erum við komnir á hval á skömm- um tíma, á 15-20 mínútum, og er- um því ekki að skanna jafn mikið svæði og áður,“ segir Árni. Sjá hvalina úr landi Í um 70% ferða eru þeir búnir að sjá hvalinn áður en lagt er úr höfn, eru búnir að finna hann úr landi og geta því siglt beint til hans. Auk hnúfubaka, hnýðinga og hrefna sjást hnísur oft, en sjaldnar aðrar tegundir, eins og andarnefjur, lang- reyðar, sandreyðar, steypireyðar og háhyrningar, þótt það komi fyr- ir nánast á hverju sumri. „Frá upphafi hafa ferðirnar verið þannig að þetta hefur verið hvala- skoðun með smá sjóstöng í lokin. En núna erum við farnir að bjóða upp á annars vegar 100% hvala- skoðun, því það er til fólk sem vill ekki sjá fisk veiddan, og hins vegar blandaða ferð, þ.e.a.s. hvalaskoðun með sjóstangaveiði. Fólkið hefur því val áður en lagt er af stað. Ferðirnar eru 2,5 og upp í 3 klukkutíma. Við erum miðfjarðar og erum mest að sækja á það svæði, en það kemur fyrir að við þurfum að fara út að Hrólfsskeri og jafnvel norðar og svo inn fyrir Hjalteyri, en það er ekki oft. Okkur þykir langt að sigla í 30-40 mínútur því við erum orðnir svo góðu vanir. Og við för- um ekki úr höfn ef sjólag er þann- ig að hætta er á að fólk verði sjó- veikt. Annars erum við svo vel staðsettir hér á Hauganesi að út- hafskvikan nær sjaldan hingað inn eftir, nema það sé þeim mun hvassara úti fyrir og standi beint inn fjörðinn. Við förum aldrei út í tvísýnu.“ Árið 2017 fóru um 14.000 gestir út með Whale Watching Hauganes en í þorpinu búa einungis um 110 manns og setur starfsemin því mikinn svip á bæjarlífið yfir sumartímann. Boðið verður upp á léttar veit- ingar í dag eftir ferðir og einnig verður opinn aðgangur að nýju sjó- böðunum í Sandvíkurfjöru. Þá verða björgunarbátar blásnir þar upp kl. 14 og þar geta börn og full- orðnir prófað pottana og tekið smá sjósund í leiðinni. Afmælisveislan er öllum opin. Þykir langt að sigla í hálftíma  Elsta starfandi hvalaskoðunarfyrirtæki landsins er við Eyjafjörð miðjan  Enginn hnúfubakur var til að sýna fyrstu árin  Hvalir sáust í öllum ferðum í fyrra, sem þykir einsdæmi Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Hvalaskoðun Hnúfubakur á sundi skammt undan Hauganesi í Eyjafirði. Um 14 þúsund manns fóru í hvalaskoðunarferðir með Whale Watching Hauganes á síðasta ári og setur starfsemin því mikinn svip á bæjarlífið yfir sumartímann. Í um 70% ferðanna er búið að koma auga á hval áður en lagt er úr höfn. Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Í brúnni Árni Halldórsson, einn af eigendum Whale Watching Hauganes. Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is M.BENZ C 220D AVANTGARDE nýskr. 09/2016, ekinn aðeins 8 Þ.km, dísel (170hö), sjálfskiptur 7 gírar. Verð 5.250.000 kr. Raðnúmer 255217 BMW225XE IPERFORMANCE nýskr. 01/2017, ekinn 18 Þ.km, bensín/rafmagn, sjálfskiptur, fjórhjóladrifinn, mikið af aukabúnaði! Verð aðeins 4.690.000 kr. Raðnúmer 257669 ÓSKUM EFTIR BÍLUMÁ SÖLUSKRÁ - LAUS STÆÐI BMW520D XDRIVE nýskr. 09/2016, ekinn 12 Þ.km, dísel (191 hö), sjálfskiptur, mjög vel búinn bíll! Verð 6.490.000. Raðnúmer 256774 TOYOTA AURIS LIVE nýskr. 04/2015, ekinn 91 Þ.km, bensín, sjálfskiptur. Verð 1.880.000. TILBOÐ 1.490.000 kr. Raðnúmer 257963 TOYOTA AURIS LIVE nýskr. 04/2015, ekinn 83 Þ.km, bensín, sjálfskiptur. Verð 1.880.000. TILBOÐ 1.490.000 kr. Raðnúmer 257964 Bílafjármögnun Landsbankans

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.