Morgunblaðið - 02.06.2018, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 02.06.2018, Blaðsíða 36
36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 2018 ✝ Sonja Guð-laugsdóttir fæddist á Siglufirði 12. júní 1936. Hún lést á Borgarspít- alanum í Fossvogi 17. maí 2018. Foreldrar henn- ar voru Þóra María Amelía Björnsdótt- ir, f. á Oddeyri, Akureyrarsókn, Eyjafirði 4. nóvem- ber 1897, d. 27. mars 1976, og Guðlaugur Gottskálksson, f. í Nesi í Flókadal í Skagafirði 1. október 1900, d. 6. febrúar 1977. Af tíu börnum foreldra sinna var Sonja sú níunda í röðinni. Fimm systkina hennar létust fyrir tveggja ára aldur en þau voru Marzelia Birna, f. 1923, d. 1924, Marzelia Birna, f. 1925, d. 1927, Björn Stefán, f. 1927, d. þeirra er Guðlaugur Þór, f. 19. desember 1967, giftur Ágústu Johnson, f. 2. desember 1963. Börn þeirra eru tvíburarnir Sonja Dís Johnson Guðlaugs- dóttir og Þórður Ársæll John- son Guðlaugsson, f. 2002. Ágústa á tvö börn úr fyrra hjónabandi, þau Önnu Ýri John- son Hrafnsdóttur, f. 1991, og Rafn Franklín Johnson Hrafns- son, f. 1994. Sonja ólst upp á Siglufirði og lauk stúdentsprófi frá Verzlun- arskóla Íslands. Að loknu námi vann hún á skrifstofu Kaup- félags Siglfirðinga og í iðn- aðardeild Sambands íslenskra samvinnufélaga (SÍS). Hún flutti í Borgarnes árið 1965 þar sem hún vann meðal annars á skrif- stofu Kaupfélags Borgfirðinga, hreppsskrifstofunni og sýslu- skrifstofunni. Hinn 23. febrúar 1988 stofnaði hún bókhalds- og tölvuþjónustuna í Borgarnesi og vann við það á meðan kraftar leyfðu. Útför Sonju fer fram í dag, 2. júní 2018, frá Borgarneskirkju klukkan 11. 1927, Gottfreða Sólveig, f. 1930, d. 1930, og Þóra Haf- stein, f. 1933, d. 1934. Þau systkina hennar sem náðu fullorðinsaldri eru Regína, f. 1928, en eiginmaður hennar var Guðmundur Árnason, f. 1929, d. 2014, Helena, f. 1932, d. 2012, en eiginmaður hennar var Ronald Whitaker, f. 1933, d. 2016, Birg- ir, f. 1941, d. 2007, en eftirlif- andi eiginkona hans er Erla Svanbergsdóttir, f. 1944, og Birgitta Guðlaugsdóttir, f. 1945, en eiginmaður hennar er Magn- ús Ingjaldsson, f. 1942. Eftirlifandi eiginmaður Sonju er Þórður Sigurðsson, f. á Siglu- firði 16. október 1936. Sonur Elskuleg móðir mín er fallin frá. Söknuður og þakklæti er mér efst í huga þegar ég minnist hennar. Mamma var kletturinn í lífi mínu og fyrirmynd í einu og öllu. Hún var alltaf til staðar, ást hennar og umhyggja átti sér eng- in takmörk. Ég á einstaklega góðar æsku- minningar, það var gæfa að búa við frelsi til athafna, frelsi til að reka sig á, gera mistök – þrosk- ast. Ég skildi það eflaust ekki þá en þetta frelsi var aðeins mögu- legt í skjóli mömmu og pabba. Mamma studdi mig í blíðu og stríðu, hún hvatti mig til að vera sjálfstæður. Hún kenndi mér þrautseigju, að gefast aldrei upp. Æskuárin eru endalaus upp- spretta jákvæðra minninga og þar eiga mamma og pabbi stærst- an hlut að máli. Mamma og pabbi hvöttu mig áfram í öllu því sem tók mér fyrir hendur með æði misjöfnum ár- angri, hvort sem um var að ræða námið, skákina, íþróttirnar, tón- list, dans eða önnur viðfangsefni þar sem ég átti jafnvel enn minna erindi. Þau vildu að ég reyndi að sigrast á erfiðleikum en ekki að gera bara það sem lá beinast við. Eftir að ég flutti að heiman héldu þau áfram að