Morgunblaðið - 02.06.2018, Síða 27

Morgunblaðið - 02.06.2018, Síða 27
27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 2018 Hendur til himins Í Nauthólsvík er aðstaða til hugleiðslu með ágætum. Miðlungi hlýr sjórinn skerpir á upplifuninni. Eggert Árið 1992 var EES- samningurinn undirrit- aður. Frá upphafi hafa skiptar skoðanir verið um það hvort vald- framsal sem í samn- ingnum felst samræm- ist stjórnarskránni. Á undanförnum árum hefur undirstofnunum Evrópusambandsins fjölgað. Ýmis dæmi má finna úr nýlegri löggjöf ESB um að þessum stofnunum sé í auknum mæli falið beint eftirlit innan aðildarríkja ESB og að þeim sé þá jafnvel veitt vald til að taka ákvarð- anir sem binda stjórnvöld og einka- aðila í aðildarríkjunum. Í þessu felst frekara valdframsal frá aðildarríkj- unum til ESB. Þessi þróun felur tví- mælalaust í sér áskoranir fyrir EES-samninginn, enda eru íslensk stjórnvöld bundin af stjórnarskránni þegar þau setjast að samningaborð- inu í sameiginlegu EES-nefndinni með hinum EFTA-ríkjunum og ESB. Hinn 29. maí sl. mælti dómsmála- ráðherra fyrir frumvarpi sem ætlað er að innleiða persónuverndarreglu- gerð ESB í íslenskan rétt. Þar kemur fram að ekki verði stuðst við hið svonefnda tveggja stoða kerfi EES- samningsins, en í því kerfi felst meðal ann- ars að EFTA-ríkin komu á fót eftirlits- stofnun og dómstól þar sem þau eiga sjálf ekki aðild að stofnunum ESB eða dómstólakerfi þess. Ætlunin með frumvarpinu virðist því vera sú að valdheimildir verði fram- seldar til stofnunar ESB, en að fulltrúum íslenska ríkisins verði ekki veittur atkvæðisréttur innan stofn- unarinnar, ólíkt fulltrúum ríkja ESB. Íslenska ríkið verður þar með ekki fullgildur aðili þeirrar stofn- unar. Þessari stofnun ESB verður í einhverjum tilvikum heimilað að gefa Persónuvernd bindandi fyrir- mæli. Í þessu felst fyrirætlun um framsal framkvæmdavalds. Ákvarðanir stofnunar ESB virðist einungis mega bera undir Evrópu- dómstólinn, en íslenska ríkið á ekki aðild að þeim dómstól. Þá mun ætl- unin með reglugerð ESB jafnframt vera sú að binda hendur íslenskra dómstóla þegar kemur að mati á lög- mæti þeirra ákvarðana Persónu- verndar sem tengjast ákvörðunum stofnunar ESB, sbr. 143. mgr. for- málsorða reglugerðarinnar. Ef þetta er rétt þá felst í þessu fyrirætlun um framsal dómsvalds. Allt vekur þetta spurningar sem tengjast stjórnarskránni. Hvað fram- sal framkvæmdavalds varðar þá er komist að þeirri niðurstöðu í frum- varpinu að framsal valds til stofn- unar ESB sé lítils háttar, það sé að- eins á sviði framkvæmdavalds í þröngt afmörkuðum tilvikum og bindi aðeins stjórnvöld en ekki ein- staklinga eða fyrirtæki. Þrátt fyrir þetta er þó berum orðum viðurkennt í frumvarpinu að sú ákvörðun sem Persónuvernd tekur í framhaldi af ákvörðunum stofnunar ESB og byggist á niðurstöðu stofnunarinnar kunni vissulega að hafa áhrif á ein- staklinga eða lögaðila. Þannig virðist við fyrstu sýn að fyrirhugað framsal framkvæmdavalds geti snert ein- staklinga og lögaðila á Íslandi. Ekki er að finna umfjöllun í frum- varpinu um ástæðu þess að íslensk stjórnvöld féllust á það í sameigin- legu EES-nefndinni að vikið yrði frá tveggja stoða kerfinu þannig að stofnun ESB öðlaðist vald til að veita íslenskri ríkisstofnun bindandi fyrir- mæli. Í þessu samhengi má benda á að það virðist hafa verið stefna ís- lenskra stjórnvalda um árabil að halda fast við tveggja stoða kerfið. Í frumvarpinu er reyndar gefið í skyn að sú leið sem farin var að þessu leyti hafi að einhverju leyti verið í and- stöðu við ráðgjöf Stefáns Más Stef- ánssonar lagaprófessors. Nánar til- tekið kemur fram í frumvarpinu að Stefán Már hafi bent á að lausn geti falist í því að Eftirlitsstofnun EFTA verði falið að taka ákvarðanir gagn- vart EFTA-ríkjunum í stað stofn- unar ESB. Hvað framsal dómsvalds varðar þá segir í frumvarpinu að ekki sé hægt að girða fyrir að einstaklingur leiti úrlausnar íslenskra dómstóla um gildi stjórnvaldsákvörðunar sem Persónuvernd taki, enda sé sá réttur stjórnarskrárvarinn, sbr. 60. og 70. gr. stjórnarskrárinnar. Taka má undir þennan skilning frumvarps- höfunda, en