Morgunblaðið - 02.06.2018, Side 22
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Átta manna íslensk sendinefnd, sem
samanstendur af fulltrúum frá Opn-
um kerfum, Landsvirkjun, Farice
og Verne Global, mun kynna gagna-
versiðnaðinn á Íslandi á einni
stærstu ofurtölvuráðstefnu í heim-
inum, í Frankfurt í Þýskalandi í lok
þessa mánaðar, ISC2018. Þetta er í
fyrsta skipti sem jafn margir aðilar
úr gagnaversgeiranum hér á landi
leiða saman hesta sína með þessum
hætti.
Ráðstefnuna sækja 3.000 aðilar
úr háhraða-ofurtölvugeiranum víðs-
vegar að úr heiminum. Langtíma-
markmið Opinna kerfa og sendi-
nefndarinnar er að gera Ísland að
gagnaverslandi númer eitt í heim-
inum.
Hyundai og Airbus mæta
Anastasia Alexandersdóttir, verk-
efnastjóri verkefnisins, segir að hún
hafi upphaflega fengið það verkefni
að finna þann vettvang í heiminum
þar sem hægt væri að ná hámarks
athygli leiðandi
aðila í gagnavers-
iðnaðinum. ISC
ráðstefnan í
Þýskalandi hafi
verið svarið.
„Þarna verður
fólk frá Kína,
Suður-Kóreu,
Japan, Banda-
ríkjunum og Evr-
ópu m.a., og
fyrirtæki og
stofnanir eins og Hyundai, Daimler,
Volkswagen, Cern Institute, Airbus
og fleiri. Hugmyndin okkar var sú
að við myndum fá aukinn slagkraft,
og ná meiri árangri, með því fara
saman sem teymi á svona ráðstefnu,
því við höfum sameiginlegan hag af
því að vinna íslenska gagnaversum-
hverfinu brautargengi á alþjóða-
mörkuðum,“ segir Anastasia í sam-
tali við Morgunblaðið.
Hún segir að hópurinn sé frábær,
og markmiðið sé að senda skýr
skilaboð. „Við erum með 40 fer-
metra sýningarsvæði og erum með
gullaðild, sem þýðir að við verðum
enn meira áberandi en ella.“
Aðeins örfá fyrirtæki eru með
gullaðild að ráðstefnunni, en ís-
lenska sendinefndin verður þar við
hlið aðila eins og risafyrirtækjanna
IBM og Dell. „Þetta er mjög gott
tækifæri fyrir okkur, og veitir okk-
ur mikinn sýnileika.“
Spurð um hvaða væntingar hún
geri um árangur, segist Anastasia
vænta mikils áhuga frá stórnotend-
um í gagnaversvinnslu, eins og bíla-
iðnaðinum, olíu og gasiðnaðinum og
geimferða- og varnarmálaiðnaðin-
um. Áhersla verði lögð á uppsetn-
ingu og rekstur hermilíkana fyrir
viðskiptavini og orkufrekari gagna-
versvinnslu. „Ég vil ná að ræða við
tilvonandi viðskiptavini um hvað er
hægt að gera á Íslandi sem ekki er
hægt annars staðar. Einnig að ná að
benda mönnum á orkusparnaðinn
sem við bjóðum upp á. Rafmagns-
skortur og -kostnaður er gríðarlega
stórt vandamál í Evrópu í dag, og
rafmagn er hreinlega að verða upp-
urið í Þýskalandi, Hollandi og
Frakklandi til dæmis.“
82% ódýrara rafmagn
Hún segir að samkvæmt rann-
sóknum sem hún hefur gert fái
Þjóðverjar rafmagnið til gagnavers-
vinnslu hér á landi 82% ódýrara en í
Þýskalandi, og Bretar fái það 70%
ódýrara en í sínu heimalandi.
Varðandi framboð í gagnaverum
hér á landi til að mæta mögulegri
aukinni eftirspurn, segir Anastasia
það nægt. Bæði sé laust pláss í
gagnaverum eins og hjá Verne og
Advania, en einnig verði nýja há-
tæknigagnaverið, sem Opin kerfi
áttu frumkvæði að, og mun rísa á
Korputorgi, kynnt sérstaklega á
ráðstefnunni. „Almennt þá vonumst
við til að afla nýrra viðskiptavina frá
Þýskalandi, Bretlandi og Hollandi.“
3.000 kynnast gagna-
verslandinu Íslandi
Tölvur Væntingar eru um að afla nýrra viðskiptavina á ráðstefnunni.
Sameiginlegt íslenskt teymi á risaráðstefnu í Frankfurt
Anastasia
Alexandersdóttir
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 2018
LAUGAVEGI 24 - 101 REYKJAVÍK
SÍMI: 552 0800
SKIPAGÖTU 7 - 600 AKUREYRI
SÍMI: 462 4646
GENUINE SINCE 1937
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
Komið og skoðið úrvalið
Opið virka daga
11-18
laugardaga
11-15
Klassísk gæða húsgögn
á góðu verði
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
STUTT
Hagstofa Íslands spáir 2,9% hagvexti í
ár og 2,7% á næsta ári í nýrri þjóð-
hagsspá sem gefin var út í gær. Þetta
er nokkru minni hagvöxtur en spáð var
í peningamálaskýrslu Seðlabankans
sem út kom fyrir hálfum mánuði, þar
sem gert var ráð fyrir 3,3% hagvexti í
ár og 3,0% á næsta ári. Landsbankinn
birti í fyrradag spá um 4,1% hagvöxt í
ár en hins vegar spáði Íslandsbanki
2,6% hagvexti í nýlegri þjóðhagsspá.