styðja mig í blíðu og stríðu. Hvatning mömmu og að- hald var mér styrkur allt til henn- ar síðasta dags. Mamma var mjög pólitísk og lá ekki á skoðunum sínum. Hún var sjálfstæðismaður af gamla skól- anum, þoldi illa hroka og yfirlæti en vildi að stjórnmálamenn hugs- uðu fyrst og fremst um þá sem minna mega sín. En þrátt fyrir afdráttarlausar skoðanir gerði hún aldrei greinarmun á fólki eft- ir stjórnmálaskoðunum. Hún sá gott í öllum – eiginleiki sem ég dáðist alltaf að og hef reynt eftir fremsta megni að tileinka mér. Án þess að hún hafi sjálf haft um það mörg orð, þá hafði mamma í heiðri kristin gildi, eink- um náungakærleikann. Ég gleymi því ekki þegar hún svaraði umkvörtunum mínum um hrekkjusvínin með þeim orðum að ég þyrfti að vera góður við þau. Mamma var einstaklega góð við börn og mikill dýravinur, hvort tveggja eiginleikar sem ég lærði af henni að lýstu vel innri manni. Mamma tilheyrði þeirri kyn- slóð sem vann störf sín af dugn- aði, heiðarleika og fórnfýsi. Mamma var sterk kona, vann það sem þá var nefnt karlastarf, og hún var mér slík fyrirmynd að ranghugmyndinni um að konur væru ekki jafnokar karla laust aldrei niður í kollinn á mér, þótt slík viðhorf hefðu verið nokkuð al- menn á þeim tíma. Við mamma vorum alla tíð ná- in. Fram á síðasta dag leitaði ég til hennar, í skjólið sem ég alltaf átti hjá henni. Hún sagði mér allt- af til syndanna ef henni þótti ástæða til og brýndi mig til góðra verka. Ég fann mjög sterka þörf til að fara til hennar á mæðradag- inn síðasta og við áttum góða stund saman. Hún kvaddi skjótt, aðeins örfáum dögum síðar. Þótt þessi sé lífsins gangur þá er missirinn mikill, ekki síst fyrir pabba. Þau voru alla tíð afskap- lega samhent og hann sér nú á eftir sínum besta vini og lífsföru- naut. Eftir standa minningarnar, fal- legar og ljúfar, um yndislega konu, móður og ömmu. Fyrir allt sem mamma var mér, allt sem hún kenndi mér og skjólið sem ég alltaf átti hjá henni, fæ ég aldrei fullþakkað. Guðlaugur Þór. Elskuleg tengdamóðir mín er fallin frá, 81 árs að aldri. Hún hafði átt við veikindi að stríða undanfarna mánuði og lést á Landspítalanum eftir stutta legu. Það var mín gæfa að kynnast Sonju fyrir um 20 árum þegar við Guðlaugur Þór, einkasonur henn- ar, fórum að rugla saman reyt- um. Lánsamari hefði ég ekki get- að verið, að eignast þessa traustu og sérlega indælu tengdamóður. Tengdamóðir mín var gædd sterkum persónuleika. Hún var ákveðin, réttsýn, skarpgreind og fylgin sér. Hún var á undan sinni samtíð á margan hátt. Sem ung kona var hún eftirsótt á vinnu- markaði enda skarpgreind, harð- dugleg og vinnusöm. Hún stofn- aði síðar sitt eigið bókhalds- fyrirtæki og starfaði við það fram á síðasta dag. Traust, hlýleiki og elskuleg- heit voru lýsandi fyrir Sonju, hún var einstaklega barngóð og dýra- vinur með eindæmum. Hjálpsemi og örlæti voru henni í blóð borin og mátti hún ekkert aumt sjá. Hlutina gerði hún gjarnan af miklum myndarbrag og ömmu- hlutverkið tók hún heldur betur með trompi. Þegar fyrstu og einu barnabörnin, tvíburarnir Sonja og Þórður, komu í heiminn var hún ekki lengi að búa upp her- bergi á Böðvarsgötunni til að geta tekið á móti þeim í gistingu með allt það sem þurfti til að gera dvölina þar sem þægilegasta og ánægjulegasta. Þær urðu ótelj- andi