Morgunblaðið - 02.06.2018, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 2018
VIÐBÓTARHÚSNÆÐISLÁN
Kynntu þér tækifærin á framtidin.is
LÁTUM DÆMIÐ
GANGA UPP
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
Verndartollar Donalds Trumps
Bandaríkjaforseta á stál og ál frá
Evrópusambandinu (ESB) eru
komnir í gildi en álagning þeirra
hefur legið í loftinu í nokkra mán-
uði. Tollarnir eru hluti af kosninga-
loforði sem Trump gaf bandarískum
stáliðnaðarmönnum og ætlað er að
vernda innlendan iðnað. Þrátt fyrir
það eru tollarnir bæði umdeildir þar
vestanhafs sem og innan ESB, en
Bretar, Þjóðverjar og Frakkar hafa
lýst yfir mikilli óánægju og áhyggj-
um vegna þeirra.
Gareth Stace, forstjóri stálfyrir-
tækisins UK Steel, sagði þetta vera
verstu mögulegu stöðuna fyrir
breskan stáliðnað og bendir á að
andvirði 360 milljóna punda af stáli
sé flutt frá Bretlandi til Bandaríkj-
anna á hverju ári. „Skaðinn verður
ekki einungis í Bretlandi heldur
mun þetta líka valda tjóni í Banda-
ríkjunum,“ sagði Gareth.
Viðbrögð Evrópusambandsins
Á vef Reuters kemur fram að
Evrópusambandið standi nú frammi
fyrir tveimur spurningum: Af
hversu mikilli
hörku eigi að
svara þessum að-
gerðum og hvort
ESB eigi að taka
þátt í samninga-
umleitunum við
bandarísk stjórn-
völd. Þá er því
lýst hvernig
Þjóðverjar séu
hræddari en aðr-
ir við viðskiptastríð á milli ESB og
Bandaríkjanna, en Þýskaland er
langstærsti útflutningsaðili ESB til
Bandaríkjanna. Aftur á móti eru
Frakkar staðráðnir í að láta ekki
undan „yfirgangi Bandaríkja-
manna“.
Óánægja einnig innanlands
Tollarnir hafa einnig valdið áföll-
um innan Bandaríkjanna og benda
margir framleiðendur þar ytra á að
álagning tollanna muni hafa gríðar-
lega slæm áhrif á þá sem hafa
keypt evrópskt stál fyrir fram-
leiðslu sína.
Þá hafa margir félagar Donalds
Trumps úr Repúblikanaflokknum
lýst yfir óánægju með aðgerðir for-
setans.
Tollar Trumps
sagðir skaðlegir
Óánægja beggja vegna hafsins
Donald
Trump
Múslimar um allan heim halda nú hátíðlegan hinn heil-
aga mánuð ramadan með því að neita sér um fæði, reyk-
ingar og kynlíf frá sólarupprás til sólarlags. Trúa þeir að
þetta hreinsi sálina og styrki andleg tengsl þeirra við hið
almáttuga. Ramadan er haldinn tólfta hvern tunglmánuð
og færist því framar með hverju ári sem líður. Í ár hófst
ramadan 17. maí og stendur til 16. júní.
Meðfylgjandi mynd var tekin í Mazar-i-Sharif í Afgan-
istan og sýnir konu sitjandi á hækjum sér við húsvegg í
von um að fá matarbita frá vegfarendum.
AFP
Beðið eftir matargjöf á ramadan
Múslimar halda nú hátíðlegan sinn heilagasta mánuð
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Innan Bandaríkjahers er til skoðunar
að setja upp öflugt eldflaugavarnar-
kerfi innan landamæra Þýskalands,
en tilgangur þess er að styrkja varnir
Evrópu. Hefur fréttastofa Reuters
þetta eftir tveimur heimildarmönnum
innan Bandaríkjahers. Verði af upp-
setningu kerfisins mun það vafalaust
valda miklum titringi meðal ráða-
manna í Kreml.
Er um að ræða svonefnt THAAD-
háloftavarnarkerfi sem grandað get-
ur kjarnaflaugum í mikilli hæð. Hafa
Bandaríkjamenn meðal annars sett
upp THAAD-kerfi á eyjunni Gvam í
Kyrrahafi, Havaí og Suður-Kóreu
vegna þeirrar miklu spennu sem ríkt
hefur á Kóreuskaga að undanförnu.
Yfirstjórn bandaríska heraflans í
Evrópu hefur lengi talað fyrir upp-
setningu THAAD-gagnflauga í
álfunni. En nú þegar Donald Trump
Bandaríkjaforseti hefur dregið land
sitt út úr kjarnorkusamningnum við
klerkastjórnina í Íran segja sérfræð-
ingar í öryggis- og varnarmálum þörf
á gagnflaugakerfi í Evrópu.
Íranar hafa þróað meðaldrægar
eldflaugar, svonefndar Shahab-3 og
Sejil, sem draga um 2.000 km og geta
borið kjarnaodda. Með flaugunum
væri hægt að gera árás á skotmörk í
suðurhluta Evrópu. Þá hafa Íranar
sagst munu auka drægni flauga sinna,
verði þeim ógnað en drægnin er ein-
ungis takmörkuð af regluverki – ekki
skorti á tæknigetu.
Vaxandi þörf á vörnum
Yfirmaður í þýska hernum segir
þörf á bættu radarkerfi í Evrópu svo
hægt sé að fylgjast með hugsanlegum
ferðum óvinarins og virkja eldflauga-
varnir í tíma gerist þess þörf. Varnar-
málaráðuneyti Bandaríkjanna, Penta-
gon, segir engar endanlegar
ákvarðanir hafa verið teknar.
„Sem stendur er ekki búið að taka
neinar ákvarðanir um uppsetningu
THAAD-kerfisins í Þýskalandi. „Við
ræðum ekki mögulegar aðgerðir
hersins fram í tímann því við viljum
ekki auglýsa vilja okkar fyrir hugsan-
legum andstæðingum. Þýskaland er í
hópi okkar nánustu vina og sterkustu
bandamanna,“ hefur Reuters eftir
talsmanni ráðuneytisins.
Þörfin fyrir THAAD-kerfi í Evrópu
hefur einnig aukist að undanförnu í
kjölfar versnandi samskipta vestur-
velda við Rússland. Verði kerfið sett
upp í Þýskalandi er talið líklegt að það
verði á Ramstein-herflugvellinum.
„Þetta yrðu skýr pólitísk skilaboð til
Evrópubúa um að við erum staðráðn-
ir í að vernda okkar bandamenn,“ hef-
ur Reuters eftir bandaríska hershöfð-
ingjanum Curtis Scaparrotti, yfir-
manni Evrópuherstjórnar NATO.
Háloftavarnarkerfi fari til Þýskalands
Bandaríkjaher sagður skoða uppsetningu á THAAD-gagnflaugum á Ramstein-herflugvelli Slíkar
varnir má m.a. finna á Kóreuskaga, Gvam og Havaí Versnandi samskipti við Rússland og Íran
AFP
Varnir Gagnflaugar THAAD geta grandað kjarnavopnum í mikilli hæð.