í þessum orðum virðist þá jafnframt felast sá skilningur þeirra að 143. mgr. formálsorða per- sónuverndarreglugerðar ESB, sem virðist ætlað að setja íslenskum dómstólum ákveðnar skorður í mál- um sem tengjast álitaefnum um lög- mæti tiltekinna ákvarðana Persónu- verndar, þar sem undirliggjandi er ákvörðun stofnunar ESB, fái ekki að öllu leyti staðist ákvæði stjórnar- skrárinnar. Þær reglur sem felast í reglugerð ESB um persónuvernd eru til þess fallnar að hafa víðtæk áhrif á ís- lenskt samfélag. Alþingi gefst nú tækifæri til að ræða hið nýja frum- varp. Vonandi gefst nægur tími til að kanna hvort gætt hafi verið fyllilega að ákvæðum stjórnarskrárinnar í samningaviðræðum ríkisins við við- semjendur þess á vettvangi sam- eiginlegu EES-nefndarinnar. Eftir Arnald Hjartarson » Þá mun ætlunin með reglugerð ESB jafn- framt vera sú að binda hendur íslenskra dóm- stóla þegar kemur að mati á lögmæti þeirra ákvarðana Persónu- verndar sem tengjast ákvörðunum stofnunar ESB. Ef þetta er rétt þá felst í þessu fyrirætlun um framsal dómsvalds. Arnaldur Hjartarson Höfundur er aðjunkt við lagadeild Háskóla Íslands. Stjórnarskráin, EES-samningurinn og reglur um persónuvernd „Ef Guð er til þá ætti hann að hjálpa manni, nú þarf maður á því að halda,“ var haft eftir sjó- manninum Guð- laugi Friðþórs- syni í Morgun- blaðinu í mars 1984. Hann hafði á ótrúlegan hátt komist lífs af þeg- ar Hellisey VE fórst undan Heimaey, synt í land og geng- ið berfættur til byggða yfir hraun og mela, eftir sex tíma volk í köldum sjónum. Í Morgunblaðsviðtalinu sagðist Guðlaugur áður hafa efast um tilvist Guðs og því hafi verið undarlegt að biðja um hans hjálp, sitjandi með skips- félögum sínum á kili báts sem maraði í kafi og fara svo með Faðir vorið á sundinu áleiðis í land. Þótt björgunarafrek Guð- laugs sé einstætt er hann langt í frá eini sjómaðurinn sem hefur sótt styrk í æðri mátt á ögurstundu. Sjó- mennska og trú hafa fléttast saman frá örófi alda, fjöl- skyldur sjófarenda hafa beðið fyrir þeim og sjómenn stund- um lagt örlög sín í hendur al- mættisins. Bænir á rauna- stundu hafa auðveldað fólki að takast á við hættulegar að- stæður og ástvinum að takast á við missi. Sjómannadagurinn er há- tíðisdagur allra sjómanna. Árið 1938 var hann haldinn hátíð- legur í fyrsta sinn á tveimur stöðum á landinu, á Ísafirði og í Reykjavík. Markmiðið var að vekja þjóðina til meðvitundar um starfssvið sjómannastéttar- innar, lífskjör og gildi í þjóð- félaginu. Tilgangurinn var einnig að sameina sjómenn, heiðra minningu þeirra sem Ægir hafði hrifsað til sín og vekja athygli á erfiðum starfs- skilyrðum á sjó. Barátta sjó- manna fyrir auknu öryggi á sjó hefur skilað gríðarlegum árangri og við- horf til öryggis- mála hafa gjör- breyst. Enginn sættir sig lengur við mannskaða á sjó, sem áður þótti óumflýjan- legur hluti lífs- baráttunnar. Sjómanna- dagurinn er ennþá einn stærsti dagur ársins í mörgum byggðarlögum. Nálægðin við sjóinn hefur mótað mannlífið kynslóð eftir kynslóð. Vitundin um hafið sem gjöfulan vin og ægilegan ógnvald í senn leiðir af sér áræði samfara lotningu. Í ljóði eftir Jónas Guð- mundsson stýrimann segir að Guð hafi haft mikið að gera á skútuöldinni, þegar margir fiskimenn áttu ekki aftur- kvæmt úr róðri. Síðar hafi Guð að mestu hætt til sjós og byrj- að að vinna í landi. En Guðs er enn þörf á sjó og í hjarta ást- vina sem bíða heima eftir að sjómaður komi í land, því þrátt fyrir miklar framfarir býr haf- ið enn yfir hundrað hættum. Í bænum sjómanna og aðstand- enda þeirra koma saman trú, von og kærleikur – þrjár megindyggðir kristninnar – sem alltaf eiga erindi og munu óma í sjómannamessum helgarinnar víða um land. Ég óska íslenskum sjómönn- um, ástvinum þeirra og lands- mönnum öllum til hamingju með sjómannadaginn. Eftir Agnesi M. Sigurðardóttur »Nálægðin við sjó- inn hefur mótað mannlífið kynslóð eftir kynslóð. Vit- undin um hafið sem gjöfulan vin og ægi- legan ógnvald í senn leiðir af sér áræði samfara lotningu. Agnes M. Sigurðardóttir Höfundur er biskup Íslands. Ef Guð er til

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.