heimsóknirnar í friðsældina til ömmu og afa í Borgó og margt var brallað. Sú samvera hefur haft ómetanlegt gildi fyrir börnin og óhætt að segja að amman hafi einnig notið hverrar mínútu. Sonja hafði einstaka hæfileika til að kenna, fræða og vekja áhuga tvíburanna á öllu mögu- legu. Með aðdáunarverðri þolin- mæði og natni kenndi Sonja þeim allt milli himins og jarðar. Hvort sem það var stafrófið, að raða í uppþvottavélina, baka piparkök- ur, púsla eða gróðursetja í garð- inum; hún var óþreytandi að leið- beina, segja sögur, sýna og fræða þau um lífið, landið, menningu og siði, hvetja þau áfram og hrósa þeim. Árin með ömmu og afa verða þeim ómetanlegt veganesti út í lífið. Með miklu þakklæti og trega kveð ég elsku tengdamóður mína. Blessuð sé minning Sonju Guðlaugsdóttur. Ágústa Johnson. Hún amma var ótrúleg kona. Við eigum óteljandi góðar minn- ingar um hana. Hún kenndi okkur svo margt þegar við vorum lítil, að lesa, skrifa, púsla, sauma og t.d. þegar við vorum fjögurra ára kenndi hún okkur að læra kenni- töluna okkar. Hún lagði alltaf mikla áherslu á að við myndum læra að spara peninga, safna og ekki eyða í vitleysu. Við fengum oft að gista hjá ömmu og afa í Borgó, fórum með þeim í skemmtileg ferðalög á hús- bílnum þeirra og upplifðum margt spennandi og alltaf var hún að fræða okkur og kenna okkur um allt mögulegt. Við höfum lengi trúað því að hún amma gæti bókstaflega talað við hunda. Hún var alltaf mikill dýravinur og talaði við hann Patta, labradorinn sem þau áttu, eins og hann væri mennskur og hann virtist skilja hvert einasta orð sem hún sagði, jafnvel þó að hún hvíslaði. Hún meira að segja kenndi honum að segja „amma“. Hún amma Sonja var mjög trú- uð og kenndi okkur margar bænir og fræddi okkur um englana og Guð. Við kveðjum elsku ömmu Sonju með uppáhaldsbæninni sem hún kenndi okkur. Vertu yfir og allt um kring, með eilífri blessun þinni. Sitji guðs englar saman í hring, sænginni yfir minni. (Sigurður Jónsson frá Presthólum) Blessuð sé minning þín, elsku amma. Þín barnabörn, Sonja Dís og Þórður Ársæll. Elsku Sonja, það er erfitt að setjast niður og skrifa kveðju til þín. Ég heyrði röddina þína nótt- ina eftir að þú kvaddir. Ég hrökk upp hvað eftir annað og heyrði í þér. Ég held að þú hafir verið að leggja mér lífsreglurnar í síðasta sinn. Þú kenndir mér margt um lífið og varst alltaf tilbúin að gefa mér góð ráð og hlusta á mig. Það er svo margt sem mig langar að segja. Ég var bara nokkurra daga gömul þegar mamma og pabbi fóru með mig í fyrsta sinn í Borg- arnes, á milli jóla og nýárs og þar voru teknar fyrstu myndirnar af mér. Mér hlotnaðist sá heiður að vera skírð í höfuðið á þér, elsku nafna mín. Ég man eftir hring- ferðinni sem við fórum í saman þó að ég hafi sennilega bara verið 4 ára. Ég man eftir öllum heim- sóknunum og þegar við fengum að gista, það var alltaf svo hlýlegt hjá þér og mér er appelsínugula ljósið í holinu alltaf mjög minn- isstætt. Við hátíðleg tækifæri fengum við að fara í betri stofuna og þá lagðirðu fallegu dúkana á borðið sem þú hafðir saumað svo fallega út í. Það var alltaf spenn- andi að fara í Borgarnes en regl- urnar voru mjög skýrar og þeim bar að fylgja. Þú hugsaðir svo fal- lega um stóra fallega garðinn þinn og Sylvía mín hefur áhyggj- ur af að enginn muni hugsa