Hagstofan gerir ráð fyrir að einka-
neysla aukist um 5,3% í ár, samneysla
um 2,5% og fjárfesting um 3,2%. Telur
Hagstofan að aukning einkaneyslu
verði kröftug næstu tvö árin en það
dragi svo úr henni þegar hægi á um-
svifum í hagkerfinu. Horfur séu á tölu-
verðum vexti í íbúðafjárfestingum og
opinberum fjárfestingum á næstunni
en á móti muni vega samdráttur fjár-
festingar tengdur stóriðju.
Í þjóðhagsspánni eru horfur á að
utanríkisviðskipti dragi úr hagvexti
næstu þrjú ár líkt og þau hafa gert á
síðustu árum. Gert er ráð fyrir minni
útflutningi í ár en í síðustu spá Hag-
stofunnar sem rekja má til meiri óvissu
um horfur í ferðaþjónustu. Á móti
minni vexti í ferðaþjónustu á næstu
árum vegur meiri aukning útfluttra
sjávarafurða en áður var gert ráð fyrir.
Á árunum 2020 til 2023 spáir Hag-
stofan hagvexti á bilinu 2,5-2,7%. Spáin
byggist á því að aukning einkaneyslu
verði á bilinu 2,5-3,1%, vöxtur sam-
neyslu verði rúmlega 1,8% og aukning
fjárfestingar verði að meðaltali um
2,8% á tímabilinu.
Gert er ráð fyrir að verðbólga verði
um 2,7% að meðaltali í ár en 2,9% á
næsta ári. Eftir því sem spenna minnk-
ar í hagkerfinu gerir Hagstofan ráð
fyrir að verðbólga hjaðni og verði í
kringum 2,5% undir lok spátímans.
Morgunblaðið/Ómar
Kranar Hagstofan spáir hagvexti á
bilinu 2,5-2,7% til ársins 2023.
Horfur á hægari
hagvexti næstu ár
Hagstofan spáir
2,9% hagvexti í ár
og 2,7% árið 2019
2. júní 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 104.03 104.53 104.28
Sterlingspund 138.6 139.28 138.94
Kanadadalur 80.25 80.73 80.49
Dönsk króna 16.355 16.451 16.403
Norsk króna 12.767 12.843 12.805
Sænsk króna 11.838 11.908 11.873
Svissn. franki 105.49 106.07 105.78
Japanskt jen 0.9517 0.9573 0.9545
SDR 147.36 148.24 147.8
Evra 121.76 122.44 122.1
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 150.6353
Hrávöruverð
Gull 1303.5 ($/únsa)
Ál 2264.5 ($/tonn) LME
Hráolía 77.37 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Heildarviðskipti
með hlutabréf á
Kauphöll Íslands í
maí námu 42,3
milljörðum króna,
eða 2,1 milljarði
króna á dag. Þetta
er 39% lækkun
miðað við sama
mánuð í fyrra.
Úrvalsvísitalan
lækkaði um 2,5% á
milli apríl og maí.
Mest voru viðskipti með hlutabréf í
Marel, 8,6 milljarðar króna, og
Icelandair Group, 4,4 milljarðar.
Á Aðalmarkaði Kauphallarinnar var
Arion banki með mestu hlutdeildina,
26,5% (27,5% á árinu), Landsbankinn
með 21,7% (19,8% á árinu), og Íslands-
banki með 20,0% (13,4% á árinu).
Í lok maí nam heildarmarkaðsvirði
skráðra félaga 870 milljörðum króna.
Nærri 40% minni hluta-
bréfaviðskipti í maí
Hlutabréf Minni
velta var í maí.
● Viðtökur við
þjónustu hljóð-
bókafyrirtækisins
Storytel hér á
landi hafa farið
fram úr björtustu
vonum aðstand-
enda, að sögn
Stefáns Hjörleifs-
sonar fram-
kvæmdastjóra.
Storytel hóf að
bjóða upp á þjónustu sína hér á landi
í febrúar síðastliðnum og strax í apríl
voru áskrifendur orðnir 3.000 talsins.
Stefán segir að nú séu þeir orðnir
5.000. „Við bætum við okkur jafnt og
þétt. Það er mikil ánægja meðal við-
skiptavina með appið, þjónustuna og
bækurnar sem eru í boði. Ný íslensk
bók kemur út á hverjum virkum degi,
en við erum búin að framleiða 70
titla frá opnun,“ segir Stefán.
5.000 áskrifendur hjá
Storytel á Íslandi
Stefán
Hjörleifsson
Boðið verður upp á sérstakt HM
fótboltapartí úti á ráðstefnunni
í Frankfurt hinn 26. júní nk.,
sama dag og leikur Íslands og
Króatíu fer fram. „Við viljum
blanda saman skilaboðum okk-
ar varðandi gagnaversiðnaðinn
og landkynningu með áherslu á
fótboltann. Við munum klæðast
landsliðstreyjum alla ráðstefn-
una til dæmis,“ segir Anastasia,
og segir marga hafa sýnt áhuga
á að mæta.
Í landsliðs-
treyjunum
BJÓÐA Í FÓTBOLTAPARTÍ
Í FRANKFURT VEGNA HM