um hann núna. Þegar ég varð eldri gat ég alltaf leitað til þín og fengið ráð. Þegar ég varð ófrísk af Ró- berti mínum þá varst þú svo spennt og komst með mér og mömmu í bæinn að kaupa ýmis- legt sem vantaði til að stofna heimili handa litlu barni og þú tókst ekki annað í mál en að nú væri kominn tími á að ég myndi fá straujárn og strauborð; það væri nú eitt það nauðsynlegasta á heimili. Þegar Róbert minn fædd- ist varstu svo glöð og það kom ekkert annað til greina en að þú værir amma í Borganesi. Ein stund er mér líka mjög minnis- stæð en það er þegar þú komst mér á óvart í veislu við hátíðlegt tilefni í kjólnum sem Hella var í þegar hún hélt á mér undir skírn, svo gafstu mér fallega kjólinn sem ég passa svo vel upp á. Þegar við áttum sumarbústaðinn í Skorradal komum við reglulega í heimsókn. Svavar og Þórður fóru í golf og á meðan áttum við góðar stundir saman. Þér leist strax vel á Svavar minn og samþykktir Sonja Guðlaugsdóttir Veist þú hvert eignir þínar renna eftir þinn dag? Kynntu þér málið á heimasíðu okkar, www.útför.is. Þar getur þú m.a. sett inn þínar forsendur í reiknivél. Við aðstoðum þig við gerð erfðaskrár, kaupmála og við dánarbússkipti. Katla Þorsteinsdóttir, lögfræðingur Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HALLA GUÐNÝ ERLENDSDÓTTIR, Laufásvegi 50, Reykjavík, lést miðvikudaginn 30. maí á Landspítalanum við Hringbraut. Útförin auglýst síðar. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN GUÐMUNDSSON gamli Jón frá Hvítárbakka, lést föstudaginn 25. maí. Útförin fer fram frá Vídalínskirkju í Garðabæ föstudaginn 8. júní klukkan 15. Björg Jónsdóttir börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn Yndisleg eiginkona, móðir, amma og langamma, GUÐBJÖRG VILHJÁLMSSON, lést á Sólvangi, Hafnarfirði, laugardaginn 26. maí. Hún verður jarðsungin frá Vídalínskirkju, Garðabæ, miðvikudaginn 6. júní klukkan 13. Fyrir hönd ættingja, Guðmundur W. Vilhjálmsson Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HILMAR ANDRÉSSON, frá Smiðshúsum, lést á dvalarheimilinu Sólvöllum, Eyrarbakka þriðjudaginn 29. maí. Jarðarförin verður auglýst síðar. Björn Hilmarsson R. Brynja Sverrisdóttir Úlfhildur Hilmarsdóttir Ásgeir V. Ásgeirsson Kolbrún Hilmarsdóttir Gísli Stefánsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir amma og langamma SONJA SVEINSDÓTTIR hjúkrunarfræðingur, Aðalstræti 40, Akureyri, lést laugardaginn 26. maí. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 4. júní klukkan 13:30. Rebekka Sigurðardóttir Allan Johnson Aðalgeir Sigurðsson Helga Björg Sigurðardóttir Þór Jóhannsson Jón Sigurðarson Bjarney Guðrún Jónsdóttir Hulda Sigurðardóttir Ágúst Ásgrímsson Sigurður Sveinn Sigurðsson Guðrún Kristín Blöndal barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, BALDUR INGVARSSON vélstjóri, áður til heimils að Bólstaðarhlíð 46, Reykjavík, lést á Hrafnistu í Reykjavík þriðjudaginn 22. maí. Útförin fór fram í kyrrþey frá Háteigskirkju laugardaginn 30. maí. Þökkum starfsfólki Mánateigs hlýju og umhyggju undanfarin ár. Aðalheiður Í. Hafliðadóttir Bergsteinn Baldursson Edda Pétursdóttir Ingvar Júlíus Baldursson Sigurrós Kristjánsdóttir Ingibjörg Margrét Baldursd. Magnús Ingi Ásgeirsson afa- og langafabörn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.